Vísir - 02.08.1978, Síða 11
VISIR Miövikudagur 2. ágúst 1978
n
p . 1 í4'
S ESxwúif wLf; |
i fyrrakvöld rann út
fyrri fresturinn til þess
að skrá sig til keppni í
Vísisrallinu sem háð
verður helgina 26r27. ágúst
næstkomandi. Af því til-
efni hækkaði þátttöku-
gjald úr 30.000 þúsund
krónum í 37.000 þúsund
krónur þar til síðari
fresturinn rennur út 7.
ágúst.
Þegar hafa 16 kappar látiö
skrá sig til keppni, og mikill á-
hugi er rikjandi fyrir henni. 1
fyrrakvöld var haldinn fundur i
Bifreiðaiþróttaklúbbi Reykja-
víkur þar sem málin voru rædd.
Skýrðu þar forráðamenn
klúbbsins frá þeim atriðum sem
fram mega koma varðandi
keppnisleiðina, en hún var mæld
út um siðustu helgi.
Skemmtileg
og erfið leið
Aðstandendur keppn-
innar, Vísir og Bifreiða-
iþróttaklúbbur Reykja-
víkur, hafa ákveðið að
gefa sem minnst upp um
sjálfa keppnísleiðina.
Það sem má gefa upp er
það að hún er 1043,2 kíló-
metrar að lengd og hún
liggur um Suður-og Vest-
urland.
Það sem liggur til grundvall-
ar leyndinni yfir leiðinni er það
að þannig er keppendum best
tryggt að þeir sitji allir við
sama borð og viti allir það sama
um hana.
Keppnin hefst laugardaginn
26. ágúst með ræsingu ökutækj-
anna kl. 10 fyrir hádegi við
Austurbæjarskólann. Keppend-
ur halda rakleitt úr bænum og
koma til Reykjavikur um kvöld-
matinn, en bilarnir eru skoðaðir
við Iðnskólann kl. 20.00 um
kvöldið. Nóttina eftir eru öll
ökutækin, geymd á sama stað
og þess gætt að eigendum gefist
ekki færi á þvi að framkvæma
neinar breytingar á bflunum.
A sunnudeginum 27. ágúst er
endurræst eldsnemma um
morguninn og haldið rakleiðis
úr bænum. Búist er við að kepp-
endur verði allir komnir til
Reykjavikur aftur siðdegis.
Kærufrestur er til kl. 18.00 og
verðlaunin verða afhent á ralf-
ballinu sem byrjar kl. 21.00 um
kvöldið.
>4*0 ^
Alexander H. Bridde og Ólafur Guðmundsson sem báðir eru I stjórn Bifreiðaiþróttaklúbbs Reykjavikur
velta ieiðinni fyrir sér I baksæti flugvélar einhversstaðar yfir Suðurlandsundirlendinu.
Visismynd: GVA.
Skipting
leiðarinnar
Leiðinni er skipt i svokallaðar
ferjuleiðir og sérleiðir. Sérleiðin
er mesta keppnisleiðin, þar
reynir mikið á bæði ökutæki og
menn. Ferjuleiðin hefur aðal-
lega það hlutverk að tengja
saman sérleiðirnar.
A ferjuleiðum eru bilarnir
innan um aðra umferð og
glannaakstur ekki leyfilegur.
Meðalkeyrslan er 50 kilómetrar
eða jafnvel minna á þeirri leið.
Þá eru timamörkin sem kepp-
endur fá á ferjuleiðum þannig
að ekki ætti að vera neinum of-
viða. Keppendum gefst jafnvel
færi á að sinna bilum sinum,
sem vel er þegið milli erfiðra
sérleiða.
Sérleiðirnar eru hugsaðar
þannig að nær ómögulegt á að
vera að ná uppgefnum meðal-
hraða jafnvel þótt hann sé frem-
ur lágur. Sérleiðirnar reyna þvi
mjög á færni bilstjórans og öku-
tækið sjálft.
Það sem keppendur fá að vita
er i þeirri leiðarbók sem afhent
er á föstudéginum fyrir keppn-
ina. Þar eru upplýsingar um
ferjuleiðirnar eingöngu. A sér-
leiðum eru leiðirnar merktar
með skiltum. A ferjuleið mæðir
þvi mjög á aðstoðarmanni öku-
mannsins þvi hún er oft hugsuð
sem einskonar ratleikur.
Leiðin sem farin verður I VIs-
israllinu skiptist 118 sérleiöir og
Þessi mynd gefur hugmynd um þá vegi sem eknir verða I Visisrallinu. Myndin er tekin i flugferð sem
aöstandendur keppninnr fóru ti! aö velja heppilega leið. Vísismynd ■ GVA
20 ferjuleiðir. Ferjuleiöirnar
eru lengri I kilómetrum talið, en
hver sérleið er á bilinu 3-20 kiló-
metrar aö lengd.
Framkvæmd
keppninnar
A öllum leiðamörkum eru sér-
stakir timaverðir með sam-
stilltar „elektróniskar” skeið-
klukkur. Timaverðirnir taka
timann á hverjum bil og færa i
kort bilstjórans. Þessum kort-
um er safnað saman reglulega á
meðan keppnin stendur yfir.
í öllum aðaldráttum má segja
að keppnin snúist ujn þrjá aðal
þætti hjá keppendunum. Þaö er
timi, vegalengd og meðalhraði.
I leiðabókinni er aðeins gefið
upp tvennt af þessu þrennu og
verða þvi keppendur sjálfir aö
finna út þriðja þáttinn eftir for-
múlunni V x 60 : T en hún getur
vafist fyrir mönnum i hita
aug.nabliksins.
Ahorfendur og
erlendir keppendur
Búist var við aö hugsanlega
kæmu norskir rallökumenn til
keppni i Visisrallinu. Allt er þó á
huldu með það enn sem komið
er. Fer þar saman við að á sama
tima og Visisrallið verður háð
hér standa Finnar fyrir hinu
heimsfræga „1000 vatna ralli” i
Finnlandi og búist var við að
hugsanlega fari norsku öku-
mennirnÞ frekar þangað.
Keppendur hafa mikið lagt
upp úr þvi að gera ökutæki sin
sem best úr garði og mikið erum
skemmtilega blla sem fróðlegt
verður að fylgjast með. Flestir
hafa ökumennirnir áður tekið
þátt I samskonar ralli og hæfni
þeirra er þvi mikil. Gaman væri
þvi ef einhverjir erlendir öku-
menn spreyttu sig við hina is-
lensku til að samanburður fáist.
Þar á móti kemur að meöan
hraðamörkin eru höfö i algjöru
lágmarki svo sem nú er lögleitt,
gæti það fælt erlenda menn frá
og spillt fyrir áhuga slikra á
þátttöku i slikum „slow motion”
keppnum.
Erlendir sérfræðingar á þessu
sviði hafa hinsvegar sagt að að-
stæður hér séu mjög spennandi
og hér sé aðstaöa fyrir fyrsta
flokks „safari” -rall i stil við
þau sem tlðkast viða I Afriku.
Þeir sem vilja fylgjast með
rallinu verður bent á heppilega
staði I rallblaði Visis sem kemur
út á föstudeginum fyrir keppn-
ina. Þar verður leiðarkortið birt
i heild og merkt við þá staði þar
sem skemmtilegar „syrpur”
verða teknar.
—HL