Vísir - 30.09.1978, Síða 9
vism Laugardagur 30. september 1978
9
GOTUNNI
Hverter álít þitt á meguninni umhverfis landið
og telur þú að hættulegtsé orðið að neyta þess
fiskjar sem veiddur er við strendur landsins?
'Magnús Guðmundsson fyrrver-
andi sóknarprestur: ,,Ég held
að það sé ekki orðið hættulegt
enn að borða þann fisk sem
veiddur er við strendur lands-
ins. Þetta er ekki orðið eins
slæmt og við Eystrasalt þar sem
fólki er bannað að neyta þorsk-
lifrar.
En mengum er aldrei góð og
þess vegna þarf að sporna við
henni. Ég tel að það verði helst
gert með auknu eftirliti með
bátum á hafi úti og eins verk-
smiðjum. Það er til dæmis orðin
nokkur mengun hér við
Reykjavik og það þyrfti endi-
lega að færa frárennslin lengra
frá landi.”
Jón Kr. Gunnarsson, forstjóri
Sædvrasafnsins: ,,Ég te) að
mengunin sé ekki svo mikil að
fiskurinn sé orðinn hættulegur.
En við verðum að fara mjög
gætilega svo að sjórinn hér
spillist ekki eins og viða hefur
orðið. Það er sérstök hætta á
oliumengun samfara
skipsköðum. Það sem skeð
hefur á Seyðisfirði að undan-
förnu minnir ónotalega á að það
er bráðnauðsynlegt að fara
mjög varlega i framtiðinni i
þessum efnum.
Halldór Vigfússon vinnur i til-
raunastöðinni að Keldum: ,,Ég
veit nú ekki til þess að það sé
orðið hættulegt að borða þann
fisk sem veiddur er hér við
strendurnar. Þó gæti það orðið i
náinni framtið.
Mér er meinilla vtð alla
mengun. Til þess að koma i veg
fyrir hana þarf að auka hrein-
læti og aðgæslu alla og hugarfar
almennings að breytast mjög.
Ef heldur áfram sem horfir
verður eflaust i framtiðinni
hættulegt að neyta þess fiskjar
sem hér veiðist en ég veit ekki
til þess að svo sé komið enn.”
Dr. Sturla Þórðarson vinnur á
rannsóknarstof nun land-
búnaðarins: „Niðurstöður
rannsókna sýna það að það er
ekki hættulegt. tslenskur fiskur
hefur alltaf þótt lostæti og þykir
enn.
Aftur á móti er nauðsynlegt
að koma i veg fyrir það með öll-
um tiltækum ráðum að sjórinn
hér mengist.
Við tslendingar erum aðilar
að alþjóðasamþykkt (og raunar
erum við frumkvöðlar i barátt-
unni við það að halda sjónum
hreinum) þar sem segir að
bannað sé að hella oliu i sjó úr
skipum eða borholum og að
fyllstu varúðar skuli gætt i þess-
um efnum.”
KROSSGÁTAH
HÚSBYGGJENDUR
Húsbyggjendum sem þurfa á rafmagnsheimtaug i hús sin að halda
I haust eða vetur, er vinsamlega bent á, að sækja umhana sem allra
fyrst, þar sem búast má við verulegum töfum á lagningu heim-
tauga, þegar frost er komið i jörðu. Gætið þess að jarðvegur sé
kominn i sem næst rétta hæð, þar sem heimtaug verður lögð og að
uppgröftur úr húsgrunni byggingarefni eða annað hindri ekki
lagningu hennar.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar á heimtaugaafgreiðslu
Rafmagnsveitunnar, Hafnarhúsinu 4. hæð. Simi 18222.
F>3 RAFMAGNSVEITA
^ REYKJAVÍKUR
ftséssggggss&sséss
Fiska
vatnagróður
nýkominn
Fiskabúr og allt
tilheyrandi fiskrœkt
GUllFISKABÍIDIN
Fichersundi
simi 11757
Grjótaþorpi