Vísir - 07.03.1979, Blaðsíða 16
LÍFOGLIST LÍFOGUST
Miðvikudagur 7. mars 1979.
vísm
LÍFOGLIST LÍFOGLIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST
Sigriður Björnsdóttir myndlistarmaöur viö eitt verka sinna.
Notaleg sýning
Málverkasýning Sigriöar
Björnsdóttur FÍM-salur-
inn :!;18.mars 1979.
Það er mjög ánægjulegt
aö FtM salurinn skuli
veraorðinn aö veruleika.
Þessi sýningarsalur er.í
senn rúmgööur, þægileg-
ur og vel lýstur. Þaökom
best i ljós á sýningu Sig-
riðar Björnsdóttur hve
lýsing hefur mikiö aö
segja. Hinar litlu myndir
hennar heföu ekki notiö
sin nema i góöu ljósi.
Annars er athyglisvert
hve flestar mynda Sig-
riðar á þessarri sýningu
eru smáar. Virtust mér
sumar þeirra við fyrstu
sýn vera hreinar lita-
stúdiur en við frekari
skoðun kom ýmislegt
annaði ljós. Margir halda
að litlar myndir séu auð-
veldari viðfangs en stórar
myndir þetta er mesta
firra. Litlar myndir kalla
oft á agaðri vinnubrögð.
Samvinna lita og forma
verður að vera góð ef
slikar myndir eiga ekki
að verða grautarlegar og
dauðar úr fjarlægð svo
eitthvað sé nefnt.
Sigriður leggur óhrædd
til atlögu við hinn smáa
myndflðt. Hún er mjög
persónuleg i litavali og oft
þar sem henni tekst vel
upp eru þessar litlu
myndir ljóðrænar.einlæg-
ar og segja ofurlitla sögu.
Til dæmis myndir no 41,
42 Vetrarleikir og Vetrar-
riki. Þessar myndir eru i
Myndlist
Ólafur M.
Jóhannes-
son skrif-
ar
fremur köldum litatón-
um. Þær tjá kulda og.
fegurð vetrarins og þótt
þær séu i eðli sinu óhlut-
lægarþá eru þær sprottn-
ar frá rikri náttúrukennd
og öðlast þannig ákveðna
merkingu.
Það er annars furðu
sjaldgæft að listamenn
náiað túlka veðrið eins og
það er rikur þáttur i lifi
okkar allra. Mættu ýmsir
sem við landslagsmálun
fást læra af Bruegel
gamla i þvi efni.
Ekki hefur Sigriður þó
alls staðar sigrast á hin-
um smáa myndfleti.
Myndin Alfaborgir er
fremur illa byggð. Það
skortir jafnvægi i mynd-
ina. Hinar dökku álfaver-
ur finnst mér ekki nógu
vel formaðar og bera
ofurliði hlutlausan bak-
grunn.
Ekki eru allar myndir
sýningarinnar smáar.
Mynd 6 er stór mynd i
glóandi litum. Þar beitir
Sigriður mismunandi
efnisáferð með mjög
góðum árangri. Tvær
aðrar stórar myndir no.
26 og 16 á sýningunni
finnst mér ekki eiga
heima þar þær rjúfa
heildarstemmninguna
enda af öörum toga
spunnar, þær eru hvassar
i andstæðu við þá mýkt
sem einkennir flest verk-
in. Þessi mýkt ásamt
innileik gerir þessa sýn-
ingu notalega. En er það
ekki einmitt notalegheit
sem okkur vantar?
—ÓMJ
Impression
weather & light
the temperament
the freedom
to observe
to love
to appreciate
the vitality
of the nature
the contrasts
the darks
of the distance
the rough, the smooth
waters
reflecting the sky
the busy / foreground my expression
Áhrif
veöriö og Ijósiö
eiginleikinn
frelsiö
til aö sjá
unna
og meta
kyngikraft
náttúrunnar
andstæður
skuggamyndir
fjarlægöarinnar
hin úfnu, hin stilltu
vötn
endurkasta himninum
hinum kvika
forgrunni tjáning min.
(Ó.M.J. sneri á isiensku)
ASTIR OG AFBRYÐI
í FYRIRRÚMI
íslenska óperan frumsýnir „Paglíacci"
Nú á laugardaginn 10.
mars veröur frumflutt
óperan II Pagliacci eftir
Leonocavallo. Er þaö Is-
lenska óperan ásamt Sin-
fóniuhljómsveit Heykja-
vikur sem flytur hana.
Eins og nafnið bendir til
er hér á ferðinni itölsk
ópera og er þetta þekktasta
verk Leoncavallos en hann
er bæði höfundur að tónlist
og texta. Fjallar hún um
leikflokk er kemur I
sýningarferð til litils bæj-
ar. Þar upphefjast ástir og
afbrýði og verður endirinn
all-sögulegur. Verkið bygg-
ir á sannsögulegum
heimildum en faðir
Leoncavallos var dómari
oghafðimeðmáliðað gera.
Að sögn forráöamanna
tslensku óperunnar er
ætlunin að halda fimm
sýningar á II Pagliacci og
þarf hátt á fjórða þúsund
sýningargesti til þess að
þessi uppfærsla standi
undir kostnaði en hann er
mjög mikill. Litið er um
opinbera styrki og vinna
félagar i Islensku óperunni
öll störf i sjálfboðavinnu.
