Vísir - 30.08.1978, Side 10
1°
VÍSIR
utgefandi: Reykjaprenth/f
Framkvæmdastjóri: Davlfl Guðmundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm.
ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta:
••GUflmundur Pífurssor, Umsjón mefl helgarblafli: Arni Þórarinsson. Blafla-
Guðjón Arrtgrimsson, Jón Einar Gufliónsson, Jónína Mikaelsdóttir, Katrin Páls-
dóttir, Kfartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi
Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson,Jens
Alexandersson. útlit og hönnun: Jón Öskar Haf steinsson, Magnús Olaf sson.
Auglýsinga-og sölustjóri: Páll Stefánsson Askriftargjald er kr. 2000
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson á mánuði innanlands.
Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Verð i lausasölu kr. 100
Simar 86611 og 82260 eintakið.
Afgreiösla: Stakkholti 2—4 simi 86611 Prentun Blaöaprent h/f.
Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur
Á nœsta kynslóð að
borga víxilinn?
Gengisfellingin, sem þjóðin hef ur átt von á í eina tvo
mánuði. mun brátt verða að veruleika. Tilgangurinn
með henni á að vera sá að skrá formlega hið raun-
verulega gengi krónunnar, 15-20% lægra en það er nú
skráð. Þannig hyggjast menn leysa vanda útflutn-
ingsatvinnuveganna, og þó sérstaklega f iskvinnslunn-
ar.
En eins og bent hef ur verið á hér i Vísi verður vand-
inn ekki leystur til frambúðar með gengisbreytingu.
Hún verður að vera liður í samræmdum efnahagsað-
gerðum og meginmarkmiðið hlýtur að vera að ráðast
að meinsemd efnahagslífsins, verðbólgunni.
Ein áhrifamesta leiðin til þess er að rifa seglin á
þjóðarskútunni, — hægja á ferðinni. Ef af alvöru yrði
ráðist i að minnka ríkisbáknið yrði jafnframt hægt að
skera niður einhverja tekjustofna ríkisins og minnka
skattheimtuna. í því sambandi var hér á dögunum
bent á vörugjaldið. Með því að fella það niður yrði
hægt að vega uppá móti afleiðingum gengisfellingar-
innar. En jafnf ramt því sem sá tekjustofn yrði úr sög-
unni yrði ríkið að skera niður útgjöld stn sem því
næmi. Ríkisútgjöld er auðvitað hægt að endurskoða og
þeim er hægt að breyta.
Það er út i hött fyrir stjórnvöld að hvetja þegna
þjóðfélagsins til ýtrustu varúðar varðandi fjárfest-
ingu og umsvif, á sama tima og opinberir aðilar auka
enn á spennuna í efnahagslífinu og taka hverja
skóflustunguna af annarri vegna fjárfrekra verk-
efna.
í stað þess að draga úr þenslu hins opinbera kerf is
hafa aukin umsvif verið fjármögnuð með skatt-
heimtu, — sifellt þyngri skattabyrði á einstaklinga og
fyrirtæki. Auk þessefnir ríkissjóður svotil stöðugrar
samkeppni við sjálfstæðan atvinnurekstur um
fjármagnið, meðal annars með sölu happdrættis-
skuldabréfa og verðtryggðra spariskírteina.
Ef þetta dugar ekki til, taka ráðamenn erlend lán og
velta þannig vandanum yfir á þá kynslóð, sem nú er
að komast á legg.
Þjóðin nær varla að standa undir vöxtum af erlendu
lánunum, hvað þá af borgunum, án þess að slá ný lán.
Svo virðist sem mönnum sé sama um framtíð barna
sinna, ef þeir geta aðeins sjálfir lifað í vellystingum.
Við lifum um efni fram, eyðum meiru en við öflum,
og með því að framlengja veisluvíxilinn sjáum við til
þess að hann verði ekki á gjalddaga fyrr en börnin
okkar og barnabörnin verða tekin við þjóðarskútunni.
