Morgunblaðið - 08.02.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ
16 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Innköllun hlutabréfa í Samherja hf.
vegna rafrænnar skráningar
Mánudaginn 12. febrúar 2001 verða öll
hlutabréf í Samherja hf. skráð rafrænt hjá
Verðbréfaskráningu Íslands hf. Þann dag
verða viðskipti með hlutabréf í Samherja hf.
stöðvuð á Verðbréfaþingi Íslands.
Hlutabréfin hafa verið innkölluð með birt-
ingu auglýsingar í Lögbirtingablaðinu í sam-
ræmi við lög um rafræna eignarskráningu
verðbréfa. Athygli hluthafa er vakin á að hin
áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða
ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila
þeim til félagsins.
Þeir, sem eiga takmörkuð réttindi í hluta-
bréfum Samherja hf., svo sem veðréttindi,
skulu koma rétti sínum á framfæri við við-
skiptabanka sinn, sparisjóð eða verðbréfa-
fyrirtæki, sem gert hefur aðildarsamning við
Verðbréfaskráningu Íslands hf.
Hluthöfum er bent á að koma að athuga-
semdum, ef þeir telja að eignarhald þeirra sé
ekki réttilega skráð. Athugasemdir berist
hlutaskrá Samherja hf., Glerárgötu 30,
600 Akureyri, eða í síma 460 9000.
Hellu - Undirritaður hefur verið
stofnsamningur nýs einkahluta-
félags Golfklúbbsins Hellu Rang-
árvöllum (GHR) og átta sveitar-
félaga í Rangárvallasýslu um
rekstur golfvallarins á Strönd.
Golfklúbburinn hefur að undan-
förnu leitað leiða til að styrkja
rekstrarforsendur sínar á vallar-
svæðinu á Strönd en að sögn Ósk-
ars Pálssonar formanns GHR er
klúbburinn fámennur og stendur
ekki einn undir þeim rekstrar-
kostnaði sem fylgir því að reka 18
holu völl með tilheyrandi tækja-
búnaði og húsakosti.
„Það má segja að við séum að
glíma við uppsafnaðan vanda til
nokkurra ára, félögum klúbbsins
hefur farið fækkandi á undanförn-
um árum en á sama tíma hefur átt
sér stað mikil uppbygging á svæð-
inu.
Við höfum verið að fjárfesta í
tækja- og vélbúnaði en stærsti bit-
inn er kaup á gamla húsinu á
Strönd sem nýlega fór í eyði.
Hagsmunamál héraðsins
Að nýja samningnum standa
sveitarfélögin Ásahreppur, Holta-
og Landsveit, Djúpárhreppur,
Rangárvallahreppur, Hvolhreppur,
Fljótshlíðarhreppur, V-Landeyja-
hreppur og A-Eyjafjallahreppur
ásamt GHR en segja má að með
honum fáist staðfesting á því hve
nauðsynlegt er að halda starfsemi
sem þessari innan héraðs. Auk
þess að vera góð aðstaða fyrir
heimamenn til að iðka golfíþróttina
hefur völlurinn verið vinsæll meðal
golfara af suðvesturhorninu sem
ekki láta sig muna um að skreppa
austur til að taka nokkra hringi.
Þá hefur mótahald stóraukist og
að sögn Óskars liggur fyrir að
vellinum hefur verið úthlutað
Íslandsmeistaramóti árið 2002,
Íslandsmóti öldunga árið 2003 og
Íslandsmóti unglinga árið 2004.
Í samkomulagi aðila kveður á
um að auk reksturs vallarins, við-
halds tækja og húsnæðis verði ráð-
ist í að endurbyggja húsið á
Strönd sem golfskála, útbúa nýtt
æfingasvæði í nágrenni hans og út-
búa stuttan æfingavöll á gömlu
túnunum við Strönd. Félagið mun
hafa frumkvæði að skipulagningu
sumarhúsabyggðar í brekkunni
vestan við húsið og markaðssetn-
ingu svæðisins meðal fyrirtækja,
starfsmanna- og stéttarfélaga.
