Vísir - 21.09.1978, Síða 3
vism Fimmtudagur 21. september 1978
3
Reykingar dýrar fyrir þjóðfélagið
Kostnaðurinn meiri
en tekjur af sölu
„Óhætt er að fullyrða
að kostnaður þjóð-
félagsins vegna reyk-
inga landsmanna er
mun meiri en þær
hreinu tekjur sem tó-
bakssalan skilar i
rikissjóð”, sagði ólafur
Ragnarsson formaður
samstarfsnefndar um
reykingavarnir á
blaðamannafundi
nefndarinnar i gær.
,,Þá á ég við þann kostnaö”,
sagöi Ólafur, ,,spm skapast
vegna áhrifa reykinganna á
heilsufar landsmanna, það er
sjúkrakostnað tapaðar vinnu-
s.tundir og fleira. Otgjöld ein-
staklinganna sjálfra vegna
tóbakskaupa eru þó ekki tekin
með i reikninginn."
Samstarfsnefndin á árs af-
mæli um þessar mundir. Hlut-
verkhennarer að annast fram-
kvæmd laga þeirra sem sam-
þykkt voruá alþingi vorið 1977,
um ráðstafanir til aö draga tir
tóbaksreykingum og aðrar að-
gerðir á því sviði.
1 samstarfsnefndinni eiga
sæti Ólafur Ragnarsson rit-
stjóri, Asgeir Guðmundsson,
skólastjóri og Þorvarður
örnólfsson, framkvæmdastjóri.
Samstarfsnefndin er til húsa
að Lágmúla 9 i Reykjavik.
Þaðan er starfsemi hennar
stjórnað — haldið tengslum við
þá aðila sem vinna að reykinga-
vörnum i landinu og miðlað þvi
upplýsingaefni sem nefndin
gefur út.
Til þess aö treysta tengsl
nefndarinnar viö landsbyggöina
hafa nú verið fengnir umboðs-
menn i öllum landshlutum sem
annast munu miðlun ýmiskonar
kynningarefnis frá nefndinni i
byggðum sinum. Umboðs-
mennirnir eru nú um 40 i kaup-
stööum og kauptúnum.
Næsta þriöjudag verður
haldin ráðstefna um reykinga-
mál á Hótel Loftleiðum sem
nefndin gengst fyrir en næsta
stórverkefni er réyklausi
dagurinn i' janúar. —GA
Ásqeir Guðmundssori/ ólafur Ragnarssonog Þorvarður örnólfsson á blaðamanna
fundinum i gær. Visismynd GVA
Vinnuveitendasambandið:
Spá57%
launa-
hœkkun
Hagdeild Vinnuveit-
endasambands íslands
hefur i samvinnu við
Framleiðni sf. gert spá
um þróun framfærslu-
visitölunnar og launa
og þróun dollaragengis
til loka ársins 1979.
Samkvæmt niður-
stöðum spárinnar mun
framfærsluvisitalan
hækka um 42,9% frá 1.
nóvember n.k. til 1.
nóvember á næsta ári
og laun hækka um 57%
frá 1. september s.l. til
ársloka 1979 án þess að
til komi grunnkaups-
hækkanir. Gert er ráð
fyrir að gengi dollarans
hækki um 58% frá þvi
sem nú er og til ára-
móta 1979-1980.
í frétt frá Vinnuveitendasam-
bandi Islands segir m.a. að af
þessu megi ráöa að að óbreyttu
núverandi vlsitölukerfi muni
reynast ókleift að stemma stigu
við þeirri 40-50% verðbólgu sem
hér hafi geisað. Þvi sé mikiö i
húfi að samkomulag takist um
endurskoðun visitölukerfisins.
Forsendur
Meðal þeirra forsenda sem
lagðar eru til grundvallar
spánni er að visitölubætur á
laun verði greiddar samkvæmt
núgildandi visitölukerfi allt
næsta ár en ekki verði um
grunnkaupshækkanir að ræða.
Niðurgreiðslum frá 1.
september verði haldið áfram i
núverandiformi enekki komi til
frekari niðurgreiðslur 1. desem-
ber n.k.
Viðskiptakjör verði svipuö og
á siðasta ári.
Fiskverð frá 1. október 1978
hækki um 8% eöa sama og
meðalhækkun. launa i fisk-
vinnslunni. Jafnframt er gert
ráö fyrir sömu hækkun á
fiskverði og nemur launa-
hækkunum f iskvinnslufólks.
Gert er ráð fyrir að 8% fisk-
verðshækkunin 1. október n.k.
verði greidd úr Verðjöfnunar-
sjóði fram til ársloka 1978. 1
janúár á næsta ári verði Verö-
jöfnunarsjóður tómur og þá
verði að koma til 12,5% gengis-
felling, sem þýöir rúmlega 14%
hækkun á erlendum gjaldeyri.
Gert er ráð fyrir að fisk-
vinnslan verði rekin með 2%
halla eftir vaxtalækkun.
Dollarinn i kr. 487
Samkvæpnt spánni kemur
fram að hækkun launa á tima-
bilinu 1. mai s.l. til loka ársins
1979 verði 189%. Sé miðaö við
100 þúsund kr. laun 1. mai yrðu
samsvarandi laun 1. desember
1979 kr. 289.062. Gengi Banda-
rikjadollars yröi um áramótin
1979-1980 kr. 487,00 en er i dag
kr. 307.90.
—GBG
þaó þarf ckki
hálstauí
'Oóali