Vísir - 02.08.1978, Blaðsíða 7

Vísir - 02.08.1978, Blaðsíða 7
„Sjóðu! er ekki okkor longfallegast!?" Fnmskir fíugum- ferðarstjórar Franskir flugumferða- stórar, sem síðustu fimm daga hafa verið í hæga- gangsverkfalli, taka í dag upp eðlileg vinnubrögð, en liklegt þykir, að þeir byrji aftur sama dinglumdólið um næstu helgi. Þessar aögeröir þeirra hafa leitt til hinnar verstu ringulreiöar á flugleiöum Vestur-Evrópu, en franska stjórnin hefur samt ekki hvikaö frá þeirri afstööu aö hefja ekki viöræöur, meöan hægagangs- verkfalliö stæöi yfir. Flugumferöarstjdrar á fjórum aöalflugvöllum Frakklands sam- þykktu aö hefja aö nýju eölileg vinnubrögö, en taka upp skæru- hernaöinn aftur um helgina, ef yfirvöld fást ekki til samninga- viöræöna. Liklegt þykir aö flug- umferöarstjórar smærri flug- valla fari aö fordæmi þessara. Deila þeirra stendur um launa- kröfur og starfsskilyröi. Fékk hrós frá Kiss- inger fyrir „þykj- ustunjósnir" sínar Kúbanskur njósnari, tvö- faldur í roðinu, heldur því fram, að hann hafi þóst njósna fyrir CIA, leyni- þjónustu Bandarikjanna, í tíu ár með þeim árangri, að Henry Kissinger, þáver- andi utanríkisráðherra USA, hafi hrósað honum fyrir dugnað. Nicolas Sirgado segir, aö CIA hafi ráöiö hann á mála hjá sér, meðan hann var I Lundilnaferð 1966. Einhver CIA-erindreki, sem kallaði sig Harold Benson, haföi lofaö honum launagreiöslum inn á bankareikning i New York og þvi meö, aö hann gæti sest aö i Bandarikjunum, þegar fram liöu stundir. Sirgado þessi bar þessu vitni fyrir sérstöku ráöi, sem fjallar um „glæpi heimsvaldastefnunn- ar”, en þaö er þáttur i Heimsþingi æskulýðsins, sem nú stendur yfir i Havana. Hann lýsti fyrir ráöinu, hvernig CIA haföi þjálfað hann og gert á honum lygamælisprófanir æ ofan i æ, sem hann sagöist hafa staöist meö prýöi. Geröi hann grein fyrir ýmsum verkefnum, sem CIA á aö hafa faliö honum. Meöal annars sagöi hann, aö CIA heföi látið honum i té hljóðnema (falinn i holum steini i nágrenni Havana), sem hann átti aö koma fyrir á skrif- stofu Osmany Cienfuegos, einka- ritara á ráöherrafundum á Kúbu. sirgado segist allan timann hafa látið CIA i té þær upplýsing- ar einar, sem leyniþjónusta Kúbu taldi óhætt að „lækju út”. Krefjast mál- sóknar á hend- ur öryggisvörð- um íraks Einhver óvissa leikur á diplómatískri vernd hinna þriggja öryggisvarða sendiráðs iraks i París, sem bíða í haldi eftir skot- bardagann við sendiráðið á mánudag. Franskir lögreglumenn biða i ofvæni ákvöröunar yfirvalda um, hvaö gera skuli viö Irakana, en mikil gremja vaknaöi i lögreglu- liöinu, þegar talið var, aö Irökun- um yröi sleppt án saksóknar — en þeir uröu einum lögreglumanni aö bana, þegar þeir hófu skothriö á arabiskan hryðjuverkamann, sem tekinn haföi verið til fanga. Hundruö lögreglumanna söfn- uðust saman til mótmælafundar fyrir framan aðal-lögreglustööina i Paris i gær. Voru þá bornar til baka fréttir, sem komist höföu á kreik um, að Irakarnir yröu send- ir heim. Nefnd lögreglumanna hélt á fund innanrikismálaráð- herrans, Christian Bonnet, sem sagöi þeim, aö ekki væri vist, aö þremenningarnir nytu fullrar diplómatiskrar verndar. Lögreglan heldur þvi fram, aö trakarnir hafi ætlaö aö taka ara- biska hryöjuverkamanninn af lifi, þegar lögreglan leiddi hann á milli sin burt úr sendiráöinu. 