Vísir - 18.09.1978, Qupperneq 3
3
VlSÍtt
Mánudagur 18. september 1978
Hver fœr andvirdi bifreiða Breiðholts h.f.?
Laugavegi 37 - 12851, Laugavegi 89 - 13008, Hafnarstrœn i7 - 13303, Glœsibœ
Gjaldheimtan vill
fa 15-16 milljónir
„Fœr örugglega 6,5 milljónir", segir Jónas Gústafsson
hjó borgarfógetaembœttinu
Frumvarp um, að úthlutun
uppboðsandvirðis rúmlega 22
miUjóna króna vegna sölu á bif-
reiðum, sem voru i eigu Breið-
holts h/f hefur nú verið samiö.
Uppboö þetta var meöal annars
knúiö fram vegna beiðni Gjald-
heimtunnar, en þvi hafði fyrr i
sumar verið frestað.
,,Gjaldheiintan fær óumdeilt
rúmar 6 1/2 milljón, siðan eru
það tæpar 9 milljónir, sem
Gjaldheimtan gerir kröfur til að
fá en er umdeilt’’, sagði Jónas
Gústafsson hjá embætti borgar-
fógeta, er Visir ræddi við hann.
,,l>að er niu milljónir, sem
ganga tU annarra aðUa sam-
kvæmt frumvarpinu, en Gjald-
heimtan gerir kröfu til þess að
fá þetta einnig. Það er óljóst
hvernig þetta fer”.
Jónas benti á það, að Gjald-
heimtan hefði ekki verið i lög-
tökum i öllum þeim bifreiðum,
sem seldar voru á uppboðinu og
voru áður eign Breiðholts h/f.
Einnig benti hann á það, aö
kostnaöur væri feikilega mikill
á þessu.
Er Jónas var spurður aö bvi.
hvenær ljóst yrði, hvort Gjald-
heimtan fengi eitthvað meira en
þessa (i 1/2 mUljón, sagði hann
að tekið gæti verulegan tima að
fá úr þvi skoriö.
„Það er hliðstætt úrskurðar-
efni sem biður dóms hjá Hæsta-
rétti, sem þetta veltur að
nokkru leyti á i framtiðinni. Þá
eru þetta einnig að hluta trygg-
inga rskuldir, sem er óvist aö
verði nokkurn tiina til. Það
verðurað halda eftir peningum
fyrir þeim engu að siður, alla-
vega enn um sinn. Þetta eru
ábyrgðir, sem Breiðholt h/f er i,
sem er óvist að verði nokkurn
tima raunhæfar.
—BA—
Verðtryggð
spariskírteini
geta verið
skattskyld
boðin til sölu. i auglýsing-
um er það tekið fram að
skirteinin svo og vextir af
þeim og verðbætur séu
undanþegin framtals-
skyldu og skattlagningu á
sama hátt og sparifé sam-
kvæmt 21. gr. laga 68/1971.
Ýmsir eru þeirrar skoðun-
ar að sparifé sé aldrei
framtals- eða skattskylt.
Staðreyndin er hins vegar
sú/ að hluti af sparifé getur
auðveldlega orðið skatt-
skylt.
Aðili, sem á sparifé, þarf ekki
að telja það fram, ef hann skuldar
ekki neitt, eða hann skuldar ekki
meira i fasteignatryggðum veð-
skuldum til a.m.k. 10 ára en
nemur hámarki lána Húsnæðis-
málastjórnar.
Hann þarf ekki heldur að telja
fram þann hluta innistæðunnar,
sem er umfram skuldir.
Sparifé er skattskylt að móti
lausaskuldum svo og þeim veð-
skuldum, sem eru umfram há-
mark lána Húsnæöismálastjórn-
ar.
Aðili, sem hefur tekið 500 þús-
und króna lán i banka, en á spari-
fé að upphæð 800 þúsund þarf að
telja fram þær 500 þúsund krónur,
sem samsvara þvi, sem hann
skuldar. —BA
AMERÍSKU
HÁSKÓLA BOURNIR
KOMNIR AFTUR
Verðtryggð spariskír-
teini eru nú á nýjan leik
;ÐTRY(
tlSí
þeim og verðbætur, eru und-
anbeqin framtalsskvldu oq
skattlaqningu á sama hátt oq,
sparifé samkvæmt 21. grein ,
laga nr. 68/1971. Skírteinin
__ eru gefin út í þremur sta
krómJHTO^fflWpau skráð
á nafn.
. Sala «skírtpinanna hefst
Úr auglýsingu Seölabankans um
sölu spariskirteinanna.
Endur-
skoðið
verðlags-
mólin!
Niöurstöður könnunar á inn-
kaupsverði ýmissa vara á
Norðurlöndum, er verðlagsstjóri
birti, benda ótvirætt til þess að
unnt sé að bæta kjör almennings i
landinu án þess að hækka kaup i
krónutölu, að þvi er segir i álykt-
un frá formannafundi Kvenfé-
lagasambands islands, er haldinn
var fyrir skömmu.
Þar segir að ljóst sé að taka
verði verðlagsmál á islandi allt
öðrum tökum en gert hefur verið
hingað til. Skorar fundurinn á
rikisstjórnina að finna viðunandi
lausn þessara mála og búa svo
um hnútana, að hagur seljenda
verði sem mestur af þvi að gera
sem hagkvæmust innkaup. KS
Kjarvalsstaðir:
Brottrekstur
Aðalsteins
samþykktur
samhljóða
„Engir þar til bærir aðilar fóru
fram á það við Aðalstein, aðhann
gegndi starfi sinu áfram eftiy 1.
júli. Var þvi i alla staði óeðlilegt
aðhann héldi störfum áfram eins
og ekkert hefði i skorist”, segir I
frétt, sem stjórn Kjarvalsstaða
sendi frá sér i gær. Er þar f jallað
um brottrekstur Aöalsteins
Ingólfssonar, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Listráðs, úr starfi,
scm getið var um i frétt i Visi á
föstudag.
1 fréttinni segir ennfremur, að
bréf formanns stjórnarinnar til
vinnumálastjóra, þar sem farið
var fram á að Aðalsteinn yrði tek-
inn út af launaskrá, hafi ekki
veriðeinkamál formannsins. Það
hafi áður verið samþykkt sam-
hljóða á fundi hússtjórnar, þannig
að ábyrgð á bréfinu beri allirhús-
stjórnarmenn, þótt formaður
undirriti bréfið.
Kemur fram að ráðningar-
samningur listfræðings hússins
hafi verið runninn út og ekkert sé
óeðlilegt þótt nýir hússtjórnar-
meðlimir þyrftu nokkurn umþótt-
unartima til að móta nýja stefnu
fýrir húsið. Allir samningar, sem
gerðir hefðu verið við félög lista-
manna séu nú úr gildi fallnir.
Listamönnum hefur verið endur-
greitt framlag sitt til hússins og
þeir opnað sitt eigið sýningarhús.
—GBG—