Vísir - 30.08.1978, Qupperneq 23
VISIR Miövikudagur 30. ágúst 1978
FRIÐRIK ÓLAFSSON HÉLT TIL HOLLANDS í MORGUN
LEITAR UPPL ÝSINGA
UM ÞÁ SEM EKKI HAFA
ENN TEKIÐ AFSTÖÐU
,,Ég verð í Hollandi
næstu tvær vikur og mun
þar hitta að máli Ineke
Bakker, ritara FIDE. Þar
vonast ég til að geta aflað
mér sem gleggstra upplýs-
inga um stöðuna eins og
hún er i dag/' sagði Friðrik
ólafsson stjórmeistari, er
rætt var við hann í gær, en
hann hélt utan í morgun.
„Ég kem aðallega til með að
vera þennan tima að störfum við
framkvæmd skákmóts Interpolis,
sem haldið verður i Tilburg um
100 km suðaustur af Amsterdam,
en vonast til að mér gefist tóm til
að fá upplýsingar, sérstaklega
um þær þjóöir sem hingað til hafa
ekki látið uppi afstööu sina til for-
setakjörsins.
Kjörið fer fram þann 7.
nóvember, svo segja má, að
timinn sé orðinn dýrmætur.”
Friðrik var spurður aö þvi,
hvort hann ætlaði að hitta Euwe
núverandi forseta FIDE. Hann
sagði að það gæti veriö, en hann
legði þó fyrst og fremst áherslu á
fund með ritaranum.
„Það ætti ýmislegt að skýrast á
þessum tima og þar á meðal
hvort og þá hvaða þjóðir ég þurfi
að heimsækja upp á að tryggja
mér stuðnine beirra.
Ég vil ekki fara i slikar feröir
nema ég sé viss um að þær beri
árangur.
Eftir Hollandsferðina vonast ég
til að geta rekið smiðshöggið á
bækling, sem ég hef verið að
vinna að undanförnu. Þár skýri
ég afstöðu mina til FIDE og þær
hugmyndir sem ég hef um starf-
svið þess auk fleiri atriða.
Þessum bæklingi verður dreift til
allra skáksambanda sem eiga
aðild að FIDE, og auk þess til
aðila sem þykja vera i lykil-
aðstöðu.
Þá er verið að senda út bréf til
flestra skáksambandanna, og þá
sérstaklega til þeirra sem höfðu
áður lýst yfir stuðningi við Euwe.
Þar er gengið á þessa aðila um
það, hvort stuðnings þeirra sé að
vænta við framboð mitt.
1 þvi sambandi er rétt að nefna
að sum skáksamböndin koma þvi
ekki við að senda fulltrúa, en
þeim er heimilt að senda umboð
fyrir sig. Þessi og fleiri atriði er
nú verið að kaúna, en skáksam-
bandið sér um að senda þetta
út.”
Aðspurður sagðist Friðrik ekki
geta sagt fyrir um hvað tæki við
er hann kæmi til baka. „Það
ræðst mikið af þeim upplýsing-
um, sem ég fæ um það, hvaða
þjóðir eða skáksambönd er
ástæða til að athuga nánar.”
—BA.
STYÐJUM KOSNINGA-
BARÁTTU FRIÐRIKS
Visir tekur við fjárframlögum
Barátta eins og sú sem
Friörik ólafsson þarf að
heyja til að ná kjöri er
mjög kostnaöarsöm og
því þörf fyrir fjárfram-
lög fyrirtækja, stofnana
og einstaklinga.
Vísir hefur lagt barátt-
unni lið með 100 þúsund
króna framlagi. Jafn-
framt hefur blaðið tekið
að sér að veita móttöku
framlögum til kosninga-
baráttunnar.
Þeir einstaklingar og for-
svarsmenn fyrirtækja, sem
áhuga hafa á því, að íslendingur
verði forseti FIDE og að bæki-
stöðvar FIDE verði á tslandi,
geta komið framlögum sinum á
ritstjórn Visis að Siðumúla 14,
Reykjavik.
Framlögum er veitt móttaka
frá klukkan 8-20 daglega.
Visir vill hvetja fyrirtæki,
stofnanir og einstaklinga til að
styrkja baráttuna.
NYTT AF
NÁLINNI
Umsjón: Katrinj
Pólsdóttir
23
-
Undanfarin ár hafa flætt
yfir markaðinn úr sem sýna
tima meö tölustöfum. Þessi
nýjung hefur hlotið góðar
1 undirtektir, en samt sem
áður eru fjölmargir sem
vilja halda sér viö gamla
formið og hafa visa á úrinu
sinu. Texas Instruments sem
É hafa framleitt milljónir tölvu-
úra hafa nú sent eitt nýtt á
markaðinn og það er með
Lí visum. Þetta úr er það full-
komnasta sem þeir enn hafa
sent frá sér og jafnframt það
dýrasta. En talsmenn fýrir-
tækisins segja að ekki veröi
langt að biöa þa r t il aö veröiö
færist niður á viö og verði
viðráðanlegt fyrir hvern sem
er.
—KP.
Staurinn
fellur við
Þúsundir umferðaslysa I
Bandarikjunum veröa með
þeim hætti að bilar auka á
Ijósastaura meöfram hraö-
brautum. Þar i landi eru nú i
gangi tilraunir með létta ál-
staura, sem falla niöur við
högg. Komiö hefur I Ijós með
þeim tilraunum sem geröar
hafa verið, aö hægt er að
koma i veg fyrir meiriháttar
slys með þvi að nota álstaur-
ana. Þeir eru einnig mun
ódýrari en þeir staurar sem
notaðir eru nú svo kostnaöur
er einnig minni.
—KP.
Tölvuúr með vísum