Vísir - 26.05.1979, Síða 9

Vísir - 26.05.1979, Síða 9
Laugardagur 26. mal 1979 9 Isíendingar kaupa fhnm sinnumfieirí dagbíöd en ítalir Þótt ekki liggi fyrir nákvæmar tölur um upplög ís- lenskra dagblaða mun láta nærri aö hérlendis séu dag- blöö gefin út í 110 til 120 þúsund eintökum að jafnaði á dag, en það svarar til þess að annað hvert mannsbarn á landinu væri dagblaðskaupandi. Sé aftur á móti tekið tillit til þess/ hve margir Is- lendingar eru á blaðakaupaaldri er Ijóst, að nánast hver maður sem búinn er að stofna heimili kaupir dagblað og sumir fleiri en eitt. Þessu til viðbótar bætast svo fjölmörg frettablöð víðs vegar um byggðir landsins, sem koma út viku- lega, hálfsmánaðarlega eða sjaldnar með staðbundn- ar byggðafréttir og greinar um hagsmunamál ein- stakra byggðarlaga. Færum úr 120 í 20 þúsund Islendingar eru tvimælalaust meðal mestu blaðlestursþjóBa Evrópu og jafnvel þótt viöar væri leitaö, miðað við fólks- fjölda, eins og eðlilegt er I slík- um samanburði. Neðstir á listanum munu vera ítalir, en þeir kaupa rúmlega fimm sinnum minna af dagblöð- um en við Islendingar, eða aö- eins eitt blaö á hverja 11,2 ibúa landsins, en viö aftur á móti eitt blað á hverja tvo ibúa, eins og áöur sagði. Þessi samanburður verður enn skýrari ef italska hlutfallinu er snúið upp á tsland. Miðað við sömu blaðakaup og á Italíu kæmu islensk dagblöð samtals út i aöeins 20 þúsund eintökum á dag f stað 110 til 120 þúsund ein- taka. ar um landið til þess að geta veitt betri fréttaþjónustu af landsbyggðinni, en Morgun- blaðið sinnti slfkri almennri inn- anlandsþjónustu eitt að nokkru marki fram að þvf. Líf vegna leiðarans Timinn, Þjóöviljinn og Al- þýðublaöiö hafa ekki hin slðari ár keppt á þessum vettvangi svo heitiö geti. Tlminn hefur að vlsu sinnt ýmsum séráhugamálum bænda úr hinum dreiföu byggð- um og Þjóðviljinn sagt fréttir utan af landi af „sinum” mönn- um og „sinum stöðum”, þegar það hefur þótt henta þeirri flokkspólitisku linu, sem ræður mótun blaðsins. Blessað Alþýöublaðiö er hvorki fugl né fiskur lengur. Það er hvorki fréttablað eða þjóðmálaumræöublað. Um það fjotmiölun Mogginná morgnana Islendingar eru sennilega fréttaþyrstari en margar ná- grannaþjóðanna og er liklegt aö fréttaþorstinn ráði allmiklu um, hve mikiö selst af dagblöðum hér á landi. AB visu gildir ekki hið sama um öll blöðin, enda leggja þau mismunandi mikla áherslu á fréttaþjónustu almennt. Morgunblaöiö hefur um árabil veitt betri og viðtækari frétta- þjónustu en önnur Islensk dag- blöð og með þvi að kaupa þaö fá menn einnig mikið pappirs- magn, þótt oft sé blaöið fljótles- ið. Þótt Morgunblaðiö hafi ekki lengur þá sérstöðu á islenskum blaðamarkaöi, sem þaö haföi hér áöur fyrr, finnst æði mörg- um þeir „þurfa” að kaupa það og telja sig varla geta farið til vinnu á morgnana án þess að hafa flett I gegnum Moggann meö morgunmatnum. Aukin fréttasamkeppni Vlsir og Dagblaðiö hafa sið- ustu árin veitt Morgunblaðinu verulega samkeppni varðandi almenna fréttaþjónustu bæði af innlendum og erlendum vett- vangi. Vlsir hefur siðustu mán- uðina gengið skrefi lengra en Dagblaðið á þessu sviði méö samningum við UPI-fréttastof- una varðandi sendingu slma- mynda og annarra fréttamynda af heimsviöburðum á hverjum degi og með kaupum á tækja- búnaði til myndsendinga sim- leiðis innanlands. Þá hafa bæöi Vlsir og Dag- blaöið komiö sér upp neti frétta- ritara og ljósmyndara vlös veg- Helst er að vænta endurskoð- unar og breytinga á Tlmanum á næstunni. Forráðamenn þess blaðs hrukku við á dögunum, þegar upplýst var að tapið á rekstri blaðsins heföi orðið tæp- ar 70 milljónir króna á siðasta ári, og munu væntanlega leggja heilann I bleyti næstu vikurnar og reyna að finna leiöir til þess að rétta hag blaösins. blaðsins. Tíminn ísjálfheldu Framsóknarmenn verða