Vísir - 18.09.1978, Side 9
VISIR . Mánudagur 18. september 1978
(
V
Umsjón Guðmundur Pétursson
)
Ótrúlegur
úrangur
viðrœðna
þrímenn-
inganna í
Camp Dovid
Anwar Sadat Egypta-
landsforseti og Men-
achem Begin forsætis-
ráðherra Israels luku i
gærkvöldi fundinum i
Camp David með sam-
komulagi um, að þeir
mundu reyna að undirrita
friðarsamning áður en
þrir mánuðir væru liðnir.
Þeim tókst einnig það,
sem engum hefur tekist
síðustu áratugina i
Austurlöndum nær — að
gera drög að líklegri sátt
Araba og Israela.
Undirritun skjaln
Sitjandi sinn til hvorrar hand-
ar Carter Bandarikjaforseta i
austurherbergi Hvita hússins
slógu þessir tveir leiötogar frá
austurlöndum botninn i þrettán
daga leyniviðræöur Camp Da-
vid meö undirritun tveggja
skjala — Annað skjalið hefur aö
fela f sér lausn flestra helstu
' deilumálanna, nema það sem
varðar landnám Gyðinga i Sin-
ai, sem stendur i vegi fyrir frið-
arsamningum Israels og
Egyptalands. Hitt fjallar um
sameiginlegar tillögur varðandi
lausn á Palestinuvandamálinu,
sem geti svo leitt til þess, að
Israel afsali sér hernaðarlegum
yfirráöum á vesturbakka Jór-
dan og Gaza-svæðinu.
Arangur viðræönanna i Camp
David þykir hafa farið langt
fram úr björtustu vonum, og
marka stórt skref i átt til lausn-
ar deilunni i Austurlöndum nær.
Söguleg stund
Við athöfn þar sem tilfinning-
arnar náðu að brjótast fram,
faðmaöi Carter forseti þá að sér
til skiptis, Sadat og Begin. 1 lok-
in tóku hinir brosgleiöu leiötog-
ar höndum saman fyrir ljós-
myndarana.
Carter sagði að fundurinn i
Setið að tafli I Camp David, Begin forsætisráðherra tsraels og Brzenski öryggisráðgjafi Carters forseta,
hvila sig frá viðræðunum yfir manntafli. — Nú liggja fyrir tafllok viðræðnanna I Camp David.
Camp David hefði veriö mikil-
vægt framlag til friðar og ár-
angurinn af þvi tagi, sem fyrir
einu ári, jafnvel fyrir einum
mánuði, hefði verið talið óhugs-
andi.
Israelski forsætisráöherrann
kallaði Sadat ,,vin” sinn æ ofan i
æ og sagði aö kalla ætti viðræð-
urnar i Camp David „Jimmy
Carter-ráöstefnuna”. — En það
var Carter sem bauð til hennar,
eftir að Egyptaland hafði slitið
friðarviöræöunum við Israel.
Fáir höfðu spáð henni árangri.
Sadat forseti sagði, að vera
þeirra allra þriggja i Hvita hús-
inu við undirritun samkomu-
lagsins um Sinai og vesturbakk-
ann væri söguleg stund. —
„Þessi undirritun felur i sér
upphaf endurnýjaðrar friöarviö
leitni.” sagði hann. — Sadat
lagði fast að Carter að halda
áfram þátttöku i tilraunum til
þess aö koma á friði i Austur-
löndum nær.
Begin lýstiyfir: „Bandarikja-
forsetiermaöurdagsinsog friö-
urinn fagnar nú sigri”. — Hann
rifjaði upp hvernig leiðtogarnir
hefðu oft unnið fram til kl. þrjú
um nætur og byrjað aftur kl.
fimm að morgni, og sagði:
„Bandarikjaforseti vann.. ég
held, að hann hafi unnið haröar,
en forfeður okkar gerðu þegar
þeir störfuðu við pýramidana i
Egyptalandi”. (Sem þrælar)
Leiðtogarnir þrir flugu frá
Camp David i gærkvöldi i þyrlu
til Hvita hússins, til þess að reka
endahnútinn á viðræðurnar með
undirritun skjalanna. Meðan á
þeirri athöfn stóö bað Begin for-
sætisráðherra Sadat forseta aö
undirrita friðarsamning
Egyptalands og Israels, áður en
þriggja mánaða fresturinn
rynni út sem um var samið núna
i Camp David „Fine, fine”
(ágætt) var svart Sadats.
Egyptaland og tsrael urðu
ásátt um aö undirrita friöar-
samning ef þeim tækist að leysa
þrætuna um landnám Gyöinga i
Sinai en þaö er frumskiíyrði af
hálfu Sadats. Knesset (Israels-
þing) mun fjalla um þá kröfu
innan tveggja vikna.
