Morgunblaðið - 08.02.2001, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 25
OD
DI
H
F
G
67
30
Nóatúni 4 • 105 Reykjavík • Sími 520 3000 • www.sminor.is
• Öll heimilistæki í eldhúsið frá Siemens. Eldunartæki, gufugleypar,
kæliskápar, frystiskápar, uppþvottavélar, hrærivélar, brauðristar,
kaffivélar og flest önnur bráðnauðsynleg smátæki. Þú þrífst
betur með Siemens í eldhúsinu.
• Þvottavélar og þurrkarar frá Siemens sem snúast í þína þágu.
• Ryksugur frá Siemens á skotsilfursparandi kostakjörum.
• Ótrúlega ódýr smátæki frá Bomann.
• Þráðlausir símar og farsímar frá Siemens halda þér í sambandi.
• Firnagóðar tölvur frá Fujitsu Siemens sem allir vilja eignast.
• Tölvuprentarar frá Olivetti á hláturtaugakitlandi kostaverði.
• Faxtæki frá Olivetti á ómótstæðilegum spottprís.
• Ódýr og myndarleg sjónvarpstæki frá Dantax.
• Og síðast en ekki síst: Fjölbreytt úrval stórglæsilegra og
vandaðra lampa sem lýsa upp og fegra heimili þitt. Þú getur
augljóslega gert hreint ótrúlega góð kaup.
Láttu sjá þig. Engum flýgur sofanda steikt gæs í munn!
Gerðu reyfarakaup hjá okkur
þessa vikuna frá 5. – 10. febrúar.
Kjarakaupadagar
Allt þetta fyrir þig
frá
Ef keypt er fyrir 3.500 krónur eða meira
dagana 8.-11. febrúar í Clöru Kringlunni.*
Kringlunni
Sími 568 9033
Gjöfin inniheldur:
100% Time Release Moisture créme
- 24 stunda rakakrem, 7 ml.
Idealist - nýtt undrakrem, 7 ml.
Pure Color varalit.
Pure Color naglalakk.
Intuition Eau de parfum spray, 4 ml.
Fallega snyrtitösku.
(Verðgildi gjafarinnar er um 5.500 kr.)
*Meðan birgðir endast.
Estée Lauder sérfræðingar verða í Clöru
í dag, fimmtudag, frá kl. 13-18,
föstudag kl. 13-18 og
laugardag kl. 12-16.
HUNDRUÐ palestínskra flótta-
manna komu saman í flótta-
mannabúðunum Ain el-Helweb í
Líbanon í gær til að mótmæla kjöri
Ariels Sharons í forsætisráð-
herrakosningunum í Ísrael. Flótta-
mennirnir kveiktu í eftirmynd
Sharons með vampírutennur og
blóðugar hendur og á hana voru
skrifuð orðin „slátrarinn í Sabra og
Shatila er kominn aftur“ á arab-
ísku. Sharon fyrirskipaði innrás í
Líbanon árið 1982, þegar hann var
varnarmálaráðherra, og líbanskir
bandamenn Ísraela myrtu hundruð
palestínskra flóttamanna í Sabra
og Shatila sem ísraelskir hermenn
höfðu króað af. Ísraelsk rannsókn-
arnefnd komst að þeirri niðurstöðu
að Sharon hefði borið ábyrgð á
fjöldamorðunum og hann varð því
að segja af sér.
AP
Kjöri Sharons mótmælt