Vísir - 29.08.1978, Síða 24
VÍSIR
Skýrsla Ólafs Nilssonar
Oreiðslustaða
borgarsjóðs
erfíð
vf árið
Borgarráö Reykjavikur mun i dag fjalla um úttekt þá,
sem ólafi Nílssyni, endurskoöanda,var faliö aö gera á
fjárhagsstööu Keykjavikurborgar.
Niöurstööur skýrslunnar hafa enn ekki veriö birtar
opinberlega, en aö þvi er Visir kemst næst, telur Ólafur
veltufjárstööu borgarsjóös hafa veriö góöa um mánaöa-
mótin júni og júli, en þá hefur hann boriö saman veltu-
fjármuni og skammtfmalán borgarinnar.
1 skýrslunni mun hins
vegar bent á, að hreint
veltufé, þaö er veltufjár-
munir aö frádregnum
skuldum til skamms tima
séekki algildur mælikvarði
um stöðu borgarsjóðs.
Innheimtu- og greiðslu-
timi, á bæöi hreinum tekj-
um sjóðsins og kröfum á
hendur ýmsum aðilum, geti
ráðið úrslitum. Einnig séu
skipti borgarinnar við
rikissjóð þýðingarmikil,
þegar dæmið sé gert upp.
Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem Visir hefur
aflað sér um niðurstöðu
könnunarinnar á stöðu
borgarsjóðs, þegar nýi
meirihlutinn tók við völd-
um, telur ólafur Nilsson að
greiðslustaða og greiðslu-
áætlun til loka þessa árs
muni verða hliðstæð og
greiðsluáætlun siöasta árs,
og geti verðbólgan breytt
henni enn til hins verra frá
þvi sem áætlaö hafi veriö.
— BA.
Mýir eigendur
að Mausfínu?
Meirihluti hluthafa
veitingahússins Nausts
hafa nú uppi áform um að
selja fyrirtækið. Kauptil-
boð mun þegar liggja fyrir I
veitingahúsiö. Það er hins.
vegar í leiguhúsnæði og
rennur samningurinn út
seinni hluta næsta árs.
Eigandi. hússins er Geir
Zoega eldri, en sonur hans
Geir yngri hefur rekiö
veitingahúsiö ásamt Ib
Wessman og Guðna Jóns-
syni undanfarin ár. Þessir
þrlr menn hafa nú I hyggju
að kaupa veitingastaöinn
og telja góða möguleika á
þvl að fá húsaleigu-
samninginn framlengdan.
— KP.
Rœtt við
fulltrúa
ASÍ eg
BSRB
Fulltrúar ASl og
BSRB sátu í gær
fund með viðræðu-
nefnd vinstri
flokkanna um
stjórnarmyndun.
Var þar rætt um
hugmyndir flokk-
anna um úrbætur í
efnahagsmálum,
samningana í gildi
og vísitölugreiðsl-
ur á laun hærri en
200 þúsund á
mánuði.
Fulltrúar ASÍ og
BSRB koma til
f undar við Ölaf Jó-
hannesson og aðra
fulltrúa í viðræðu-
nefnd vinstri
flokkanna i gær.
(Vísismynd: JA)
—AH
Verðbœtur eg launahœkkanir
í vikulokin:
Kauphœkkunin
7-11% I. sepf.
Verðbótahækkun launa frá og með 1.
september verður 4.05%. Verðbótavisi-
tala hefur hækkað um 8.10% frá þeirri
visitölu sem tók gildi 1. júni siðastliðinn.
Samkvæmt lögum um ráðstafanir i
efnahagsmálum skulu verðbætur á laun
hækka sem svarar helmingi þeirrar
hækkunar verðbótarvisitölu og verð-
bótarauka sem Kauplagsnefnd reiknar
samkvæmt ákvæðum um kjara-
samninga.
Framangreind 4,05%
hækkun miöast viö ágúst-
laun 1978, að undanskild-
um verðbótarviöauka ef
um hann hefur veriö að
ræöa.
