Vísir - 21.05.1979, Page 10
10
vísn?
Mánudagur
21. mai 1979.
Hrúturinn
21. mars—20. aprll
Annaö fólk ber mikla virðingu fyrir skoð-
unum þinum, jafnvel þótt þær falli þvi
ekki alltaf i geð.Nú er hvorki staður né
stund til að sýna gætni. Vertu heldur eins
djarfur/djörf og ákveðin(n) og þér er
unnt. Þannig nærðu meiri árangri.
Þorpsbdar eltu Tarsan til klettsins þar sem áthöfnin átti að 5
fara fram, þeir vildu horfa á þegar guð þeirra tæki fórn þeirrí
Nautið
21. april—21. mai
Finndu leiðir til að þroska meðfædda
hæfileika þina. Vegur ástarinnar er bæði
þröngur og krókóttur. Það er þó engin
ástæða til að láta deigan siga. Allt er hægt
ef viljinn er fyrir hendi.
Tviburarnir
22. mai—21. júni
Ferðalög eru óráðleg i dag. Einhver hvet-
ur þig til að ná sambandi við manneskju
sem er langt i burtu og þú sérð ekki eftir
þvi ef þú lætur segjast.
Krabbinn
22. júni—23. júli
Allt er mjög óöruggt I dag og ýmislegt er
liklegt til að koma þér á óvart. Þú skalt
þvi varast að taka mikilsverðar ákvarð-
anir. Vertu varkár i orðum.
Ljónið
24. júli—23. ágúst
Eitthvað sem viðkemur vinum þinum er
mjög mikilvægt idag og þarfnast mikillar
umhugsunar. Reyndu aö troða þér ekki
fram I vinahópi. Gefðu öðrum tækifæri.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.
Raddir sem krefjást úrbóta eru mjög há-
værar um þessar mundir. Þær stangast
dálitið á við þinar hefðbundnu skoðanir.
Væri ekki hægt að fara milliveginn i stað
þess að righalda I blindni i viðteknar
venjur?
Vogin
24. sept.—23. okt.
Frestaðu ekki mikilvægum verkefnum
sem þú þyrftir að ljúka sem fyrst. Þú get-
ur verið vongóð(ur) um, að bráölega fari
að rætast úr fjárhagnum en það gerist þó
ekki af sjálfu sér frekar en flest annað.
Drekinn
24. okt.—22. nóv.
Þú ert I skapi til þess að ráðast á allar
hindranir og ryðja þeim úr vegi. Varastu
þó að ganga út I öfgar og mundu að það
eru margar hliöar á hverju máli sem þér
ber að athuga.
Bogmaöurinn
23. nóv,—21. des.
Viöskipti og fjármál eru efst á baugi I dag.
Varaðu þig á að láta ekki svlkja þig i við-
skiptum og þá gengur allt vel.
Skjótar ákvarðanir og ákveðin framkoma
er mjög heppileg. Þú ættir að reyna að
venja þig af þvi að tvistiga ef það kemur
til þinna kasta að leysa eitthvert vanda-
mál.
Vatnsberinn
21. jan—19. febr.
Þú færð miklar þakkir fyrir hjálp sem þú
veittir nýlega I flóknu máli. Beindu at-
hyglinni að fjármálum og sökktu þér nið-
ur I vinnuna með meiri ákafa. Um leið
eykst áhuginn.
Fiskarnir
20. febr.—20. mars
Dagurinn er tilvalinn til að gera við bilinn
eða önnur tæki á heimilinu. Eitthvert
flókið mál gæti komið til þinna kasta og þú
neyðist til að leysa það fljótt og vel.
Annars fer allt i handsskolum.