Þannig ýta menn vandanum á undan sér, og halda
veislunni áf ram með þvi að skrif a kostnaðinn á reikn-
ing næstu eða þarnæstu kynslóðar.
Við verðum að hætta þessum leik. Raunsæi verður
að ráða ferðinni; markvisst verður að minnka þensl-
una i þjóðfélaginu.
Það er ekki nóg að ráðamenn séu sammála um að
þörf sé á að minnka ríkisútg jöldin. Þeir verða að sýna
sjálf ir viðleitni og ábyrgð, jafnvel þóttbrýreða hafnir
í kjördæmum þeirra yrðu meðal þess, er strikað yrði
út af f járlögum um sinn.
Viðgetum ekki sigrast á vandamálum efnahagslífs-
ins,ef allir kref jast sífellt hærri launa og meiri f ram-
kvæmda. Ef haldið verður áf ram í þeim dúr, sökkvum
við stöðugt dýpra í skuldafenið.
Miövikudagur 30. ágúst 1978 VISIR
„Fólk skreið á maganum um alla ganga, og nokkrir komu hlaupandi inn á stoíu til okkar og fengu að
liggja á gólfinu til þess að kúlurnar hæfðu þá ekki”, sagði Sigrfður.
Hermenn stjórnarinnar kanna Intercontinentak-hótelið, eftir að skæruliðar höfðu reynt að skjóta þaðan
eldflaug á vopnabirgðastöð hersins.
Fólk skreið ó
maganum um
alla ganga"
höfðu komið sér fyrir i, sprakk i
loft upp. Hermenn stjórnarinnar
komu og umkringdu svæðið i
kringum hótelið, og hófu siðan að
skjóta á það. Fólk skreið hér á
maganum um alla ganga, og
nokkrir komu hlaupandi inn á
stofu til okkar og fengu að liggja á
gólfinu til þess að kúlurnar hæfðu
þá ekki. Þrjár alsaklausar
manneskjur, sem voru á svæðinu
i kringum hótelið þegar hermenn-
irnir króuðu það af, létu lifið af
skotsárum”.
— AHO
segir íslensk kona, sem rekur
hórgreiðslustofu í Managua,
höfuðborg Nicaragua, þar sem
skœruliðar hafa lótið
til sín taka
Allt hefur veriö á öðrum
endanum í Managua,
höfuöborg Nicaragua,
undanfarið, og hafa fréttir
af látunum þar varla faríö
framhjá neinum.
Skæruliðar, sem hafa það að
markmiði að binda endi á stjórn
Anastsio Somoza, forseta, hafa
gripið til ýmissa ráða til að ná þvi
markmiði. Nú siðast réðust þeir
inn i þjóðarhöllina i Managua,
tóku fjölda gisla, og kröfðust
þess, að þeir fengju tiu milljónir
aollara, og flugvél til að flytja þá
úr landi. Einnig heimtuðu þeir, að
59 pólitiskir fangar yrðu látnir
lausir. Stjórnin lét undan kröfun-
um, og er skæruliðarnir héldu úr
landi til Panama, voru þeir hylltir
eins og þjóðhetjur.
Visir hafði samband við is-
lenska konu, Sigriði Loftsdóttur,
sem hefur verið búsett i Managua
um nokkurt skeið, og rekið hár-
greiðslustofu á Intercontinental
hótelinu þar. Sigriðursagðist ekki
hafa orðið mikið vör við hama-
ganginn i höfuðborginni nú allra
siðustu daga. Hins vegar hefði
orðið heilmikið uppistand á Inter-
continental hótelinu i lok siðasta
mánaðar.
„Einhverjir skæruliðanna
leigðu herbergi á sjöundu hæð
hótelsins, og reyndu að skjóta
eldflaug á vopnabirgðastöö hers-
ins, sem er við hliðina á hótelinu”
sagði Sigriður. „Tilraunin mis-
tókst, en herbergið, sem þeir
Sigriður Loftsdóttir hefur veriö
búsett i Managua um nokkurt
skcið og rekur hárgreiðslustofu á
Intercontinental-hótelinu þar.