Menn eru hins vegar orðnir
þreyttir á að vinna þannig
tvöfalda vinnu og sker
þessi tilraun úr um það
hvort framhald verði á
starfsemi íslensku
óperunnar. Það yrði skarð
fyrir skildi i islensku tón-
listarlifi ef óperuflutningur
legðist niður.
Helstu hlutverk i óper-
unni II Pagliacci eru i
höndum Elinar Sigurvins-
dóttur og Ólafar K. Harð-
ardóttur en þær syngja eitt
aðalhlutverkið, Neddu , til
skiptis. Magnús Jónsson
syngur Canio, Hákon Odd-
geirsson syngur Silvio,
Halldór Vilhelmsson syng-
ur Tonio og Friðbjörn Jóns-
son syngur hlutverk Peppe.
Stjórnandi er Garðar
Cortes, leikstjóri er Þurið-
ur Pálsdóttir en henni til
aðstoðar er Ingibjörg
Björnsdóttir balletdansari.
Sýningarnar á II Pagli-
acd verða i Háskólabiói og
verður frumsýning eins og
áður segir laugardaginn 10.
mars kl. 15 en önnur sýning
verður á sunnudag 11.
mars kl. 19.15. Miðasala er
i Söngskólanum frá 1-5 og
miðapantanir ! sima 21492.
—KR
Þau eru meöal þeirra er bera hita og þunga uppfærslunnar á 11 Pagliacci. Taliö frá
vinstri: Krystyna Cortes en hún hefur aöstoöaö viö æfingar, Garöar Cortes hljóm-
sveitarstjóri, Ólöf K. Haröardóttir er syngur eitt aöalhlutverkiö og Gunnlaugur Snæ-
varr framkvæmdastjóri Islensku óperunnar.
Visismynd: GVA
AKURtYRINGAR FLJOTIR
AÐ OPNA PYNGJUNA
— þegar listaverk eru annars vegar
Flestir sem til Akureyrar
hafa komið munu eflaust
kannast viö Galleri Háhól
og enn fleiri hafa heyrt
þess getiö. Sá sem rekur
staöinn heitir Óli G. Jó-
hannsson starfsmaður á
pósti og sima en ÓIi er
sjálfur fristundamáiari.
Blaöamaöur hitti Óia aö
máli á Akureyri og spuröi
hann hver hafi veriö tildrög
þess aö Galleri Háhóll
komst á laggirnar.
„Háhóllinn hefur nú
starfað i tvö ár en upphafið
var það að Myndlistarfélag
Akureyrar lagðist niður og
sýningarsalur Mynda-
smiðjunnar hætti rekstri.
Það varð til þess aö ég
réðst i að leigja Háhólinn”.
— Hvernig hefur rekstur-
inn gengið síöan?
„Hannhefur gengið mjög
vel.sérstaklega fyrsta eina
og hálfa árið. Núhafa hinir
föstu útgjaldaliðir hækkað
svo rosalega aðerfitt er að
láta tekjurnar af sýning-
unni standa undir þeim”.
— Reksturinn hefur sam
sagt staðið sjálfur undir
öllum kostnaöi? Þú nýtur
engrar opinberrar fyrir-
greiðslu?
„Nei, égfæ m.a. prósent-
ur af sölu myndanna ogað-
sóknin hefur verið það góö
að engin hörgull hefur
verið á þvi aö fá mynd-
listarmenn til að sýna
hér”.
— Hverju þakkar þú hina
góðu aðsókn?
„Hún er Myndlistar-
skólanum mikið að þakka
en i' honum eru um 150
manns, auk þess eru alltaf
stöðugar sýningar i Há-
hólnum.
Yfirleitt koma 700 manns
á sýningu hér en oft kemur
fyrir að 1400-1500 manns
komi á eina sýningu en
hver sýningstendur i um 10
daga”.
— Þú sagðir að það gengi
vel að fá listamenn til að
sýna hér. Hefur það alltaf
verið svo?
„Nei. Aður þurfti maður
að fara til Reykjavlkur til
að sækja myndlistarmenn
en nú er svo komið að vi'sa
þarf fjölda manna frá. Þaö
spurðist fljótt út að Akur-
eyringar hefðu geysimik-
inn áhuga á myndlist og
sala á verkum listamanna
væri góð hér.
Það má nefna að nú er
fullbókað i Háhólnum fram
I júni.
— Hvaö er framundan?
„Núna munu Akureyr-
ingar sýna hér. Það eru
Olfur Ragnarsson og Sig-
tryggur Júliusson. Siðan
mun Eirikur Smith sýna,
Baltasar kemur i mai og
einnig Jóhann G. Jóhanns-
son. Siðast I mai mun slðan
vera samsýningþeirra sem
sýnt hafa i salnum seinni
part vetrar”.
— Hvaða lærdóm er hægt
að draga af þessum rekstri
þinum?
„Nú fyrst og fremst þann
að hægt er að reka svona
sal án aðstoðar hins opin-
bera alla vega við eðlilegt
efnahagsástand. Einnig
þann að ekki er erfitt að
gera út á sparifjáreign
Akureyringa ef þeir fá góða
fjárfestingu I staðinn”.
— Þú hefur starfað að
fleiru en myndlistarmál-
um?
„Já, ég og nokkrir aðrir,
Kristján frá Djúpalæk,
Agúst Jónsson og Steindór
Steindórsson fyrrv. skóla-
meistari gáfum út bókina
„Óður steinsins”.
Það er ljóðabók með
LÍFOGLIST LÍFOGLIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LIF OG LIST LÍF OG LIST