Vísir - 30.08.1978, Page 2
/
2
Spurt i Reykjavik:
List þér vel' á Olaí Jóhannesson
sem forsætisráöherra?
l>orlákur (íuömundsson Já, ég
held að hann verbi ágætur.
Gunnar Fétursson: Já ágætlega.
Samt bjóst ég nú ekki viö þessu
miöað við kosningaúrslitin.
Kmil Sigurjónsson: Hann er ekki
verri en hver annar. Hann hefur
staðið sig vel i sinu starfi hingaö
til.
Engla Kristjánsdóttir: Þetta er
ágætt fyrst við fengum ekki Lúð-
vik sem forsætisráðherra. Ég
hefði helst viljað fá hann.
Anna Björgvinsdóttir: Ekki sér-
lega vel. Ég heföi helst viljaö ein-
hvern annan.
Miðvikudagur 110. ágúst I!I7X
VISIR
Hér alþingismaðurinn fyrrverandi svo með lax sem
hann fékk á handfæri/ en Karvel hefur frá því í vor
verið á skaki frá Bolungarvík.
„EG HEF
VERIÐ A
SKAKI f
SUMAR"
segir Karvel Pólmason,
fyrrverandi alþingismaður,sem
sennilega fer að kenna í haust
//Ég hef verið á skaki í
sumar, frá því eftir kosn-
ingar, og held því
væntanlega eitthvað
áfram", sagði Karvel
Pálmason, fyrrverandi
a Iþingismaður er við
slogum á þráðinn til hans
i gær.
Karvel býr sem kunnugt er i
Bolungarvik, og hefur hann
aldrei flutt þaðan þrátt fyrir
setu á Alþingi.
Karvel sagði að óvist væri
hvaö hann tæki sér fyrir hendur,
en þó vildi hann ekki útiloka að
hann færi aftur i kennslu, en
hann starfaði sem barnakennari
i Bolungarvik áður en hann tók
sæti á Alþingi. ,,Það getur allt
gerst i þeim efnum,” sagði Kar-
vel.
Er hann var spurður um
hvernig hefði aflast i sumar,
sagði hann það hafa gengið
sæmilega, en hann væri á bát
með öörum. Meðal annars hefði
það komið fyrir að þeir hefðu
krækt i lax, og raunar var Kar-
vel að koma með einn að landi
er ljósmyndari Visis hitti hann
að máli við höfnina.
Þá sagðist Karvel einnig fara
i fótbolta annað slagið, ,,ekki til
að keppa, heldur til að létta á
sér”. Aður fyrr keppti Karvel
með Bolvikingum i islandsmót-
inu, en hefur nú hætt þvi.
Ekki sagði Karvel að sér litist
á ástandið i þjóðmálunum þessa
dagana, ,,þetta er orðinn hálf-
gerður skripaleikur, og ekki lik-
legur til að efla virðingu þing-
manna með þjóðinni”, sagði
Karvel.
Varðandi þaö hvort honum
fyndist að þingmenn ættu aö fá
laun i einhvern tima eftir að
þeir láta af þingmennsku sagði
Karvel: ,,Ég vil ekki mikið tjá
mig um það, en hins vegar
finnst mér nú ekki óeölilegt, að
þeir séu eitthvað svipað staddir
og aðrir opinberir starfsmenn.
Ég þekki ekki eitt einasta
stéttarfélag i landinu sem ekki
hefur uppsagnarfrest fyrir sina
félagsmenn. Það er þvi ekki
óeðlilegt frá þeim sjónarhóli
séð. En ég er að visu ekki hlut-
laus aðili i þessu máli!”
Að lokum kvaðst Karvel hafa
það gott, og ekki hafa yfir neinu
að kvarta þó hann hefði ekki náð
endurkjöri til Alþingis, ,,ég
drepst ekkert úr ráðaleysi þrátt
fyrirþað”, sagði Karvel um leið
og hann kvaddi. — AH
Matthías Bjarnason leggur fram tillögur
um lausn á vanda frystihúsanna:
„Vimiðunarverð sé
hœkkað í 18%"
,,Þaö kemur ekki til greina
frá minni hendi að það veröi
ekki gertneitt til lausnar vanda
frystihúsanna fyrir 1. septem-
ber”, sagði Matthias Bjarnason
sjávarútvegsráðherra i samtali
við Visi en hann hefur lagt fram
tillögu i ríkisstjórninni um lausn
vandans.
„Efni þessarar tillögu er”,
sagði Matthias, ,,aö rikisstjórn-
in telji óhjákvæmilegt að gera
ráðstafanir til að tryggja rekst-
ur frystihúsanna og samþykki
að freðfiskdeild Verðjöfnunar-
sjóðs verði gert kleift að ábyrgj-
ast nýtt viðmiðunarverö sem
gildi fyrir septembermánuð. Og
jafnframt aö fela stjórn
Verðjöfnunarsjóðs að gera
tillögur um slikt viðmiðunar-
verö. Þessi ráöstöfun sé gerö á
þeim forsendum að ekki komi til
greiöslu úr ríkissjóði vegna
þessarar ábyrgðar enda liggji
fyrir skoðun allra st jórnmála-
flokka aö ekki verði komist hjá
lækkun á skráöu gengi krónunn-
ar og staðið undir greiðslum
sem þessi ákvöröun hefur í för
með sér”
Matthias sagöi að gengisfell-
ingin sem væri væntanleg ætti
að greiða þessa hækkun á
viðmiðunarverði fyrir septem-
bermánuð. Hann minnti á að
rikisstjórnin hefði fyrr i sumar
ábyrgst 11% greiðslu af
viðmiöunarveröi úr freðfisk-
deildinni að höföu samráði við
formenn stjórnarandstöðu-
flokkanna. „Þetta var gert á
þeirri forsendu að gengishagn-
aður væntanlega yrði notaður til
að standa undir þessari ábyrgð.
Þessi samþykkt fellur úr gildi
31. ágúst og þá myndi tekjur
frystiiðnaðarins lækka um 11%
ef ekkert yröi aö gert.
Þegar ekki er um flóknari
ráðstafanir aö ræða til að leysa
þennan vanda i bráö en þetta tel
ég enga ástæðu til þess að þær
séu ekki geröar til aö koma f
veg fyrir stöövun útflutningsat-
vinnuveganna og atvinnuleysi
þúsunda landsmanna”
Matthias sagði að það hefði
ekki orðið beint ágreiningur um
þessa tillögu i rikisstjórninni.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
hefðu verið á þvi að þetta yrði
Matthfas Bjarnason lýsti þeirri skoðun sinni fyrst opinberlega á
beinni linu Visis að þessi rikisstjórn þyrfti að gera efnahagsráðstaf-
anir fyrir 1. september drægist myndun nýrrar stjórnar. Nú hefur
ráðherra lagt tillögu fyrir rikisstjórnina um lausn á rekstrarvanda
frystihúsanna.
gert en framsóknarmenn heföu
hins vegar óskað eftir aö fá að
ræða þetta við formenn hinna
flokkanna i sambandi við
stjórnarmyndunarviðræður.
Matthias taldi að þaö þyrfti að
afgreiða þessa tillögu i rikis-
stjó rninni i dag eða i siðasta lagi
á morgun. Ráðherra sagði að
það væri nokkurn veginn ljóst
hvað viðmiðunarverö þyrfti að
vera og hann teldi aö ábyrgð
rikissjóös þyrfti að hækka úr
11% i 18%. — KS