Vísir - 04.10.1978, Blaðsíða 24

Vísir - 04.10.1978, Blaðsíða 24
V wr 4. ekt. 1978 Bflarnir eftir áreksturinn i Lækjargötu. Visismynd: ÞG. Ekkert lát á árekstrunum Þrir árekstrar uröu í Reykjavik i morgun. Allir voru þeir fremur smávægilegir. I Lækjargötunni varö einn og er taliö aö sá hafi oröiö vegna isingar, sem mun hafa myndast út af götuþvotti. Engin slys uröu á mönnum i þessum árekstrum. Segja má aö ekkert lát veröi á árekstrahrinunni. Frá miönætti i fyrrinótt til jafnlengdar i gær uröu hér tuttugu árekstrar. —EA Ákœrður ffyrir nauðgun Ákæra hefur nú veriö gefin útá hendur piltinum sem i júni sl. braust inn i ibúð i Reykjavik, stal um 200 þúsund krónum og nauögaði húsmóöurinni. Pilturinn, sem er 18 ára gamall, komst inn i kjallaraibúö i Vesturbæn- um gegnum eldhús- glugga. 1 stofunni fann hann peningana, en siöan lagði hann leið sina inn I svefnherbergiö, þar sem ung kona lá sofandi. Hann útbjó sér grimu i eldhús- inuog greip þar hnif, sem hann notaði til aö ógna konunni meö. SJ" Lést effir slys Fjörutíu og eins árs gamall maður úr Kefla- vik lést á Borgarspítalanum á mánudag af völdum meiðsla, sem hann hlaut við vinnu 17. september. Maðurinn hét Eirikur Sigurjónsson, til heimilis aö Smáratúni 10, Keflavik. Hann var fæddur 17. ágúst 1937. Eirikur lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn. Eirikur var aö vinna viö höfnina i Keflavik, þegar slysið varö. Hann var að lyfta bryggjustaurum meö krana á bil sinum. Mun staur hafa falliö á hann. Eirikur hlaut mikil inn- vortis meiðsl, sem drógu hann til bana. —EA. Ákvörðun um heimabruggiö vefst fyrir þeimt ..Þetta er mál 3ja ráðuneyta" sagðí Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra "Ég tel að þetta sé allavega mál þriggja ráðuneyta", sagði Svavar Gestsson, viðskiptaráðherra við Vfsi í morgun, þegar spurt var um þau tilmæli fjármálaráðuneytisins að taka gersveppi af frílista og fá forræði þeirra i hendur ÁTVR. „Samstarfsmenn minir hér telja aö viö getum tekiö vöru af frilista, en hins vegar þurfi lagasetn- ingu til aö fela einum aðila aö versla meö hana. Ég tel að dómsmála- ráðuneytiö eigi að hafa forystu um þetta mál, ef menn lita á það sem áfengisvandamál, en fjármálaráöuneytisins, ef aöalatriöiö er tekjutap. betta er nú niðurstaðan við fyrstu sýn. Ég fékk þetta bréf ekki fyrr en eftir hádegi i gær og ætli sé ekki best að segja að málið sé til nánari athug- unar i viðskiptaráðuneyt- inu”. Sjá einnig bls. 3. —ÓT. Stööugur straumur viöskiptavina var i Amunni i morgun, allir vildu ná i gersveppi áöur en landsfeöur taka fyrir þennan heimilisiönaö. Visismynd —JA. Félagsmála- ráðkerra um afstöðu bruna- málastjóra: „Mér er með öllu óskiljanleg fullyrðing bruna mála stjóra aö stjórnmálaskoöanir þess manns sem hann ætlar aö reka úr starfi, skipti hér einhverju máli”, sagöi Magnús Magnússon, félagsmálaráöherra, f tilefni af frétt Visis i gær, sem höfö var eftir Báröi Danielssyni. „Um stjórnmálaskoö- anir þessa manns er mér meö öllu ókunnugt og bendi á i þvi sambandi aö fyrrverandi félagsmála- ráöherra, Gunnar Thoroddsen, sem varla getur þá líka veriö flokks- bróðir hans, tók sömu af- stööu til brottvikningar- innar, samanber bréf hans til Landssambands slökkviliðsmanna frá 