Vísir - 28.02.1979, Síða 8
8
Miðvikudagur 28. febrdar 1879. VISIR
:Ævintýri Ungverjans
„The Boys from Brazil"
Mönnum er áreiðan-
lega óhætt að hlakka til
þess að fá myndina The
Boysfrom Brazil hingað
til Islands. Leikararnir I
þeirri mynd eru ekki af
verra taginu. Svo sem
Gregory Peck, Laur-
ence Olivier< James
Mason og Lilli Palmer,
svo einhverjir séu
nefndir. Peck og
Olivier fara með
aðalhlutverkin I mynd-
inni sem stýrt er af
Franklin J. Schaffner.
Handritið gerði Hey-
wood Gould og byggði
það á sögu Ira Levins.
Peck fer með hlutverk
Josef Mengele, sem
grunaður er um að hafa
myrt þúsundir gyðinga I
siðari heimsstyrjöldinni
i tilraunastarfsemi i
þeim illræmdu fanga-
búðum Auschwitz.
Mengele hvarf til Suður-
ameríku þar sem talið
er að hann sé enn. 01 i-
vier fer með hlutverk
Lieberman, nasistaveið-
arans sem er á eftir
Mengele. Meðfylgjandi
mynd sýnir atriði úr The
Boys from Brazil.
Anthony Hopkins I hlutverki búktalarans Corky Withers meft
figúruna Fats f myndinni Magic.
BÚKTALARINN
OG FÍGÚRAN
Eftir öllu að dæma
virðist mögnuð mynd á
ferð, þar sem er kvik-
myndin Magic. Það er
Richard Attenborough
sem leikstýrir. Handrit-
ið er samið af William
Goldman byggt á sam-
nefndri sögu hans. Sá
ágæti leikari Anthony
Hopkins fer með aðal-
hlutverkið í myndinni.
Leikur þar hlédrægan
búktalara, sem felur sig
á bak við persónuleika
figúru sinnar, Fats, og
notar hann til að komast
yfir sitt eigið óöryggi,
eða kannski er honum
stjórnað af fígúrunni...
Með önnur hlutverk fara
til dæmis Ann-Margret,
Burgess Meredith, Ed
Lauter og fleiri.
Tom Berenger I hlutverkl Andras og Alberta Watson I hlutverki
söngkonunnar Mitzi I myndinni In Praiseof Older Women.
Og fyrst við erum á
annað borð farin að
segja frá kvikmyndum,
þá látum við „In Praise
of Older Women" fylgja
með. Þar segir frá ung-
um Ungverja sem kemst
að því að hann laðast
helst að konum sem eru
öllu eldri en hann sjálf-
ur. Fylgst er með ævin-
týrum hans, bæði I
heimalandi hans og
Kanada. Með aðalhlut-
verkið fer Tom Bereng-
er, unga mannsins
Andras. Með önnur hlut-
verk fara Karen Black,
Susan Strasberg, Helen
Shaver, Marilyn Light-
stone, Alexandra Stew-
art og Alberta Watson.
Leikstjóri er George
Kaczender. Handritið er
samið af Paul Gottlieb,
byggt á sögu eftir Step-
hén Vizenezy.
Mengele (Gregory Peck) og Lieberman (Laurence Ollvier)
Umsjón: Edda Andrésdóttir