nú að gera upp við sig, hvort þeir ætla að gefa út alvörufréttablað i samkeppni við Morgunblaðiö á morgunmarkaðinum, eða hvort þeir ætla að sérhæfa Timann I landbúnaöarfréttum og pólitlk. Fjörkippur kom i Timann á sið- asta ári en varö skammvinnur og hefur allt sótt i sama farið aftur. Vegna þess, hve litil út- breiösla Timans er I þéttbýlinu við Faxaflóa reynist honum erfitt að ná til sin auglýsingum á neysluvörum og þjónustu á höfuðborgarsvæðinu og er þvi varla að vænta teljandi tekju- aukningaraf auglýsingum með- an efni blaðsins og útbreiðsla þess er óbreytt. Varla er mögu- leiki á að auka sölu blaösins á höfuðborgarsvæöinu nema þvi sé breytt efnislega, meðal ann- ars varðandi fréttaþjónustuna og viða um byggðir landsins hafa Dagblaöið og Vísir náð kaupendum af Tímanum. Forvitnilegt verður að fylgj- ast með hvaða stefnu ráöamenn Ólafur Ragnarsson ritstjóri skrifar mætti viðhafa svipuð orö og Guðmundur J. Guðmundsson hafði um rikisstjórnina I VIsi á dögunum, „hún lifir bara af þvi að hún þorir ekki að deyja”. Al- þýöublaðiö lifir bara af þvi að kratar þora ekki að láta það leggja upp laupana. Það er hvorki vegna kaupendanna eða útgefendanna, sem það lifir. Lifinu er eingöngu haldið i þvi vegna leiöarans. Ef blaðið kæmi ekki út myndi rödd Al- þýðuflokksins ekki heyrast reglulega á öldum ljósvakans sökum þess aö enginn leiðari bærist frá Alþýðublaðinu. Al- þýðublaðið er nú einungis f jórar siður og kemur aðeins út f jórum sinnum i viku, þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og laug- ardaga. A föstudögum fá áskrif- endur blaðsins Helgarpóst Al- þýðublaðsins i staðinn fyrir blaöið sjálft. Litlar breytingar Ekki eru sjáanleg nein ný teikn á lofti varöandi dagblaða- útgáfu Islendinga á næstunni. Morgunblaðið heldur forystunni varðandi stærð og efnismagn og hefur að undanförnu reynt aö auka fjölbreytni efnis slns um helgar með viðtölum og frá- sögnum af fólki til þess að vega upp á móti ööru helgarlesefni, sem i boöi er á blaöamarkaðin- um. Visir og Dagblaðið halda sinu frjálsa og sjálfstæða striki varöandi fréttir og efni. Frétta- efni Þjóöviljans verður áfram skrifaö eftir þeirri pólitisku for- skrift sem forráöamenn blaðs- ins hafa sett sér og kaupendur hans virðast sætta sig við. * og Dagblaðið, en til hins siðar- nefnda Timinn, Þjóðviljinn og Morgunblaðiö. Alþýðublaöið er i algjörum „sérflokki”. „Síðdegisblöð" á morgnana Hér á landi hafa fyrr nefndu blöðin veriö nefnd siðdegisblöð en hin morgunblöð vegna mis- munandi útkomutíma, en sú flokkun á ekki við erlendis, þar sem „síðdegisblöðin” eru yfir- leitt komin á sölustaði klukkan 8 til 9 á morgnana á útkomu- staðnum og berast fljótt til ann- arra staöa. Munurinn á vinnslu er aftur á móti sá, að siðasta efnið i morgunblöðin er unnið kvöldið fyrir útkomudag og fram undir miðnætti en siðasta grannalöndunum mun útkomu- timi þeirra færast enn framar á morguninn á næstu árum. En ljóst er, að það er ekki útkomu- timinn, sem ræður vinsældum þessara blaða, nema aö hluta til, fréttaþjónusta, efnisval og framsetning efnis i takt við tim- ann er þar þyngst á metunum. En ég er ekki þar meö að segja að hin blööin séu langt á eftir timanum, þótt þau séu frá- brugðin Visi og Dagblaðinu. Þegar á heildina er litiö eru Is- lensk dagblöð liflegri og að- gengilegri en dagblöð viöa ann- ars staöar I heiminum. Norður- landablöðin og mörg blöð i mið- evrópulöndum bera svipað yfir- bragð, en svo eru lika til blöð, sem eru svo Ihaldssöm, að þau birta ekki einu sinni myndir og fyrirsagnir eru aö jafnaði ekki stærri en eins eða tveggja dálka. Hvergi er þó afturhaldið meira varöandi blaðaútgáfuna en á Itallu og er þaö eflaust skýringin á þvi, hve dagblöð þar eru lítiö útbreidd. Ég nefndi það I upphafi þessara hugleiðinga, aö ef upplagi italskra