Vísir - 21.08.1978, Page 8
blaöburóarfólk
óskast!
Vogar 1
Barðavogur
Eikjuvogur
Langholtsvegur 141-192
Lindargata
Klappastigur
Lindargata
Skúlagata 1-34
VÍSIR
Afgreiðslan: Stakkholti 2-4 Simi 86611^
Tilkynning TSSSST
Frá og með 1. október 1978 taka i gildi
reglur um rafverktakaleyfi.
Starfandi rafverktökum á Austurlandi er
bent á að kynna sér skilyrði og skilmála,
til að öðlast rafverktakaleyfi við rafveitur
á Austurlandi.
Upplýsingar varðandi rafverktakaleyfin
eru veittar hjá Rafmagnsveitum rikisins
Selási 8 Egilsstöðum simar 1300 — 1303 og
Rafveitu Reyðarfjarðar simi 4210 Reyðar-
firði.
Rafverktökum sem ekki eru með rafverk-
takafyrirtæki sin skráð á Austurlandi eftir
1. október 1978 er óheimilt að taka að sér
raflagnavinnu á framanskráðum orku-
veitusvæðum, nema samkvæmt rafverk-
takaleyfi.
Rafmagnsveitur rikisins Austurlandsveita,
Rafveita Reyðarfjarðar
„Hersveitir frá
Sovétrikjunum og Var-
sjárbandalagslöndun-
um Póllandi, Aust-
ur-Þýskalandi, Ung-
ver jalandi og Búlgariu
hafa hernumið alla
Tékkóslóvakiu. Tékk-
neska stjórnin kveðst
enga fyrirfram aðvör-
un hafa fengið um inn-
rásina og her Tékkó-
slóvakiu hefði ekki
fengið fyrirskipun um
að verja landið. Leið-
togar landsins hafa
hvatt þjóðina til þess að
Stúdcntar grýta sovéskan skriOdreka á götum Prag
„Innrósin kom eins
og reiðarslag yfir
þjóðir heims"
-sagði í fréttum frá Lundúnum um innrásina í Tékkóslóvakíu
Tékkneskir borgarar mótmæitu innrás Sovétmanna I iandiO og fóru
I göngur um göturnar I Prag.
gæta stillingar.” Þetta
er inngangur i forsiðu-
frétt Visis 21. ágúst
1968. Fréttir um her-
nám landsins tóku mik-
ið pláss i blaðinu þenn-
an dag. öll forsiðan var
notuð undir fréttir frá
Tékkóslóvakiu, ásamt
sföum inni i blaðinu.
Sent samkvæmt beiðni,
sögðu Sovétmenn
Skýringar Sovétmanna á inn-
rásinni voru þær aö þa5 heföi
komiö beiöni frá stjórnvöldum I
landinu um aöstoö.
Þjóöþingiö ÍTékkóslóvaklu iet
frá sér fara yfirlýsingu þar sem
segir aö innrásin sé brot og
litilsviröing á þjóöarréttindum.
Þaö hvatti flokksleiötoga Sovét-
rikjanna og þeirra rikja, sem
stóöu aö innrásinni aö kveöja
herliöiö heim þegar i staö.
Um morguninn þann 21. ágúst
bárust fréttir um þaö aö sovésk-
ar herdeildir heföu umkringt
byggingu, þar sem leiötogar
Tékkóslóvakiu funduöu. Siöar
kom á daginn aö leiötogar
landsins, þar á meöal Alexand-
er Dubcek, hafi veriö fluttir úr
landi til Moskvu. Dubcek haföi
fariö aörar leiöir en Kremlherr-
um þóttu æskilegar, hann haföi
veriö allt of frjálslyndur i
skoöunum sinum. Hann var
einnig ásakaöur um aö ætla aö
fá landiö í hendur vestrænum
kapítalistum.
Innrásin kom eins og
reiðarslag
1 fréttum frá L,undúnum
þennan dag segir aö innrásin
hafi komiöeins og reiöarslag yf-
ir þjóöir heims. Hvarvetna eru
þjóöarleiötogar og rfldsstjórnir
á fundum og þjóðaleiötogar og
ráöherrar, sem hafi verið i
sumarleyfum sinum, hafi hraö-
aö sér til sins heimalands sem
mest þeir máttu, þegar fréttist
af innrásinni.
1 ritstjórnargrein New York
Times er innrásin harölega vitt,
og Sovétrlkin sökuð um hrotta-
skap. Innrásinni er llkt viö þá
semgerövari Ungverjaland
1956.1 grein blaösinssegir m.a.:
„Innrásin mer sundur alla von
um aö Tékkóslóvakia fái svig-
rúm til þess aö gera tilraun til
aö fá aö njóta stjórnmálalegs
frelsis, en auösjáanlegar skelfir
sú tilhugsun sovétleiðtoga, ef
nokkur vflcur frá hinni opinberu
linu.”
Mótmælagöngur víða
um heim.
Nokkur átök uröu á götum
Prag milli borgara og her-
manna, sem höföu streymt yfir
landamærinum nóttina. Kveikt
var I nokkrum skriödrekum og
þeir grýttir. Einnig kom til
átaka I nokkrum stærri borgum
landsins.
Þrem vikum siðar þegar
meginhluti hersins fór burt Ur
landinu, þá lágu 25 Tékkar I
valnum og tæplega 500 særöust.
NIu mánuöum eftir valdatiflc-
una tók Gustav Husak viö
stjórnartaumum. Slðan hefur
Tékkóslóvakla fylgt stefnu
þeirri, sem valdamenn I Kreml
hafa boðaö.
Grjótkast og aðsúgur
að sovéska sendiráðinu
„Hundruö manna, aöallega
unglingar, söfnuöust saman viö
sovéska sendiráðiö I Garöa-
stræti I gærkvöldi, og létu rigna
yfir þaö eggjum, tómötum,
grjóti og öörum skeytum. Fjöl-
margar rúöur voru brotnar i
sendiráðinulólátunum, enrúmt
hundraö lögreglumanna varði
múgnum aögöngu aö sendiráös-
byggingunni”. Þetta er byr jun á
frétt i Visi, sem birtist I blaöinu
daginn eftir innrásina I Tékkó-
slóvaklu.
Fundir höföu veriö á Lækjar-
torgiogi Gamlablói, enaö þeim
loknum dreif mannfjöldann aö
sendiráöi Sovétmanna. Þurfti
aö kalla út varaliö lögreglu-
manna til aö verja bygginguna.
Kastað var grjóti aö húsinu.
Ölæti þessi stóðu langt fram yfir
miönætti. Flestir voru farnir frá
húsinu um kl. 2 um nóttina, en
lögreglan hélt vörö um húsiö
fram til morguns.
— KP.
---