Vísir - 18.09.1978, Qupperneq 8
Hundurinn Lassie var nýlega i New Vork, þar sem nýjasta kvik-
tnyndin meö þessum frægasta hundi I heimi var frumsýnd. i
samhandi viö komu Lassie til borgarinnar var haldin einhvers
konar keppni, og verölaunin voru þau aö sá sigurvegarinn fengi
aö hitta Lassie á Plaza Hotel. Þaö var Snoopy, litill biendingur,
sem fékk þann heiöur aö setjast til borös meö I.assie og þeim var
ekki boöiö upp á neinn venjulegan hundamat, heldur dýrindis
nautahakk.
Henry Kissinger, fyrrverandi utanrfkisráöherra Bandarikjanna,
hefur litiö veriö i sviösljósinu undanfariö, miöaö viö þaö, sem
áöur var. Hins vegar sést hann oft á almannafæri vestra, þótt
þaö þyki ekki lengur sömu tiöindi og á meöan hann var einn
valdamesti maöur heims. A myndinni hér aö ofan sést Kissinger
tala viö hinn þekkta leikara, Jack Lemmon, aö tjaldabaki f
Atkinson leikhúsinu i New York, aö lokinni sýningu á leikritinu
„Tribute”, sem slegiö hefur i gegn I New York, en Lemmon
leikur þar aöalhlutverkiö.
UPI-MYND
Fólk gengur stundum i hjónaband meö hinum furöulegasta
hætti. Hjónakornin á myndinni heita George Diilman og
Kimberly Fritz og eru frá Keading I Pennsynvaniu. Dillman er
fyrrum karate-meistari I Bandarikjunum og hann hélt upp á
brúökaup sitt meö þvi aö láta binda fyrir augu sin og kijúfa siöan
cpli, sem sett var ofan á höfuö brúöarinnar, meö fornu Samuri-
sveröi.
-UPI-MYND
Mánudagur 18. september 1978 VISIR
leysinu í
Thurmont
I
Meðan Anwar Sadat
og Menachem Begin
hafa átt viðræður sinar
við Jimmy Carter i
Camp David hafa um
300 blaðamenn, rit-
stjórar, þáttaframleið-
endur sjónvarpstækni-
menn og Ijósmyndarar
viða að úr heiminum
safnast saman i bænum
Thurmont skammt frá.
Þeir hefðu eins vel
getað verið heima, þvi
að þeir hafa ekki haft
erindi sem erfiði og
engan til þess að tala
við nema hver annan
og svo Judy Powell,
blaðafulltrúa Hvita
hússins, sem hefur
naumast einu sinni
getað sagt þeim, hvað
klukkan væri, hvað þá
nokkrar fréttir af við-
ræðunum.
A öðrum degi viðræönanna
settist einn fréttamanna News-
week niður hjá Sam Donalds-
soneinum af fréttariturum ABC-
sjónvarpsins sem hefur þann
fastastarfa að fylgjast meö
Hvíta húsinu og forsetanum og
ætlaði að eiga við hann viötal,
fremur en gera ekkert. Naum-
ast voru þeir fyrr byrjaöir
spjallið en sænskir sjónvarps-
menn- læddust að þeim og tóku
að festa á filmu, hvernig frétta-
menn bandarisku stórblaöanna
bæru sig að. Fljótlega á eftir
komu israelskir sjónvarpstöku-
menn og fóru að mynda þá
israelsku að störfum. Siöan
slöngruðu að egypskir blaða-
menn og fóru að hripa i vasa-
bækur sinar minnispunkta um
hvernig Israelsmenn kvik-
mynduðu Sviana sem voru að
kvikmynda...
Þannig hefur þetta gengiö
þessar tvær vikur, siðan viö-
ræðurnar hófust i Camp David.
