Vísir - 12.08.1978, Page 27
VTSIR Laugardagur 12. ágúst 1978
Þaö lá í augum uppi aö einn
maöur heföi ekki getaö komiö
koffortinu á brautarstööina.
Morðinginn hlaut aö hafa notiö
aðstoðar — annaöhvort vitorös-
manns eða manns sem vissi
ekki um likið i kistunni.
Nú voru horfurnar dökkar. En
þá komu til sögunnar þrjú vitni
og framburður þeirra dugði til
þess aö unnt var smeygja snör-
unni um sleipan háls moröingj-
ans.
Waller leigubifreiðastjóri las
um málið. Hann sagði lögregl-
unni að hann hefði tekið farþega
á Rochester Row að morgni 6.
mai. Farþeginn hefði haft
niðþungt ferðakoffort meðferðis
og Waller hjálpaði honum að
bera það inn á Charing Cross
brautarstöðina.
Týndi fasteignasalinn
Lögreglumenn hröðuðu för
sinni til skrifstofubyggingarinn-
ar gegnt lögreglustöðinni við
Rochester Row. Þeir fregnuðu
að John Robinson fasteignasali
hefði ekki komið til vinnu sinnar
i marga daga.
A sama tima kom i ljós að
þurrkan i koffortinu var frá
veitingahúsi nokkru i
Hammersmith. Ein starfsstúlk-
an lýsti yfir að Robinson væri
hættur að heimsækja eiginkonu
sina sem þar vann.
Lögreglumenn ræddu nú við
frú Robinson. Hjónin voru skilin
og hún þurfti að vinna úti til að
afla sér tekna. Hún lýsti fyrir
lögreglunni hve gerómögulegur
eiginmaður Robinson hefði ver-
ið.
Frúin gaf nú lögreglunni upp
heimilisfang manns sins fyrr-
verandi. Robinson lá sofandi i
rúmi sinu þegar þangað kom.
Hann var vakinn snarlega og
handtekinn.
Farangursgeymslan á Charing Cross brautarstöðinni I Lundúnum.
Þangað kom „hermannlegi maðurinn” kofforti sinu i geymslu og
ekki varð komist hjá þvi að likið fvndist.
Það kom sér vel fyrir Sir Bernard Spiisbury að hafa ekkert lyktar-
skyn.þegar hann rannsakaði Hkið.
Sorgleg saga
Fyrst i stað kannaðist hann
hvorki við Minnie Bonati, kist-
una né að hafa verið á Charing
Cross nýlega. En við aðra yfir-
heyrslu — þá haföi hann veriö
látinn biða lengi á Scotland
Yard — leysti hann frá skjóð-
unni. Saga hans var nákvæm og
sorgleg.
Að sögn hans (honum hafði
verið vikið úr hernum af heilsu-
farsástæðum) hafði hin myrta
gert honum „tilboð” er hann
kom út af skrifstofu sinni siðla
dags 4. mai.
Hann fór með henni i herbergi
sem hann hafði á næstu hæð.
Hún sagðist lasin og bað hann að
gefa sér pund. Hann neitaði, hún
reiddist og réðst á hann þar sem
hann sat.
■ ‘"'nSli
■
.ausn gátunnar var aö finna i
Lránni „Mjóhundinum”. Þar
'ann eiginkona morðingjans.
landiakan og dauðadómurinn
'oru nánast formsatriði.
Ferðakistumorðinginn var tekinn af lifi i Pentonville fangelsinu og
málið var ekki lengur fréttamatur. Morðingjar meö lik I farangrinum
nást svo til alltaf.
Sóðalegar aðfarir
„Hún beygði sig eins og hún
tæki eitthvað úr arninum”,
sagði hann á sinn virðulega
hátt. „Þegar hún kom til min
löörungaði ég hana með hægri
hendi. Hún féll aftur fyrir sig og
höfuð hennar slóst i stól i fallinu.
Hún kom sitjandi niður og valt
út af. Hönd hennar var i eld-
stæðinu...
Ég fór til vinnu minnar um kl.
tiu morguninn eftir. Ég undrað-
ist að hún var þarna enn. Hún
var dáin. Staða min var
vonlaus. Ég vissi ekki hvað ég
átti til bragðs að taka”.
Robinson settist við skrifborð
sitt og velti fyrir sér hver næsti
leikur hans yrði. Hann vissi af
lögreglunni i næsta húsi. Loks
ákvað hann að skera likið og
losa sig við likamspartana.
„Fyrst fór ég út og keypti
umbúðapappir og búrhnif. Svo
fór ég að skera. Ég vafði brún-
um umbúðapappirnum um lim-
ina og batt fyrir með snæri sem
ég hafði einnig keypt. Ég flýtti
mér eins og ég gat og lauk verk-
inu fyrir mat”.
Hnifinn fann lögreglan undir
tré að visbendingu morðingj-
ans.
Robinson skrifaði undir játn-
inguna. Hann var ákærður fyrir
morð og réttað var i máli hans
siðar um sumarið. Þetta mál
var helsta forsiöuefni breskra
dagblaða um sumarið. Þrjátiu
manns báru vitni. Robinson sem
kvaðst „ekki sekur” sat hálfa
aðra klukkustund i vitnastúk-
unni.
Sekt hans var augljós en
kviðdómendur áttu erfitt með
að sjá tilganginn með moröinu
— eða öllu heldur tilgangsleysið.
Robinson var sekur fundinn.
Náðunarbeiðni hans var hafnaö
og hann var tekinn af lifi 27.
ágúst.
Meðan á réttarhöldunum stóð
og siðar sætti lögreglumaðurinn
sem stjórnaði yfirheyrslunum
yfir Robinson, Cornish, harðri
gagnrýni fyrir að hafa látið hinn
grunaða biða meira en klukku-
stund á Scotland Yard. Akveðið
var að slikum aðferðum — leik
kattarins að músinni — yröi
ekki beitt framar við yfirheyrsl-
ur. Að þvi leyti var þáttur Johns
Robinsons i afbrotasögunni
merkari en margra annarra
morðingja.
27
DUSCHOLUX
Baðklefar f sturtur og baðherbergi
Auðhreinsað matt eða ’
reyklitað óbrothætt
efni, sem þolir hita.
Ramrnar fást gull-
eða silfurlitaðir úr áli,
sem ryðgar ekki.
Hægt er að fá sér-
byggðar einingar i ná-
kvæmu máli, allt að
3.20 metra breiðar og
2.20 metra háar.
’ Duscholux baðklef-
arnir eru byggðir fyr-
ir framtiðina.
Söluumboð:
Heildverslun Kr. Þorvaldssonar og Co.
Grettisgötu 6, Rvik. Simar 24478 og 24730
^amnamn^aHmanHRmmaMnMai^
L AIIG AR D ALS V ÖLLUR
(EFRI)
1. deild
FRAM - FH
á morgun^sunnudag kl. 19.00
Hvað skeður nú?
Ath. á morgun
sunnudag kl. 19.00
BÍLAVAL
Laugavegi 90-32
við hliðina á Stjörnubíó
VANTAR NÝLEGA
BÍLA Á SKRÁ
MIKIL SALA!
Opið til kl. 22 öll kvöld.
BÍLAVAL
Símar 19168, 19092