1 skotbardaganum, sem á eftir fyjgdi, var einn lögreglumaður drepinn, einn öryggisvöröur sendiráösins og tveir menn særð- ir. Sendiráð Iraks heldur þvi fram, að einhver sökunautur hryöju- verkamannsins hafi byrjaö skot- hriöina og öryggisverðimir svar- aö henni, en lögreglan visar þeirri fullyröingu á bug. Skœruliðar í Ródesíu snú- ast ó sveif með stjórn- arhernum Yfirmaður herliðs Ródesiu, Peter Walls hershöfðingi, segir, að viða i Ródesiu njóti stjórnarherinn að- stoðar fyrrverandi skæruliða blökku- manna, sem snúið hafi baki við öfgasamtökum þjóðernissinna. Sagöi hershöföinginn, aö heilir hópar skæruliða heföu sagt skilið viö samtök sin og styddu bráöabirgöastjórn hvitra og blakkra. Hann sagöi, aö þessir skæruliöaflokkar, sem héldu enn vopnurn sinum, störfuöu nú sem nýjar deildir i stjórnarhernum, hver á sinu svæði. Þetta er i fyrsta sinn, sem fram kemur, að umtalsveröur fjöldi skæruliöa blökkumanna hafi tekið sinnaskiptum. Hershöföinginn kvaö það hafa verið eina meginástæðuna fyrir innrásinni I Mozambique um helgina aö veita þesum nýju liösmönnum hjálp, og ryðja brautina fyrir tilraunir stjórnarinnar til þess aö koma á vopnahléi viö þjóöernissinna- samtökin.Hann sagöi, aö 2.700 skæruliðar, þjálfaöir i Mozam- bique, heföu verið komnir að landamærunum. Rodesiuher segir, að þessi herferð hafi heppnast vel, en árangrinum hefur ekki verið lýst i smáatriöum. Hershöföinginn var spurður af fréttamönnum, hvar þeir heföust helst viö þessir skæru- liðar, sem snúist hafa á sveif meö bráðabirgöastjórninni, en kvaös ekki geta vlsað hryöju- verkamönnum Mugabes beint á þessa nýju samherja með þvi að segja til þeirra. Leynilögreglan stið að morðinu Chilestjórn hefur orðið mann leynilögreglu við kröfum Bandarikj- Chile, Manuel Contreras anna og hneppti i varð- hershöfðingja, sem bor- hald fyrrverandi yfir- inn er i Bandarikjunum sökum um að hafa átt hlut að morðinu á Orl- ando Letelier, fyrrum utanrikisráðherra Chile. I gærkvöldi kunngeröi Chile- stjórn, að Contreras hershöföingi og tveir foringjar aörir, sem lægju undir sama grun, heföu veriö teknir fastir og væru nú haföir i haldi hjá hernum. Segir I tilkynningunni, aö mönnunum veröi haldiö I allt aö tvo mánuöi, meðan fjallaö veröur um kröfur um aö framselja þá Bandarikjun- um. Segir I tilkynningunni, aö Bandarikjastjórn hafi krafist þess, aö mennirnir yröu hafðir I varöhald fen rannsókn hefur bor- iö böndin aö þeim og fimm öörum sem aöal-sökudólgunum i morö- máli Letelier. Hinir eru fjórir út- lagar frá Kúbu, sem búa I Banda- rikjunum og bandarísk kona. Hafa þau öll verið ákærö fyrir mroöiö á Letelier, sem ráöinn var af dögum meö bílasprengju i Washington 1976. Letelier, sem um hriö haföi veriö sendiherra Chile i Washing- ton, var einn af helstu gagn- rýnendum herforingjastjórnar Augustos Pinochets. Hann var handtekinn i byltingunni 1973, en seinna látinn laus. Leitaöi hann þá hælis i Bandarikjunum, en þaöan hélt hann uppi gagnrýni sinni á Chilestjórn. Rannsóknin i Bandarikjunum á moröi hans þykir benda til þess,að Contreras hershöföingi, sem þá var yfirmaöur leyni- lögreglunnar i Chile, hafi veriö potturinn og pannan i bruggun banaráöa Leteliers.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.