Vísir - 04.10.1978, Blaðsíða 5

Vísir - 04.10.1978, Blaðsíða 5
Miövikudagur 4. október 1978 5 Halldór Laxness um nýju bókina: ,Ég er að vissu leyti aðalpersónan' ,, Bókin er nú að verða til. Ég er í síðasta kapitulan- um í dag og hitt er komið í prentsmiðjuna, held ég," sagði Halldór Laxness þegar Vísir ræddi við hann í gær um ný ja bók sem Helgafell mun gefa út ef tir hann á næstunni. Nafn bókarinnar sagði Halldór enn ekki vera fast- ráðið en hún f jallar um einn vetur höf undar í Reykja- vík á æskuárunum og tilheyrir þriggja binda skáld- sögueða öllu heldur ritgerðum í skáldsöguformi, eins og höfundur vill nefna bækurnar í þessum flokki Úngur ég var. Höfundur aðalpersónan „Ég er að vissu leyti aðalper- sónan i þessum bókum,” sagði Halldór. ,,bó mundi ég ekki kalla þetta ævisögu. Hún er um allt milli himins og jarðar. Um- ræðuefnið er ekki takmarkað. En þó eru engin efni tekin sem ekki eru þess verð að hugsað sé um þau og ég vona að ég geti vakið áhuga lesandans á.” Ritform bókanna sagði Hall- dór vera þekkt fyrirbrigði. Margar af bókum Strindbergs væru til dæmis skrifaðar á þennan hátt. Og ein best selda bókin á siðari árum Ragtime væri einnig i þessu formi. Þar segði höfundur ævisögu sina i gegnum sérstakan timaspegil. „Mönnum fellur ákaflega vel að lesa þetta form, það sést á þvi hve vel fyrri bækurnar tvær gengu út.” Eins og áður sagði fjalla þess- ar þrjár bækur um æskuár höf- undar. Hann var að þvi spurður hvers vegna hann tæki þetta ritform bókanna. Fyrri eru: í túninu heima og timabil ævi sinnar til umfjöllun- ar umfram annað. „Ég er nú ekki alveg tilbúinn til að svara þessu. Ég hef skrifað einar 50 bækur um mina daga og það er út af fyrir sig ánægjulegt rannsóknarefni, hvers vegna höfundurinn tekur upp þetta efni á þessum tima. Liklega er það meðal annars vegna þess að þegar aldur fær- ist yfir fer maður að sjá æsku sina i nýju ljósi.” Spurningu ósvaraö „Ætli ég sé ekki búinn að skrifa nóg?” var svar Halldórs Laxness, þegar hann var spurður i sjónvarpsviðtali ný- lega hvert væri næsta viðfangs- efnið. Við spurðum hann hvort túlka ætti þetta svar þannig að hann hygðist hætta skriftum eft- ir þessa bók. „Sú sem ég lagði þessa spurningu fyrir, svaraði ekki svo þeirri spurningu er ósvarað,” Halldór Laxness á heimili sinu aö Gljúfrasteini I gær. Visismynd: JA „Ég hef oft spurt að þvi i En það er svona maður fer af ekki hvaðþaðersem veldur þvi. gegnum langan tima hvort ég stað aftur meö eitthvert efni Það er helst fyrir djúpsálar- væri ekki búinn að skrifa nóg. sem gripur huga manns. Ég veit fræðinga að finna það út.”—SJ Skóhöllin REYKJAVIKURVEGI 50 SÍMI 54420 Fœst aóeins i: Teg. 7702-54 No. 3 1/2-7 1/2 Verð 32.315 Vinrautt Teg. 7301-57 No. 3 1/2-7 1/2 Verð 30.575.- Litur: Beige Hausttískan ffrá Teg. 6900-61 No. 3-7 Verð 28.790,- Dökkbrúnt Teg. 6108-1 No. 3-7 Verð 28.790,- Beinhvitt. I 85 19 PANZL Teg. 6163 6001-6165 No. 3-7 Verð 30.050,- Litur: Kamellitur — Rauðbrúnt. Teg. 7800-51 No. 4-8 Verð 32.315,- Dökkbrúnt. Möguleiki að bretta nið- ur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.