Vísir - 04.10.1978, Síða 14
14
Miövikudagur 4. október 1978 VISIR
SMJORBIRGDIR I LANDINU
HAFA AUKIST GÍFURLEGA
Framleiösla á 45% og
30% ostum var á tímabil-
inu 1. september 1977-31.
ágúst 1978 3.263 lestir.
Framleiðsluaukningin
var 41 %/ en samdráttur
varö í sölu á þessum ost-
um, en veruleg aukning í
sölu á bræddum ostum.
Flutt var út á verðlagsárinu
1842 lestir, en árið áður var út-
flutningur aðeins 662 lestir.
Birgðir 1. september sl. voru
14% meiri en i fyrra.
Mjólkurframleiðendur sem
leggja inn mjólk eru taldir vera
2.670, en þeim hefur fækkað um
3% árlega. Sala á nýmjólk hefur
enn minnkað en samtals voru
seldir 45,2 millj. litrar af mjólk.
Sala á rjóma var 2,9% meiri nú
en á fyrra timabili.
Aukning varð á sölu undán-
rennu um 18.8% og seldust 3,8
milljónir litra á siðasta ári.
Framleiðsluaukning á smjöri
var um 1,1% en það voru 1802
lestir. Birgðir 1. september sl.
voru tæplega 1300 lestir en það
var 38,6% meira en i upphafi
fyrra verðlagsárs.
Slátur — góö matarkaup
Slátur hefur lækkað i verði frá
þvi i fyrra, án þess að vera
niðurgreitt.
í Reykjavik selja Sláturfélag
Suðurlands og Afurðasala SIS
slátur og er verð á heilslátri
með sviðnum haus i smásölu
1227 kr. Fimm fryst slátur
kassa kosta 7.650 krónur hjá
Afurðasölu StS
Hjá Sláturfélaginu er hægt að
kaupa ófryst slátur og er verðið
kr. 1340.
—BÁ—
Ljóðf sem byggja
H
ekki á tilfinningu
u
3 «1331113
n Lli:OB3
Ijódmxli
„Við stunduOum nám utan-
skóla við Fjölbrautaskólann á
siðasta vormisseri og unnum þá
að þessari Ijóðabók. Viö erum
ekki sáttir við módernismann
sem rikir nú i ljóöagerð, þar
sem liann byggir meira á til-
finningum en orsökum og af-
leiðingum. Rómantisku skáldin
túlka mun betur eöli tilverunn-
ar,” sögðu þeir Ólafur Jóhann
Engilbertsson og Þorsteinn
Kári Rjarnason sem hafa gefið
út saman ljóðmælin „1 MISTRI
VULCANS”. Þeir eru báðir 18
ára og stunda nám i mennta-
deild Fjölbrautaskólans.
Eitt ljóö i bókinni sömdu þeir
félagar saman en aö ööru leyti
eru þau samin af öðrum hvor-
um.
Þorsteinn á fleiri ljóð i bókinni
en Ólafur hefur gert allar
teikningar.
„Efni ljóðanna er byggt á
heimspeki i trúarlegu ljósi
symbólisma. I öðru lagi má
segja að þau byggist á hinum
þremur meginuppsprettum
heimsmenningarinnar:
Menningu Hebrea, griskri forn-
menningu og austurlenskri
trúarspeki. Við notum þessi
atriði sem leiðarljós en
reyndum þó að vera sjálf-
stæðir,” sagði Þorsteinn sem
bætti þvi við að þeir væru báðir
fermdir og skirðir en væru ekki i
þjóðkirkjunni. „Við getum ekki
fallist á það að eiliföarvera hafi
einhvern timann byrjað að vera
til. Neisti guðdómsins er kjarni
manns og þvi hlýtur maðurinn
að vera jafngamall guði. Það
sem á sér ekki upphaf getur
ekki átt sér endi og öfugt.”
Þeir kváðust hafa byrjað að
yrkja 14-15 ára gamlir. „Það
voru þó ekki ljóð i sama
skilningi og þau sem eru i bók-
inni. Það var ekki fyrr en eftir
að við urðum utanskóla sem við
gátum farið að kynna okkur
heimspeki og trúarbrögð. Þá
gátum við farið að yrkja Ijóð
sem ekki eru byggð á tilfinning-
um,” sagði ólafur.
