Vísir - 04.10.1978, Qupperneq 9
VISTR Miðvikudagur 4. október 1978
9
— burt með breskw þœtfina
H.Æ. Reykjavik skrif-
an:
Ég ætla að byrja á þvi að lýsa
yfir ánægju minni með leikritið
Skollaleik eftir Böðvar
Guðmundsson sem Sjónvarpið
sýndi á sunnudagskvöldið.
Bæði var, að leikritið var
skemmtilegt á að horfa og eins
voru allir þeir leikarar sem
fram komu i þættinum starfi
sinu vaxnir. Sem sagt mjög gott
leikrit.
En það er ekki allt eins gott
hjá þessu sjónvarpi okkar.
Hvenær i ósköpunum ætla
mennirnir sem þar stjórna að
hætta með þessa bresku fram-
haldsþætti sem nú tröllriða dag-
skránni á hverju einasta kvöldi.
Mér finnst að þeir sem eru
sama sinnis og ég, (ég veit að
þeir eru margir) ættu að taka
sig saman og útrýma þessum
þáttum úr islenska sjónvarpinu.
1 stað þeirra mætti halda
áfram með til dæmis Dave Allen
sem náði gifurlegum vinsældum
hér meðan að hann var i náðinni
hjá Sjónvarpsmönnúm.
Eins mætti auka til muna
þættina úr dýrarikinu. Það eru
fróðlegir þættir sem koma öll-
um til góða sem eitthvað langar
til að vita um aðrar skepnur en
þær sem ganga um á tveimur
fótum.
Það er fleira sem almenning-
ur saknar úr dagskránni. Þvi i
ósköpunum eru ekki sýndir
islenskir skemmtiþættir. Við
Islendingar eigum risastóran
hóp af fólki sem er vel fram-
bærilegt i slika þætti. Og oft á
tiðum er þetta fólk, sem hefur
atvinnu af þvi að skemmta öðr-
um, atvinnulaust. Þvi ekki að
virkja þetta skemmtifólk okkar
og gefa þvi tækifæri á að reyna
sig? Þetta hefur stöku sinnum
verið gert og þá viö góðan orö-
stir
Mig langar til aö lokum aö
þakka Bjarna Felixsyni fyrir
góða iþróttaþætti að undan-
förnu. Þar er maður sem er i
mikilli framför i sinu starfi, og
eins til þessaö skora á þá, menn inu að hefja sýningar á Dave
sem ráða ferðinni hjá Sjónvarp- Allen svo fljótt sem verða má.
Framkomo sem b’rtn-
or á saklausum
K.J. skrifar:
Ég vissi að kerfið er einvaldur
á Islandi en það sem ég varð
fyrir af hendi Rafmagnsveitu
Reykjavikur var eitt hið gróf-
asta sem ég hef komist i kynni
við , ennþá að minnsta kosti.
Rafmagnsreikning fæ ég þann
16. september sem dagsettur er
þann 14. september og greiði
hann þann 20. Þann sama dag
kem ég heim klukkan 18.00 og er
þá húið að loka fyrir rafmagnið
án nokkurrar viðvörunar sem
ekki var von þvi 10 daga frestur
sá er tilgreindur er á reikning-
um var alls ekki liðinn. Og þess
utan var reikningurinn greidd-
ur.
Hér kem ég heim með ung-
barn sem þarf að fá sinn mat og
heita mjólk og hjá mér er full
frystikista sem lá undir
skemmdum og annað eftir þvi
þegar rafmagnið er tekið af ó-
undirbúið. Ég hringi i örvænt-
ingu minni i þann eina sima sem
ekki er háður skiptiborði hjá
Rafmagnsveitu Reykjavikur,
(Birgðastöð). En þar fékk ég
þau svör að enginn geti fram-
kvæmt opnun fyrr en að
morgni. Þetta hefði verið eðli-
legt ef ég hefði átt ógreiddan
reikning, en svo var alls ekki, og
finnst mér það algjört lágmark
þegar svona mistök verða að
einhvér geti i neyð komið frá
Rafmagnsveitu Reykjavikur og
leiðrétt þannig mistök þegar
þau bitna á saklausum. Hvernig
fæ ég uppbót fyrir öll þau óþæg-
indi hvað þá beinan kostnað og
jafnvel skemmdir, svo sem á
matvælum i frysti fyrir fleiri
þúsundir króna?
Spyr sá sem ekki veit.
UMSJÓN: STEFÁN KRISTJÁNSSON SÍMI: 86611
húsbyggjendur
ylurinn er
Afgreiðum einangrunarplast á
Stór-Reykjavíkursvæðið frá
mánudegi — föstudags.
Afhendum vöruna á byggingarstað.
viðskiptamönnum að kostnaðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmálar
við flestra hæfi.
Borgarplast
Borgarnesi | »imi 93 7370
kvöld 03 helganimi 93 7355
B JÖRIMÍIMIVI
Smurbrauðstofan
Njálsgötu 49 — Simi 15105
Sparið EKKI sperin
en sparið í innkaupum
Dreng|aleðurjakkar kr. 12.900.00
Sailor jakkar 1
Kvenpils
Urval herrabinda
Peysur ffrá
Skyrtur ffrá
og margt margt ffleira
Alít á útsöluverði
Lftið við á loftinu
12.900.00
4.900.00
650.00
2.500.00
1.450.00
Loftið
^3 Laugavegi 37
1
Cftarfet c! If»e Ibfx
* snyrtivörur
Mjög fjölbreytt lína dásamlegra amerískra snyrti-
vara fyrir allar húðgeröir og öll tækifæri. Heims-
fræg og vióurkennd lúxusvara framleidd í Frakk-
iandi úr bestu fáanlegum hráefnum með fullkomn-
ustu aóferðum, sem þekkjast, eftir uppskriftcfm,
sem nýta aila nýjustu efnafræði- og tækniþekkingu
nútímans.
Hagstætt verð miðaö við gæði.
Einnig aðrar snyrtivörur, t.d.:
CKristian Dior REVLON * SANS SOUCIS jnWpRlT[
RC max Factor phyris
LÍTIÐINNOG LÍTIÐÁ
LAUGAVEGS APOTEK
snyrtivörudeikl