Fréttamennirnir hafa nánast
ekkert haft við að vera en sitja
og stytta sér einhvern veginn
stundir i blaöamannaherberg-
inu, sem þeim var útvegaö i
Thurmont. Eöa þeir hafa getað
ranglaö um nágrenniö, lagt leiö
sina um skóginn og að hliðum
Camp David, þar sem safnast
hefur floti af upptökubifreiðum
sjónvarpsstööva. I þeim flota
ber mest á lyftubil sem gægist
upp úr skógarliminu og yfir
girðinguna meö sjónopið skim-
andi yfir um loftnetin standandi
út I allar áttir eins og broddar á
broddgelti. ......
En ein af ástæðum þess, að
Carter valdi þennan fundarstaö
var sú von hans, að losa
samningamennina út úr þvi
yfirlýsingastriði. sem einkennt
hefur þessa mánuði sem liönir
eru frá því aö Sadat Egypta-
lands-forseti hóf friöarumleit-
anir sinar viö Israelsmenn. Þvi
fylgdi eölilega, að hann reyndi
að halda þeim frá fjölmiölun-
um. Og til þess að hindra aö
hvorugur næði að stela senunni,
hafa aöstoðarmenn Begins og
Sadats orðið að lofa að láta
Tiðindaleysi i blaöamannaherberginu I Thurmont.
ógert að lepja I blööin þaö sem
fram fer i viðræðunum.
Egyptarog Israelsmenn sam-
þykktu einnig aö Judy Powell
skyldi einn látinn um það að
henda einhverjum fréttamolum
i blaöamennina. Verður ekki
annaö sagt aö hann hafi þennan
tima varast, maðurinn sá, mjög
vel að tala ekki af sér. Powell
hefur ekki einu sinni viljað
gangast við þvi að nokkrar
samningaviöræöur ættu sér stað
I Camp David. Hann vill kalla
þær heldur „alvarlegar viðræð-
ur.”
Þvi er það að einhver besta
fréttakvikmyndin, sem sjón-
varpaö hefur veriö frá við-
ræöunum i Camp David, var að
býflugu sem suðaði yfir blómi.
Þessi fréttaþurrð hefur, eins
og við mátti búast leitt einn og
einn fréttamann út á glapstigu I
tilraun til þess aö „scoopa” hina
og verða sá eini, sem einhverjar
fréttir fær af viöræðunum. Þær
tilraunir hafa þó litið hjákátlega
út. AP skýröi ranglega frá þvi
að Carter og Begin hefðu átt 3
1/2 stundar viðræður á þriöju-
degi og siðan borðað morgun-
verð saman meö Sadat á mið-
vikudegi. AP var eina frétta-
stofan með þessa frétt, enda
kom í ljós að fundurinn hafði
ekki staðið nema i 2 stundir og
morgunverðurin hafði aldrei
verið snæddur i sameiningu. —
AP rétti úr kútnum með þvi að
Sjónvarpsmyndatökumaður
aflar sér frétta að utan við lest-
ur blaða, og fylgist þannig meö
þvi, sem er aö gerast uppi i
Camp David.
ná fréttamynd af Sadat og Beg-
in saman I sundlauginni,
klukkustundu áður en aðal-
keppinautur þeirra UPI haföi
eintak af myndinni. Einn frétta-
manna Baltimore Sun reyndi aö
slá sér upp á þvi að þegar Sadat
eins og aðrir Múhammeðstrúar-
menn beindi bænum sinum til
Mekka sneri hann i rauninni til
Baltimore. Einhver Israelskur
fréttamaður greip i örvæntingu
sinni yfir fréttaleysinu til þess
aö taka timann á skeiðklukku
hvað faðmlög þeirra Carters og
Begins, þegar þeir hittust við
komu þess siðarnefnda til Camp
David, hefðu staðið lengi. Það
voru niu sekúndur, Þessi sami
„tímavörður” komst að þeirri
niðurstöðu, að faðmlög þeirra
Carters og Sadats heföu staðið i
þrettán sekúndur. En hann
huggaði lesendur sina heima i
Israel með þvi aö kveðjur þeirra
Carters og Begins hefðu verið
innilegri.