Vísir - 30.08.1978, Síða 7
Umsjón Guðmundur Pétursson
3
LURIE
USA og Sovét-
ríkin jafnöfíug
hernaðarlega
áríð 1985
1985 munu Bandarikin
hafa glatað yfirburðum
sinum yfir Sovétrikin i
eign kjarnorkueldflauga
en geta samt tekið ræki-
lega á móti ef á þau
verður ráðist.
Þetta kemur fram i nýrri
skýrslu Washingtonstjórnarinn-
ar, þar sem segir, að þessi tvö
stærstu hernaðarveldi heims,
Bandarikin og Sovétrikin muni
standa nær jafnfætis aö sjö árum
liðnum i hæfni til þess að hitta
hvaða skotmark sem þau vilja
með langdrægum kjarnorku-
hlöðnum eldflaugum.
Það er Vopnaeftirlits- og af-
vopnunarráðið sem sent hefur
þessa skýrslu frá sér. Sem for-
sendu að þessari framtiðarspá
gefur ráðið sér, að Bandarikin
muni undirrita nýtt samkomulag
við Sovétrikin um takmarkanir
kjarnorkuvopna.
Ráðiö ályktar i ljósi þessarar
spár aö i versta falli gæti farið svo
ef Bandarikin sættu árás, þegar
þarna væri komið sögu, að 90% af
eldflaugaskotstæðum á landi
eyðilegðust. Nóg skotfæri væru
samt eftir til þess að hirta
árásaraðilann og sú staðreynd
hlyti að draga úr árásarhneigð
óvina.
Segir i skýrslunni að þegar árið
1985 renni upp, verði Bandarikin
enn öflugri hernaöarlega en þau
eru i dag, þótt Sovétrikin muni
standa þeim jafnfætis á sviði eld-
flauga.
Börn innflytjenda
látin þrœla myrkr-
anna í milli
Ein af starfsnefndum
Sameinuðu þjóðanna
fjallar þessa dagana
um skýrslu um bama-
þrælkun i mörgum
löndum, þar á meðal
Suður-Amerikulönd-
um, Bandarikjunum og
Thailandi.
Skýrsla þessi var lögö fram af
breskum samtökum, sem berj-
ast gegn þrælahaldi, og segir i
henni, að börn innflytjenda til
Bandarikjanna séu oft farin að
vinna tæplega fimm ára gömul
og algengt, að þau séu komin i
fulla vinnu tólf ára.
Þræla myrkranna i
milli.
t skýrslunni er vitnað i rann-
sókn árið 1971, sem leiddi i ljós,
að 300.000 börn innflytjenda i
Bandarikjunum hafa unnið
myrkranna á millialla sjö daga
vikunnar.
í Thailandi frelsaði lögreglan
fyrr á þessu ári 60 börn á átta
ára aldrinum úr verksmiöju,
þar sem þau þræluðu við að
lima saman pappirsfigúrur
fyrir 23 krónur til 230 króna á
viku.
Þjdna húsbændunum
til sængur.
Skýrslán nefnir einnig dæmi
um indiánabörn i Boliviu og öðr-
um Suður-Amerikulöndum, sem
oft eru keypt af fjölskyldum
■þeirra eða ættflokkum til þess
að gegna ólaunuðum þjónustu-
störfum á heimili nýja „eigand-
ans”. Þessi börn ganga undir
nafninu „Criadas”. I ýmsum
tilvikum njóta þau ástrikis og
góðs aðbúnaðar og eigendurnir
koma þeim til nokkurra
mennta. — ,,I öörum tilvikum
eruþau réttir og sléttir þrælar.
Stúlkubörnin eru látin þjóna
sonum húsbændanna til sængur,
fá ekki að gifta sig og verði þær
barnshafandi veröur nýja barn-
ið einnig „Criadas”, segir i
skýrslunni.
Barnaár Sameinuðu
þjóðanna
Arið 1979 verður barnaár
Sameinuðu þjóðanna og ætlar
þessi alþjóöastofnun að nota
tækifærið til þess að vekja at-
hygli á þvi hvaða munur sé á
dauðum lagabókstafnum og
bláköldum raunveruleikanum.