24. ágúst sl. Málið er hinsvegar þaö að samkvæmt lögum um réttindi og skyldur opin- berra starfsmanna er óheimilt og löglaust aö segja þeim upp störfum án nokkurra saka, nema viðkomandi starf sé lagt niður. Aödragandi málsins er sá aö brunamálastjóri gerði tillögur til ráðuneytisis um miklar skipulagsbreytingar á starfsemi stofnunarinn- ar. Þessar tillögur fólu meðal annars I sér aö ráðinn væri sérstakur trúnaðarmaöur fyrir stofnunina i öllum kjördæmum landsins, ,FrumMaup og smekkleysa samtals átta menn. Auk þessa, að tveir sér- fræðingar, bygginga- verkfræðingur og/eöa arkitekt væru ráönir i staö þeirra tveggja eftir- litsmanna, sem bruna- málastjóri hugsar sér aö segja upp störfum.” Brot á lögum „Slik útþensla, meö tilheyrandi kostnaðar- auka er ekki samrýman- leg þvi meginstefnumarki núverandi rikisstjórnar að vinna aö sparnaöi og hagræðingu i rikisrekstr- inum. Af þessum sökum fyrst og fremst hafnaöi ráöuneytið tillögum brunamálastjóra. Meö því eru engar for- sendur né lagaheimildir til fýrir brottvikningunni. Auk þess má benda á aö samkvæmt lögum um Brunamálastofnun skal brunamálastjóri ráða starfsmenn að höfðu samráöi viö Félagsmála- ráöuneytiö. 1 þvi ákvæöi felst einnig aö um brottvikningu starfsmanna gildi sama regla um samráö viö ráöuneytið. Þessu vakti stjórn Brunamálastofnunar sér- staka athygli á i bókun sinni um skipulagsbreyt- inguna. Það er þvi meö öllu rangt hjá bruna- málastjóra aö stjórnin hafi samþykkt uppsögn- ina. Uppsögn brunamála- stjóra er þvi einnig brot á lögum um Brunamála- stofnun. Hún er hreint frumhlaupogallt talhans um framfærslustofnun fýrir flokksbræður einber smekkleysa”. —óT. ,Áskrif endwm fjölgaði' um leið og Vísir hœkkaði í verði ,,Þaö ótrúlega gerö- ist um leið og blaöiö hækkaði, að rúmlega þrjátiunýir áskrifend- ur bættust við hjá VIsi”, sagði Davið Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Reykjaprents, útgáfu- félags Visis, i morgun. „örfáir áskrifendur sögðu blaðinu upp um mánaðamótin, en þó færri en búast hefði mátt við. Margir nýju áskrifendanna höfðu sérstaklega á orði, að með þvi að gerast áskrifendur að Visi vildu þeir styðja frjálsa fjölmiðlun og óháða blaöa- mennsku”, sagði Davið. ifMcð* höndlað efftir réttum reglum" — segir við- skipta- ráðherra um hcekkanir Vfsis og DB „Þessa afstööu VIsis og Dagblaðsins veröur auðvit- að að meöhöndla eftir rétt- um reglum”, sagði Svavar Gestsson, viðskiptaráð- herra, þegar Visir spurði hann i morgun um viðbrögð hans við þvi að þessi blöð hafa hækkað sölu- og áskriftarverð meira en hin blööin. Svavar sagöi aö siöan hann kom i ráöuneytiö heföi veriölegiöá öllum al- mennum veröhækkunum, en þó heföi hann strax hleypt i gegn hækkun á dagblöðunum, sem Visir og Dagblaöiöhafa nú aö engu. Nánar verður skýrt frá ummælum viöskiptaráö- herra i blaöinu á morgun. -ÓT liðsmenn mótmœla brunamála- stjóra Landssamb'. slökkvi- liðsmanna, $em mótmælti é sSnom tíma eindregið upp- sögn eftirlitsmanna Brunamálastofnun- arinnar, hef ur í bréfi, sem Vísi barst í morgun, mótmælt harðlega þeim um- mælum Bárðar Daníelssonar bruna- málastjóra, í Vísi í gær, að málið sé af pólitfskum t.oga. —ÓT Hvað vantarþig? HvaðvlltulasnBVið?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.