Vísir - 02.08.1978, Side 4
4
Miövikudagur 2. ágúst 1978
SH boðar til aukafundar:
ENNÞÁ TAPA FRYSTIHÚSIN
Frystihúsin eiga við
mikinn fjárhagsvanda
aðstríða þrátt fyrir að
Seðlabankin hafi ný-
lega hækkað afurða-
lán til þeirra og rikis-
sjóður ábyrgst greiðsl-
ur úr freöf iskdeild
Verðjöfnunarsjóðs út
ágústmánuð.
Forsvarsmenn frystihús-
anna segja aö meöaltap
frystihúsa nú sé um fjögur
prósent á ári en i sumum
landshlutum er þaö sex
prósent eins og t.d. á Suöur-
nesjum. Þar og i Vest-
mannaeyjum veröur flestum
frystihúsum lokaö fljótlega
verði ekkert aö gert sem
tryggt geti rekstrargrund-
völl þessara fyrirtækja.
Þetta gerist á sama tima og
landburður er af fiski og hús-
in hafa ekki undan að vinna
þann afla sem berst á land.
Sölumiðstöð Hraöfrysti-
húsanna hélt aukafund meö
aöildarfélögum i gær aö
Hótel Sögu til aö ræöa þessi
mál og hvað væri til úrbóta
við þaö óvissa stjórnmála-
ástand sem nú rikir i land-
inu. Ennfremur er fyrir-
sjáanlegt að vandi frystihús-
anna á enn eftir að aukast i
haust er áfangahækkanir
samkvæmt kjarasamning-
um taka gildi og nýtt fisk-
verð veröur ákveöiö. —KS
Vandi frystihúsanna I Vestmannaeyjum er ærinn enda eru þeir mjög áhyggjufullir á svip þeir Siguröur
Einarsson hjá Hraöfrystistöö Vestmannaeyja, Guömundur Karlsson hjá Fiskiöjunni og Einar Sigur-
jónsson hjá tsfélaginu. Myndin er tekin skömmu áöur en aukafundur SH á Hótei Sögu I gær hófst. VIsis-
mynd SHE.
„A tvinnubótastefna
að halda frysti-
húsunum ganganái"
— segir Gunnar Pálsson Súgandafirði
,/Raunverulega er það
hálfgerð atvinnubóta-
stefna að vera að halda
þessu gangandi", sagði
Gunnar Pálsson fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunn-
ar Freyju á Súgandafirði.
,,Ástandinu hefur verið
líkt við það að verið sé að
kaupa einhverja vöru á
100 krónur og selja hana
aftur fyrir 99 krónur. Allir
sjá að slíkt getur ekki
gengið til lengdar.
Reksturinn hefur eitthvað
rétt úr kútnum eftir síð-
ustu ráðstafanir ríkis-
stjórnarinnar en endar ná
þó ekki saman ennþá. Ný
launaskriða er væntanleg
eftir 1. september og nýtt
fiskverð verður ákveðið
mánuði siðar.
Þaö var mikiö rætt um þa'ö aö
stööva reksturinn, en horfiö var
frá þvi. Út á landi skiptir hvert
fyrirtæki svo miklu fyrir
byggöarlagið Hjá okkur vinna
yfir 120 manns og ef fyrirtækiö
stöövast stöövast hjól atvinnullfs-
ins i plassinu einnig.”
Gunnar sagði að framleiðslan
hjá þeim I júni hefði verið svo
mikil aö það samsvaraði tveggja
mánaða framleiöslu. Allar
frystigeymslur væru troöfullar en
útskipanir hefðu ekki veriö nægi-
lega örar.
—KS
Gunnar Pálsson framkvæmda-
stjóri Fiskiöjunnar Freyju
Súgandafiröi.
Gisli Konráösson framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyr-
inga.Visismynd SHE.
LITII1ÁTÍÐ
að Úlfljótsvatni um verslunarmannahelgi
Forsalo aðgöngumiða er hafin á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík: í ARO-jeppabifreið i Austurstræti — Þar eru einnig
seldir Rauðhettubolir og hattar.