dagblaöa væri deilt i Ibúafjöldann reynd- ist koma þar út eintak á hverja II ibúa. Hér eru tveir ibúar um hvert eintak. Engin breyting í 40 ár Þessu til áréttingar má nefna, aö íbúafjöldi ítalíu hefur vaxiö um 12 milljónir manna siðustu fjóra áratugina, en heildarupp- eíTsÍSLlM Timans taka I sumar til þess að ná honum úr þeirri sjálfheldu, sem hann er kominn i. Af dagblöðunum er þá einung- is ótalið Alþýðublaðið, sem eitt sinn var og hét fréttablað. Það heldur eflaust áfram aö koma út að nafninu til vegna leiðaralest- ursins I útvarpinu, en um fram- tið fylgirits þess, Helgarpósts- ins, skal engu spáð. Þar leggja hæfir blaðamenn sig alla fram, en fjárhagsgrundvöllurinn ræð- ur þvi, hve langlifur Helgar- pósturinn veröur. Frískleg fréttablöð vinna á Almennt má búast við að hér á landi veröi sama þróun varö- andi dagblöðin og oröiö hefur I flestum nágrannalanda okkar, að sjálfstæðu fréttablöðin vinni stööugt á. Þau fylgja þeirri meginlínu, að veita góða frétta- þjónustu og segja fréttirnar áöur en opinberar tilkynningar koma um tiöindin. Blaðamenn þeirra skrifa stuttar og aðgengi- legar fréttir sem miöast við að nútlmafólk með takmarkaðan tlma aflögu til blaðalesturs geti fylgst með þvi helsta sem er að gerast, án þess aö verja of mikl- um tlma til lestursins. Oll fram- setning efnisins er frisklegri en tiökast meðal dagblaða, sem háö eru flokkum eða fylgja gömlum hefðum varðandi efnis- meðferð og framsetningu. Auk þess leggja slik blöð yfirleitt meiri áherslu á myndir en al- mennt tlðkast meðal Ihaldssam- ari blaðanna. Miöaö við þessa skilgreiningu sjá menn, að til fyrrnefnda hópsins teljast hér á landi Visir “"-■"'9 91 i #»****V ; I * , r’f'atnu ' lOkto A milli 110 og 120 þúsund eintök dagblaða eru seld hér á landi. Minnsta blaðið að upplagi og stærð sést hér lesið. Slikt er sjaldgæf sjón. hönd á efni „siödegisblaðanna” er lögð milli klukkan fimm og sjö á morgnana. Hér á landi gilda svipaðar reglur varðandi morgunblööin. Frá siðasta efni þeirra er gengið kvöldið fyrir útkomudag, en Morgunblaðið hefur þó meiri sveigjanleika á vinnslunni en Tlminn og Þjóðviljinn þar sem þaö er unnið i eigin prentsmiðju og getur þvl beðið eftir fréttum lengur en hin blööin. Islensku „siðdegisblöðin” eru að hluta til skrifuö að morgni og halda opnu rými fyrir fréttaefni fram um eða yfir klukkan tlu á morgnana aö öllu jöfnu og fara bæði I prentun milli klukkan ell- efu og hálftólf. Þau eru þvi til sölu á götum Reykjavikur laust fyrir eða um hádegiö og eru komin i hendur sumra kaup- enda úti á landi fljótlega eftir hádegiö, ef vel stendur á ferö- um. útkomutfminn ekki aðalatriðið Það er þvl miklu eðlilegra að nefna þau hádegisblöð en sið- degisblöö og ef sama þróun veröur hér á landi og i ná- lag dagblaða er enn nánast hið sama og það var um 1940, eða 5 milljónir eintaka. Ibúar Itallu eru nú orönir um 57 milljónir. Fjölmiðlasérfræðingar telja, að miklu hafi valdið um þessa þróun, að Itölsk dagblöö séu skrifuð á mjög þungu máli, málsgreinar séu yfirleitt mjög langar og algengt sé að rekast á setningar sem i séu hundraö orð eða fleiri. Stjórnmálaflækjur og fræðilegar efnahagsmálaskýr- ingar séu fyrirferðarmiklar á siðum dagblaðanna og lesefni, sem almenningur hafi áhuga á, svo sem almennar fréttir, Iþróttafréttir, frásagnir af þekktu fólki og skemmtanalifi drukkni innan um langloku- greinar á óaölaöandi siðum blaðanna. Myndir séu fáar og fyrirsagnir og efnisskil óglögg. Allt þetta er taliö hafa valdið þvi, að Italir eru nú meðal á- hugalausustu blaðalesenda i Evrópu, — að þvl er dagblöð varöar. Timarit af ýmsu tagi eru þar aftur á móti mjög út- breidd, ekki sist teiknimynda- blöð, sem bæði börn og fullorðn- ir eru sagöir hella Sér yfir I stað dagblaðanna. ' —ÓR.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.