Vísir - 21.08.1978, Blaðsíða 9
Bíóbruninn
pófítískt
hryðjuverk
Lögreglumenti/ sem
rannsakað hafa húsbruna
i vesturhluta írans, þar
sem 377 manns brunnu
inni, vilja rekja upptök
brunans til hryðjuverka-
manna, og segjast hafa
handtekið nokkra grun-
aða.
Segja yfirvöld aö bruninn i
Abadan sé verk stjórnarand-
stæðinga transkeisara. — Brun-
inn er einn sá mannskæðasti,
sem um getur i sögunni.
Margir hinna látnu voru kon-
ur og börn, sem troðist höfðu inn
i 700 sæta kvikmyndahus til þess
að horfa þar á kvikmynd fyrir
aldna sem unga, þegar eldurinn
kom upp á laugardagskvöld.
Fjöldi manna kafnaði af völd-
um reyks, eða var þá troðinn
undir i ákafanum við að reyna
að komast út. Sumir segja, að
tveir útgangar hafi verið opnir.
Lögreg'lan vill ekkert láta
uppi annað en að nokkrir menn
hafi verið handteknir. Leit helst
út sem nokkur bið yrði á þvi, aö
niðurstöður rannsóknarinnar
yrðu gerðar kunnar.
t tilkynningu þess opinbera
um atburðinn sagði, að einungis
hefðu tiu sloppið lifs úr brunan-
um. Blöð sögðu i annan stað svo
frá, að um 100 hefðu sloppið
ómeiddir, en á þriðja hundrað
særðir. Lögreglan ræddi við
þetta fólk i rannsókn sinni á or-
sökum brunans.
1 Abadan, þar sem er þunga-
miðja oliuiðnaðar lrans, var
gerð i gær útför hinna látnu úr
brunanum. Var nær hvert
mannsbarn bæjarins við hana.
Siöar tóku þúsundir bæjarbúa
undir kröfur og mótmæli við
skemmdarverkafþessu tagi, en
nokkur brögð hafa verið að
þeim að undanförnu i tran. Hafa
þau beinst að kvikmyndahús-
um, matsölustööum og öðrum
slikum opinberum stöðum.
Þannig braust eldur út i öðru
kvikmyndahúsi i Shiraz, sem er
ein stærsta borg suðurhluta tr-
ans, nokkru fyrr um laugar-
dagskvöldið. Siðar um kvöldið
sprakk sprengja á matsölustað.
Seint þessa nótt var kveikt i
kunnum matsölustað i Teheran,
en það er ekki nema vika siöan
einn maður lét lifið og 40 slösuö-
ust, þegar slik sprengja sprakk
á öðrum kunnum matsölustað
þar i borg.
t tran ganga flestir út frá þvi
sem visu, aö árásir þessar
standi i tengslum viö ýmsar
mótmælaaðgerðir andstæðinga
keisarastjórnarinnar.
Litlar sátta-
horfur í Ródesíu
Horfurþykja hafa spillst
til muna á þvi, að efnt
verði til fundar allra
flokka Ródesíu um sjálf-
stæði landsins, eftir nýj-
ustu skilmála, sem settir
hafa verið fyrir slíkum
viðræðum.
Ian Smith forsætisráðherra,
sagði i útvarpsræðu i gær, að
framtið öryggisvarðliös landsins
væri einn mikilvægasti þátturinn
i ákvörðun um, hvort bráða-
birgðastjórn hans mundi taka
þátt i viðræöum viö skæruliða
hreyfingarnar.
Samtimis þessu krefjast
Joshua Nkomo og Robert
Mugabe, leiðtogar skæruliða-
hreyfinganna, þess að öryggis-
varðliðið, sem siðustu sex árin
hefur háð þrotlausa baráttu við
skæruliðanna, verði leyst upp.
Smith sagöi landsmönnum sin-
um: „Það er stórhættulegt okkur
að láta okkur svo mikið sem detta
I hug, að setjast á rökstóla með
mönnum, sem gera slikar kröf-
ur.”
Breskir og bandariskir
diplómatar háfa mánuöum
saman reynt að fá forsvarsmenn
skæruliða þjóðernissinna annars-
vegar og Smith og þrjá leiðtoga
blökkumanna hinsvegar til að
setjast að samningum, og sagði
David Owen, utanfikisráðherra
Bretlands, i gær, að hann teldi að
samkomulag væri á næsta leiti.