Ólafur Engilbertsson og Þorsteinn Bjarnason eru ekki sáttir við
módernismann.
Mynd: ÞG
Dagmar Bragadóttir 9 ára og Helga Björg Svansdóttir komu til okkar
með fé sem þær höfðu safnað með þvi að halda tombólu. Þær seldu
miðann á 50 krónur og náðu að safna 2.248 krónum sem þær báðu Visi
að koma á framfæri við Dýraspitalann.
Dagmar hefur áður staðið fyrir þvi að safna fé fyrir Dýraspitalann.
Mynd: ÞG
Hjálparsveitir skáta:
Samrœmt fjarskipta-
kerfi nœsta verkefni
,/Næsta stórverkefni
hjálparsveita skáta er að
koma sér upp samræmdu
fjarskiptakerfi. Þarna er
um mikinn kostnað að
ræða og raðast úrslit þessa
máls á viðbrögðum stjórn-
valda við umsóknum sveit-
anna um niðurfellingu á
tolli/ vörugjaldi og sölu-
skatti við innflutning á
fjarskipta- og björgunar
búnaði".
Þetta segir m.a. i tilkynningu
frá landssambandi hjálparsveita
skáta. En áttunda landsþing
Landssambandsins vekur athygli
á skýrslu vinnuhóps Almanna-
varnaráðs um jarðskjálfta á
Suðurlandi og varnir gegn þeim.
„Þingið hvetur rikisvaldið og
sveitarstjórnir á Suöurlandi til
skjótra og markvissra aðgerða.’
I samstarfssamningi við Al-
mannavarnir rikisins hafa Hjálp-
arsveitir skáta tekið að sér viða-
mikil verkefni svo sem: fyrstu
hjálp á vettvangi, sjúkraflutn-
inga, starfrækslu og uppsetningu
fyrstu hjálparstöðva og aðstoð
við uppsetningu og rekstur vara-
sjúkrahúsa.’
„Enda þótt hjálparsveitirnar
eigi allgóðan útbúnað er ljóst að
mikið skortir á til að sveitirnar
geti staðið sómasamlega við sinn
hluta ' samkomulagsins. Þar er
helst um að ræða skyndihjálpar-
búnað og fjarskiptatæki.’
Gód feeilsa
ei» gæfa
fevers maRRs
Tillagað krúska.
■"'/ Hentugt fsúrmjótk/;:
/ FÍfkt af trpfjgöfflfu Itf,/ -
r' ^áeiú/ry'naúðSýtíleg^.,
■■(meltingarstarfs*minni.
T ’ - f 1 ' jt- -■* ■ f ’
1 f * f 'Í.■J, ^ ■.a*'
Myntsafnarafélag íslands:
AFMÆLISPENINGAHUGMYNDIR ÓSKAST
OUum landsmönnum er hér
með boðiö að taka þátt i sam-
keppni um teikningu á minnis-
peningi i tilefni af 10 ára afmæli
Myntsafnarafélags Islands.
Peningurinn á að vera úr silfri
og verður i crown-stærð. Á
peningnum skulu kóma fram ár-
tölin 1969-1979 en félagið á afmæli
19. janúar á næsta ári.
Framhlið peningsins veröur sú
hlið sem nafn og/eða merki
félagsins er á og um það má gera
tillögur.
Verðlaun fyrir bestu teikning-
una verða 200 þúsund krónur.
Skila skal teikningum er skulu
vera 15 sm að stærð i pósthólf 5024
i Reykjavik 105 fyrir 1. nóvember
n.k.
—BÁ—
BILAVARAHLUTHt
Fiat 128 '72 VW 1300 '71
Taunus 17m '67 Escort '68
Cortina '68 Willys V-8
Land-Rover Volvo Amazon '64
BILAPARTASALAN
Hoföatuni 10, simi 11397.
Opió fro kl. 9 6.30, laugordaga
kl. 9-3 oy sunnudaga kl 13