Pálmalrén standa
ein uooi eftir
iarðskiáiftann
Sadat náöi samkomulagi viö Begin fyrir milligöngu Carters, en
svo óánægðir eru sumir ráöherrar hans og ráðgjafar meö sam-
komulagiö, aö þeir eru sagöir hafa farið aö fordæmi utanrikis-
ráðherra hans og hafa sagt af sér.
Grunur um fleiri
þýsko skœruliða í
Bretlandi
óttast er, að nýjasti
jarðskjálftinn í Iran, sem
lagði bæinn Tabas í rústir
og nærliggjandi þorp, hafi
kostað að minnsta kosti
11.000 manns lífið.
„Tabas er eins á aö sjá
og ruslahaugur," sagði
fréttamaður, sem komst til
þessa bæjar í Khorassan-
fylki. „Þar stendur ekkert
upp úr nema pálmatrén.
Hver einsta bygging hefur
hrunið og þúsundir hafa
grafist undir þeim."
Talsmaður Rauða ljónsins og
sólarinnar (Rauði kross Irans)
sagði, að eyðileggingin væri svo
viðtæk, að ógjörningur væri aö
gera sér grein fyrir tióni eöa
mannskaða I bili En eftir þvl sem
fréttir taka að berast frá
hörmungarsvæðinu, sem er rétt
við landamæri Sovetrikjanna og
Afghanistan, virðist eins og auð
veldara veröi aö koma tölu á þá
sem sluppu lifs úr þessum ham-
förum en á hina, sem fórust.
Þaö er sagt, að einungis
2.000 manns af upphaflegum
13.000 ibúum i Tabas hafi komist
af. Liggja likin um öll stræti og
undir rústunum i steikjandi sólar-
hitanum og fá björgunarmenn,
sem byrjaðir eru af grafa i rúst-
unum i leit aö eftiríifandi fólki,
vart haldist viö fyrir rotnunar-
stækjunni.
Jarðskjálftinn varð á laugar-
dagskvöld i þann mund, sem fólk
var að setjast að kvöldverðar-
boröum. Mældist hann sjö stig á
Richterkvaröa. Er þetta mann-
skæðasti jarðskjálfti, sem herjaö
hefur á íran frá þvi 1962, þegar
13.000 manns fórust, en það var
lika i Khorassan.
—Jaröskjálftinn var svo
snarpur, aö siðasti kippurinn kom
húsum i 700 km fjarlægð til að
nötra. ----tran liggur á jarð-
skjálftabelti jarðkringlunnar.
Þar hafa kmiö um 20.000 jarö-
skjálftar á þessari öld, sem
kostaö hafa um 60.000 lifiö.
Tabas, sem var á mörkum
Kavir-eyðimerkurinnar, lenti i
miöju jarðskjálftans, en frést
hefur, að um 100 þorp hafi oröið
fyrir meiri og minni sköðum af
völdum hans. Um 40 þorp eru
talin hafa gjöreyðilagst.
Ekkert simasamband er viö
þessa staði, vatnslaust er á
svæðinu og orkulaust. Af ótta við
að farsóttir brjótist út, eru öll lik
sem finnast greftruö umsvifa-
laust.
Sérfræðingar Scotland
Yard rannsaka i dag kvitt,
sem kominn er á kreik
um að önnur vesturþýsk
kona, félagi úr Baader-
Meinhofsamtökunum, fari
huldu höfði í Bretlandi.
Eftir handtöku Astrid Proll á
föstudaginn — en hún hefur falið
sig I Bretlandi í fjögur ár undir
fölsku nafni — hefur vaknað
grunur um, aö Susanne Albrecht
sem eftirlýst er af þýskum yfir-
völdum vegna tilraunar til
mannráns, og morðs á banka-
stjóranum Jiirgen Ponto i fyrra,
leynist einnig i Bretlandi.
Proll var eftirlýst vegna morð-
tilraunar og ráns. Hún kemur
fyrir rétt i dag i London, áöur en
hún veröur framseld vestur-þýsk-
um yfirvöldum.
Susanne Albrecht, dóttir lög-
manns i Hamborg, hefur ákaft
verið leitað af vestur-þýsku lög-
reglunni eftir morðið á Ponto.
Ponto var skotinn fimm sinnnum
i bakið, eftir aö Susanne, sem var
náinn vinur fjölskyldu hans, haföi
heimsótt hann, færandi honum
rauðan rósavönd. 1 fylgd meö
henni i þeirri heimsókn voru karl-
maður og önnur kona.