En siðustu ummæli Smiths og
áköfustu fjandmanna hans gera
litið úr þeirri bjartsýni.
TÍÐINDALAUST
AFMÆU í
TÉKKÓSLÓVAKÍU
Nákvæmlega þennan
dag fyrir tiu árum rudd-
ust hermenn og skrið-
drekar fimm Varsjár-
bandalagsrikja inn
i höfuðborg Tékkó-
slóvakiu til þess
að kæfa „vorið í Prag”,
eins og frjálsiyndi
tékkneska kommúnista-
flokksins undir forystu
Alexanders Dubceks var
kallað.
En það var ekki að sjá neinn
slikan liðssafnað lögreglu eða
herliðs i morgun, þegar höfuð-
borgarbúarnir lögðu af stað til
vinnu sinnar, að lokinni sólrikri
helgi, sem flestir notuðu til þess
að bregða sér út úr bænum. Né
heldur örlaði á neinum mótmæla-
aðgeröum „hernámsandstæð-
inga” Tékka.
Lögreglan hafði fyrir helgi
komið fyrir brynvörðum vögnum
með öflugum vatnsbyssum á
mikilvægum stöðum i borginni til
þess að leysa upp og brjóta á bak
aftur strax hverskonar uppþot
eða mótmælaaðgerðir.
í morgun kom upp sá kvittur i
höfuðborginni, að menn hefðu
ætlað að efna til málamynda-
mótmæla eins og að nota ekki al-
menningsvagna borgarinnar, en
sagt var, að andófsmenn hefðu
beygt sig fyrir vilja lögreglunnar
og haldið sig utan borgarinnar á
dánarafmæli „vorsins I Prag”.
Meðan andstæöingar innrásar-
innar hafa á Vesturlöndum
minnst afmælisins meö samúðar-
kveðjum til tékknesku þjóöarinn-
ar og fordæmingu á yfirgangs-
stefnu Sovétrikjanna, hafa
andófsmenn heima fyrir i
Tékkóslóvakiu litið haft sig i
frammi. Talsmenn „Sáttmála
77”, mannréttindahópsins, létu
frá sér fara yfirlýsingu, þar sem
innrásin 1968 var fordæmd-og
búið.
HCFNA MtÐ LOFT-
ÁFtÁSUM ÁLÍBAN0N
israelskar herþotur
réðust í morgun á bæki-
stöðvar skæruliða Pale-
stinuaraba á Líbanon-
strönd sunnan Beirút í
hefndarskyni fyrir árás-
ina á ísraelsku flugrút-
una í London í gær, eftir
þvi sem talsmaður
israelshers segir.
Bækistöðvar þessar voru viö
Damour og Bourge E1 Jana.
Flugvélarnar voru sagöar hafa
snúið allar heilar og höldnu
heim úr árásinni.
1 Beirut er sagt, að israelskar
orrustuþotur hafi steypt sér lágt
yfir flóttamannabúðir Pale-
stinuaraba, valdiö þar miklum
hávaöa, þegar þær rufu hljóð-
múrinn, en veriö hraktar á brott
með loftvarnarskothrið, áöur en
þær náðu að varpa nokkurri
sprengju.
tsraelsku flugvélarnar svifu
yfir Beirut, án þess að hleypa af
skoti eða varpa sprengju.
ER VERÐBÓLGAN
ÓLEYSANLEGT VANDAMÁL?
- NEI EKKI FYRIR OKKUR
SPARIÐ 20% •
NOTIÐ AGFACOLOR FILMU
Austursfrœti 7
Sími 10966
Hua vel
fagnað
Kinverski leiðtoginn,
Hua Kuo-feng, sem olli
Moskvustjórn svo mik-
illi gremju með heim-
sókn sinni til Rúmeniu
flýgur i dag til annars
kommúnistartkis, sem
þó er ekki i Varsjár-
bandalaginu, en það er
Júgóslavia.
Bæði þessi riki, Júgóslavia og
Rúmenia, hafa kappkostað að
halda hæfilegu bili milli sin og
stjórnarherranna i Keml og
ávallt viðhaldið góöri sambúö
sinni við Kina, þótt sletst hafi upp
á vinskapinn milli Peking og
Moskvu.
Þetta er fyrsta heimsókn for-
manns kinverska kommúnista-
flokksins til Evrópu I 21 ár, og er
búist við þvi, að Hua hljóti jafn-
góðar viðtökuri Belgrad og hann
hlaut i Búkarest.