Vísir - 21.09.1978, Blaðsíða 5
vism Fimmtudagur 21. september 1978
5
Leigu- og söluibuðir sveitarfélaganna
Framkvœmdir hafnar
við nœr 500 ibúðir
Lokið við 290 ibúðir af rúmlega eitt þúsund
,,Frá þvi að Alþingi
setti lög um leiguibúða-
áætlun sveitarfélagana
utan Reykjavikur árið
1974 hefur fram-
kvæmdum að mestu
verið lokið við 290
ibúðir. _ , . .
Fra þvi haustið
1977 hafa verið gerðir
lánasamningar um
byggingu 148 ibúða til
viðbótar, þannig að
framkvæmdir hafa
hafist við 438-ibúðir”,
sagði Sigurður E.
Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri
Húsnæðismála-
stofnunar rikisins, i
samtali við Visi, þegar
hann var inntur eftir
fjölda ibúða sem
byggðar hafa verið
samkvæmt ákvæðum
um leiguíbúðir á
vegum sveitarfélag-
anna.
tbúbir sem eru byggöar á
vegum sveitarfélagana eftir
reglum um leigu- og sölufbúöir
fá 80 prósent fjármagnsins
lánuð úr byggingasjóði rikisins.
I Visi í gær var deilt á þetta
fyrirkomulag. Þar kom fram
hjá Viglundi Þorsteinssyni
framkvæmdastjóra steypu-
stöðvarinnar BM Vallá, að
mikill hluti þessa húsnæðis
væru einbýlishús og raöhús.
Húsbyggjendur hefðu fengið á
s.l. ári lán á bilinu 5 til 10
milljónir króna, meðan höfuð-
borgarbúi fengi 2,7 milljónir
lánaðar. Þetta sagði Viglundur
m.a. annars valda hinum mikla
samdrætti sem orðiö hefur i
byggingariðnaöinum á höfuð-
borgarsvæðinu á s.l. tveim
árum.
„1 upphafi skyldi endinn
skoða og það hefðu menn betur
gert árið 1974 þegar þessi lög
voru sett. Viglundur bendir
réttilega á að með þessu fyrir-
komulagi þá séu ibúðir utan
Reykjavikur fjármagnaðar meö
svona háu hlutfalli, en það er
vissulega gert i Reykjavik
einnig, þó aö það sé i ööru formi.
Verkamannabústaöir hafa verið
byggðir hundruðum saman á
þessu timabili i Reykjavik og
þær ibúðir eru einnig fjár-
magnaðar meö 80 prósent láni”,
sagði Sigurður. Hann benti
einnig á að meö tilkomu leigu-og
söluibúða hefðu ibúöabyggingar
i verkamannabústööum aö
verulegu leyti fallið niður utan
Reykjavikur,, nema á nokkrum
stöðum, einkum i Hafnarfirði og
á Akureyri.
,,A þessu ári gerðum við ráö
fyrir að til bygginga leigu- og
söluibúöa yrði varið 2137
milljónum króna. Enn sem
komiö er hafa ekki verið
greiddar út nema 617 milljónir.
Gert er ráö fyrir þvi að fram til
áramóta verði lánaðar um 500
milljónir til viðbótar og einnig
að samningar veröi geröir um
200 milljónir. Þannig að gert er
ráð fyrir um 1300 milljónum I
lánsfé, sem er mun lægri upp-
hæð, en gert hafði verið ráö
fyrir”, sagði Siguröur.
-KP.
Hjólabrettin svonefndu hafa nú hafið innreið sina
hér á landi, en þau hafa notið verulegra vinsælda
viða erlendis um nokkurt skeið. Þessi leikföng eru
hins vegar nokkuð vandmeðfarin, og þvi betra að
fara varlega.
Visismynd: JA
SMURSTÖDIN
Hafnarstrœti 23
er í hjarta
innar
Smyrjum og geymum bílinn
á meðan þér eruð að versla
FLUGLEIÐIR:
KANNA TILBOÐ UM
BREIÐÞOTUKAUP
,,Það verður reynt að komast
til botns i þvi á næstu dögum,
hvort gengið verði að tilboði um
aö Flugleiðir eignist Douglas
DC-10 breiðþotu með kaupleigu-
skilmálum”, sagði Sveinn
Sæmundsson, blaðafulltrúi
félagsins, i viðtali við Visi.
,,Viö höfum fengið tilboð þess
efnis frá Seaboard World
Airlines, sem höfðu milligöngu
um að viö eignuöumst DC-8 þot-
ur okkar meö þeim hætti. Þaö er
þó mikið óunnið i þessu ennþá
og margt eftir að athuga”.
Sveinn sagði ennfremur, að
það væri ekkert nýtt að Flug-
leiðum væru boðnar flugvélar,
hér væru sifellt á feröinni sölu-
menn frá Boeing og McDonnel-
Douglas verksmiðjunum. Þetta
er þó fyrsta sinni, sem breiöþota
er boðin með kaupleiguskilmál-
um.
DC-8 þotur Flugleiöa taka 249
farþega, en DC-10 þoturnar 380.
Þær eru þriggja hreyfla, með
tvo undir vængjum og einn i
stéli.
Ekki treysti Sveinn sér til aö
nefna tölur um kaupverð, eða
hugsanlega rikisábyrgð. Flug-
leiðir fengu á sinum tima rfkis-
ábyrgð fyrir 13,5 miiljón dollara
lántöku vegna kaupa á DC-8
þotum, en það hefur nú mikiö
verið grynnkað á þeirri skuld.
Sömuleiðis var fengin rikis-
ábyrgð fyrir rekstrarláni, sem
ekki hefur veriö notuð. —ÓT.
Varist eftirlíkingar
Laugavegi 37 Laugavegi 89 Hafnarstrœti 17 Glasibœ
12861 13008
13303