Ft ÝJA ANGÓIA
TIL S-AFRIKU
Suður-Afrikustjórn
segir, að hermenn frá
Angóla hafi haldið uppi
skothrið yfir landamæri
Suðvestur-Afriku
(Namibiu) á hundruð
flóttamanna, sem flúið
höfðu Angóla.
Þessi skothrið er sögð hafa átt
sér staö i gærkvöldi, þegar 400
flóttamenn frá Angóla fóru yfir
landamæri Namibiu. Fólk þetta
flúði, þegar stjórnarher Angóla
og Kúbuhermenn héldu innreiö
sina i landamærabæinn, Calai.
Flóttafólkið segir, að aust-
ur-þýskir hermenn hafi aðstoðað
Kúbudátana og stjórnarliða i að
reyna að hindra flóttann.
Jan Geldhuys, hershöfðingi i
her S-Afriku, sagði, að skothrið-
inni hefði einnig verið beint að
unglingabúðum i bænum Rundu I
Suðvestur-Afriku. Kúlnagöt höföu
komið á einstök tjöld, en engan
sakaði þó.
Alþjóða Rauða krossinum hefur
verið gert kunnugt um veru
flóttafólksins.
Svo virðist sem stjórnarher An-
góla hafi dregið lið að bænum
Calai og nágrenni til þess að
ganga milli bols og höfuðs á
skæruliðum uppreisnaraflanna,
sem hafa veriö öflugastir i suður-
hluta Angóla.
Vill hvorki kórónu
né burðarstólinn
Jóhannes Páll páfi
virðist ætla að verða
trúr sinu fyrra litillæti
frá þeim tima, er hann
var sveitarprestur fá-
tækrar sóknar. Hefur
hann visað á bug öllu
prjálinu, sem fylgir
krýningu nýs páfa, og
valið i staðinn einfalda
guðsþjónustu undir ber-
um himni.
Páfagaröur staðfesti i gær að i
, fyrstasinn i nútimasögukaþólsku
kirkjunnar yröi leiötogi hennar
ekki krýndur með heföbundnu
pompi og pragti.'
Jóhannes Páll vill ekki setja
kórónuna þreföldu á höfuð sér,
heldur lætur hann sér nægja
biskupsmítur. Hann vill ekki láta
bera sig I burðarstóli páfa frá
guðsþjónustu á sunnudögum i
Péturskirkjunni, heldur lætur sér
nægja sina tvo jafnfljótu.
Þeim, sem minnast hans úr
prestskaphans á Noröur-Italiu og
einnig frá biskupsárunum og
þeim tima, sem hann var patri-
Geimfararnir sovésku
og sá austur-þýski sem
tengdu Soyuz-geimfar
sitt við Saljut-geim-
stöðina fyrir fjórum
dögum, munu snúa aftur
til jarðar i öðru geim-
fari.
Eftír sjö daga dvöl I geimnum
munu þeir fara aftur til jaröar i
Soyuz-29, sem fluttí tvo sovéska
arki Feneyja, þykir þessar
ákvarðanir sérlega likarhonum.
— Það var á slnum tima haft eftir
borgarstjóra Feneyja, að patri-
arkinn væri svo litillátur og frá-
bitinn prjáli, að tíl vandræöa
væri.
geimfara upp i Saljut-6 þann 15.
júni.
Hinsvegar verður Soyuz-31
notaöur til kyndugrar tilraunar
eftir að þeir félagar John og
Bykovsky verða komnir aftur til
jarðar. Meö fjarstýrisbúnaði
verður Soyuz-31 losaður frá aftur-
enda geimstöövarinnar ogfluttur
tíl þess að tengjast viö framend-
ann.
Afturendinn verður þá laus
fyrir annað geimfar, sem flytja
skal birgðir upp í geimstöðina.
Það birgðageimskip er eins og
sténdur i smiöum i Baikonur.
Skipta um geimför