Auk þessarar launa-
hækkunar eru I kjara-
samningum ákvæði um
áfangahækkun launa 1.
september. Grunnkaups-
hækkunin er 3% sam-
kvæmtsamningum.en hjá
öðrum hækka laun um til-
tekna fasta krónutölu.
Launahækkanir nú um
mánaðamótin ættu því
að geta orðiö á bilinu 7
1/2-111/2 % aö sögn ölafs
Daviðssonar hjá Þjóð-
hagsstofnun.
—BA—
Góður árangur aff breyttum rekstri:
Betri skil í
Fríhöfninni
,,Við viljum meina að gjaldeyrisskil
Frihafnarinnar hafi þegar lagast, siðan
nýjar stjórnunarbreytingar komu til”,
sagði Páll Ásgeir Tryggvason hjá utan-
rikisráðuneyti i samtali við Visi.
Þar hefur nú veriö ráð-
inn nýr starfsmaöur, sem
hefur á hendi fjárhags-
lega framkvæmdastjórn
fyrirtækisins. Hann heitir
Þórður Magnússon og tók
viö starfi sinu frá og með
15. júlí sl.
Þóröur hefur verið aö
kynna sér starfsemi
fyrirtækisins og hefur
lagt til aö ýmsar breyt-
ingar verði geröar i sam-
bandi viö stjórnun þess.
Umsvif Fríhafnarinnar
hafa aukist mjög á sið-
ustu árum. Arið 1968 var
Frlhöfn rekin með tapi og
skuldaði til rlkíssjóðs. Ár-
ið eftir skilaöi hagnaði
sem nam 3 milljónum
króna. Slöan hefur þessi
upphæð hækkaö jafnt og
þétt og var á siöasta ári
um 300 milljónir.
Páll sagöi aö þaö væri
ekki nema eðlilegt að
breytingar væru gerðar á
stjórnun þessa fyrirtækis,
þar sem það hafi vaxiö
svo mikið undanfarin ár.
Eðlilegt væri aö hugað sé
vel að rekstri sllks fyrir-
tækis og breytingar gerð-
ar I samræmi við breytta
tíma.
Starfsmenn Fríhafnar-
innar I Keflavlk eru um 65
talsins.
—KP.
Loðnubrmðsla
llka með tapi
Loðnubræðslur hafa ver-
ið reknar með tapi undan-
farið og telja fiskmjöls-
framleiðendur, að verð á
loðnu sé of hátt miðað við
nýtingu hrácfnis og gæði
afurða.
Félag Islenskra fisk-
mjölsframleiðenda hélt
fund I gær til að ræöa
vandamál loðnubræðslna.
Jón Reynir Magnússon.
stjórnarformaður félagsins
sagði við Visi i morgun, að
niðurstaöa þess fundar
hefði orðiö sú, að stjórn
félagsins hefði verið falið
að ganga á fund sjávarút-
vegsráðherra næstu rlkis-
stjórnar og gera honum
grein fyrir vandanum.
Jón sagði að nýting hrá-
efnisins væri verri en odda-
maður I verðlagsnefnd
hefði gert ráð fyrir I slnum
útreikningum þegar loönu-
verö var sfðast ákveðið.
Hins vegar hefði loðnan
lagast mikið siöustu daga.
Afkoma verksmiðjanna
ráðist einnig mikið af þvi
hvaða ákvarðanir verði
teknar I gengismálum og
jafnframt ætti að ákveða
nýtt loönuverö 1. septem-
ber n.k. — KS
Teflt á
Torginu
Lækjartorgsskák-
mót Mjölnis veröur
haldið I dag undir ber-
um himni á Lækjar-
torgi. Mótiö hefst kl.
13. Meðal þátttakenda
I mótinu verða flestir
sterkustu skákmenn
landsins, þar á meöal
stórmeistararnir
Friðrik Olafsson og
Guðmundur Sigur-
jónsson. — KP.
SMAAUCLÝSINCASÍMINN ER 86611
■m
Smáauglýsingamóttaka
alla virka daga frá 9-22.
Laugardaga frá 9-14 og
sunnudaga frá 18-22.