Vísir - 18.09.1978, Page 13
vism Mánudagur 18. september 1978
13
RUMIIR HELMINGUR BIL-
VERÐSINS TIL RÍKISINS
I Óhófleg skattheimta hefur leitt til þess að gömlum bilum er haldið gangandi mjög lengi hér ó landi
Rikið fær i sinn hlut nær 60% af
söluverði fólksbila, sem fluttir
eru til landsins, og er það töluvert
hærri hlutfallstala en gerist i
nágrannalöndum okkar. 1 Noregi
fær rikið i sinn hlut um 48%, I Svi-
þjóð um 25%, á Englandi um
15%og i Hollandi um 37%, svo að
dæmi séu nefnd. Þessi háu gjöld
eru fyrir utan skatta á bílaeig-
endur og gjöld af eldsneyti.
A aðalfundi Bilgreinasam-
bandsins, sem haldinn var á
Húsavik fyrir skömmu var
samþykkt ályktun, þar sem mót-
mælt var skattheimtu rikisins af
bifreiðaeigendum i formi aöflutn-
ingsgjalda af bifreiðum og formi
skatta á bifreiðaeigendur og
gjalda á bensin.
Segir i ályktuninni, að þessi
skattheimta hafi leitt til hærri
meðalaldurs bila hér á landi, svo
og meiri sveiflna i innflutningi.
Þetta hafi i för með sér aukinn
viðgerðar- og viðhaldskostnað,
sem sé bifreiðaeigendum, fyrir-
tækjum i bilgreininni og þjóöinni i
heild til skaða.
í sundurliðun á söluverði fólks-
bila hér á landi kemur i ljós, aö
innkaupsverð bilsins erlendis er
einungis 28,5% af söluveröi,
heimflutningur 6,1%, rikið tekur
58,9% af kökunni, en álagning
innflytjenda nemur 6,5% af heild-
arsöluveröi.
—GBG.
HEILDARVERÐ TIL KAUPANDA 100%
A þessari mynd er sundurliðað hvernig kaupverð nýs bils skiptist á
milli framieiðanda biisins, þess sem annast flutning hans til landsins,
rikisins og innflytjanda bilsins og sést þar aö hlutur rikissjóös I endan-
legu bilveröi er tæp 60%.
Bílgreinasambandið:
INGIMUNDUR
FORMAÐUR
A aðalfundi Bilgreinasam-
bandsins á Húsavik á dögunum
var Ingimundur Sigfússon ein-
róma kjörinn form a ður sam-
bandsins. Fráfarandi formaður,
Geir Þorsteinsson, gaf ekki kost á
sér til endurkjörs.
Aðrir i stjórn voru kjörnir þeir
Þórir Jónsson, Matthias
Guðmundsson Guðmundur
Gislason, Birgir Guðnason, og
Brynjar Pálsson. Til vara voru
kjörnir Jón Hákon Magnússon og
Gunnsteinn Skúlason.
—GBG
ingimundur Sigfússon.
Bílaskoðun fari fram
á verkstœðum
Aðalfundur Biigreinasam-
bandsins itrekaði fyrri ályktanir
og samþykktir um, aö stefna beri
að þvi að bifreiðaverkstæði, sem
þess óska, og til þess eru útbúin,
fái heimild til að annast lögboöna
skoðun að öllu ieyti eða að hluta
til, sé um sérþjónustuverkstæöi
að ræða. Er gert ráð fyrir að sér-
stakir dómbærir aðilar gangi úr
skugga um hæfni verkstæðanna
til þess að annast þessa þjónustu.
Skoöunin verði framkvæmd
undir yfirumsjón Bifreiðaeftirlits
rikisins, sem fylgist að staðaldri
með þeim bifreiðaverkstæðum,
sem framkvæma s-..un.
i ályktuninni segir, að aðal-
fundurinn telji að nýtt fyrir-
komulag, þar sem hluti ökutækja
yrði skoðaður á viðurkenndum
verkstæðum, jafnframt þvi að
starfsaöstaða Bifreiðaeftirlits
rikiáins yrði bætt, myndi stuðla
að virkari og raunverulegra eftir-
liti með ástandi ökutækja. Það
hefði i för með sér aukiö um-
ferðaröryggi, auk þess sem skoð-
unarkostnaður bifreiða i heild
muni lækka, — og umtstang og
snúningar bifreiðaeigenda
minnka.
—GBG
onnssHóu
RSTuniDssonnn
Innritun daglega frá 10-12
og 13-19 i símum:
20345 76624
38126 24959
74444
Kennslustaðir:
REYKJAVÍK
Brautarholt 4
Drafnarfell 4
Félagsheimili Fylkis
KÓPAVOGUR
Hamraborg 1
Kársnesskóli
SELTJARNARNES
Félagsheimilið
HAFNARFJÖRÐUR
Góðtemplarahúsið
Kennum alla samkvœmisdansa, nýjustu tóningadansa, rokk og tjútt.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
OOO