Keflavík og Suðurnes: Hjá Steindóri og SBK.
Egilsstöðum, Akureyri, ísafirði og Vestmannaeyjum:
í afgr. Flugfélagsins og veitir það einnig mótsgestum 15%
afslátt á flugferðum til og frá Reykjavik.
Verð aðgöngumiða kr. 8000.-
„ÞURFUM AÐ10SNA
VIÐ VAXTABYRDINA"
— segir Gísli Konrúðsson á Akureyri
„Frystihús af réttri
stærð sem hefur jafnt og
stöðugt hráefni allan árs-
ins hring á að geta borið
sig", sagði Gísli Konráðs-
son f ramkvæmdast jóri
Otgerðarfélags Akureyr-
inga.
„Meginorsök vandans er of litið
og of stopult hráefni þó að
þessa dagana skjóti nokkuö
skökku viö. Aflinn er svo mikill aö
viö ráðum varla við hann og
hvergi hægt aö koma fyrir fiski i
landinu.
Við erum aö vona aö reksturinn
standi i járnum út ágúst. Eftir 1.
sept. koma kauphækkanir og eftir
það er ákaflega óljóst hvað tekur
viö. En siöustu ráöstafanir rikis-
stjórnarinnar og hækkun afurða-
lánanna bættu mjög úr brýnni
þörf, Hins vegar höfðum viö litið
óhagræði af útflutningsbanninu
og gátum losnað við allan fisk
sem við höfðum selt.”
Gisli sagði að fjárhagsvanda
frystihúsanna væri hægt aö leysa
á tvennan hátt: Með hækkuöu
verði á erlendum mörkuöum, en
þess gæfist ekki kostur nú þar
sem verðiö væri i hámarki , eða
með þvi aö lækka tillostnað
innanlands. „Ég vil sérstaklega
nefna vaxtabyrðina i þvi sam-
bandi en afuröalánavextir hafa á
skömmum tima hækkab úr 8%
upp i 18% ”
„Ég er bjartsýnn á að þessi mál
leysist farsællega. Ef þau gera
það ekki er þjóðin i voða”.
—KS
Hœtta rekstri
um helgina
— segir Þórarinn Guðbergsson í Garði
„Ástandiöer mjög slæmt
hjá okkur enda erum við á
versta svæðinu", sagði
Þórarinn Guðbergsson
f ramkvæmdastjóri Is-
stöðvarinnar í Garði á
Reykjanesi.
„Þrátt fyrir mjög hátt
útflutningsverð eru fyrir-
tækin rekin með 6% undir
núlli. Þannig hefur þetta
gengið s.l. þrjú til f jögur ár
og skuldahalinn eykst enn
við þessi skilyrði sem við
búum nú við.
Við munum hætta rekstri um
næstu helgi en við i stööinna stafa
60—70 manns. Þá verður lokið viö
að vinna þann fisk sem er i frysti-
húsinu. Siðan er ekkert hægt að
gera annað en aö biða eftir betri
rekstrarskilyrðum og við vonum
aö þau komi innan ekki langs
tima.
Vandi frystihúsa á Suöurnesj-
um er um 2% meiri en annars
staöar á landinu og liggur i þvi aö
við þurfum að vinna óhagkvæm-
ari tegundir en þorsk I talsverö-
um mæli t.d. ufsa og karfa. Auk
þess fáum við lélegri sumarfisk
en aðrir staöir.
Min skoöun er sú aö þessi mál
verði ekki leyst nema meö þvi að
skrá gengið rétt ásamt ákveðnum
hliðarráöstöfunum. En þegar lit-
Þórarinn Guftbergsson fram-
kvæmdastjóri tsstöðvarinnar i
Garfti. Visismynd SHE.
ið er til lengri tima veröur efna-
hagsmálum ekki komiö á réttan
kjöl nema meö stórlegum niður-
skurði á rikisbákninu.
—KS