„Við stefnum að því að taka nýj-
an golfskála á Strönd í notkun
næsta sumar eða í síðasta lagi á
næsta ári en þá verður GHR 50
ára. Það er gaman að geta þess að
stofnandi og fyrsti formaður
klúbbsins, Helmut Stolzenwald,
hefði orðið 100 ára 4. febrúar sl.,
daginn fyrir þessa undirritun,“
sagði Óskar Pálsson.
Í stjórn Strandarvallar ehf. sitja
fyrir GHR Óskar Pálsson, Þórir
Bragason og Guðmundur Magn-
ússon en f.h. sveitarfélaganna
Heimir Hafsteinsson og Ragnar
Ólafsson.
Hlutafélag um
rekstur golfvall-
arins við Hellu
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Stofnsamningurinn undirritaður. Frá vinstri: Óskar Pálsson, GHR, Guðmundur Svavarsson, Hvolhreppi, Óli Már
Aronsson, Rangárvallahreppi, Heimir Hafsteinsson, Djúpárhreppi, og Kristinn Jónsson, Fljótshlíðarhreppi.
Selfossi - Framkvæmdir við endur-
nýjun á rishæð Ráðhúss Árborgar
á Selfossi eru langt komnar. Á síð-
astliðnu ári var unnið við endur-
byggingu hússins, lagfæringar á
þaki og þakkanti ásamt endurnýj-
un rishæðarinnar. Starfsemi fé-
lagsmálasviðs Árborgar verður á
rishæðinni ásamt því sem þar verð-
ur fundarsalur bæjarstjórnar og
nefnda sveitarfélagsins. Gert er
ráð fyrir að rishæðin verði tekin í
notkun með vorinu.
Kostnaður við endurbyggingu
hússins nam 43 milljónum króna á
síðasta ári og í ár er gert ráð fyrir
33,8 milljónum til verksins með
húsgögnum. Heildarkostnaður við
Ráðhúsið er 321 milljón króna,
miðað við verðlag í dag, frá því það
var keypt og að meðtöldum end-
urbótum sem gerðar hafa verið á
því. Kostnaður á hvern fermetra
nemur um 160 þúsund krónum. Að
sögn bæjarstjóra er kostnaður við
byggingu nýs leikskóla talinn 190
þús á hvern fermetra.
Ráðhúsið þjónaði áður starfsemi
Kaupfélags Árnesinga, þar voru
verslanir og skrifstofur auk íbúðar
húsvarðar á efstu hæðinni og fund-
arsalar fyrir starfsemi kaupfélags-
ins auk þess sem salurinn var á
sínum tíma mikið notaður í félags-
lífi Selfossbúa s.s. fyrir dansæfing-
ar, spilakvöld og ýmiskonar félags-
fundi.
Árið 1989 keyptu Selfossbær og
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
húsið og það var innréttað fyrir
bæjar- og hérðasbókasafn og hér-
aðsskjalasafn. 1992 keypti Selfoss-
bær síðan húsið af SASS og leigði
það í sjö ár út til Héraðsdóms Suð-
urlands, Fræðsluskrifstofu Suður-
lands og Fasteignamats ríkisins.
Kjallari hússins var keyptur 1998.
Síðan var ákveðið að nýta efri hæð-
ir hússins undir bæjarskrifstofur
og húsið varð ráðhús sveitarfélags-
ins.
Varðandi kostnað við að endur-
byggja húsið sagði Karl Björnsson
bæjarstjóri að líta þyrfti til þess að
um væri að ræða endurbyggingu á
gömlu og glæsilegu húsi í miðbæ
höfuðstaðar Suðurlands, þurft hefði
að styrkja það vegna jarðskjálfta
og fylla af nútíma tæknikerfum.
Endurbótum á Ráðhúsi Árborgar að ljúka
Heildarkostnaður við
húsið áætlaður 321 milljón
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Ráðhús Árborgar er í miðbænum á Selfossi.
Reykholt - Við messu á
sunnudag var tendrað á
tveimur ljósakrónum sem
hengdar hafa verið upp í
Reykholtskirkju. Krónurnar
eru teiknaðar af arkitekti
hússins, Garðari Halldórs-
syni. Þetta eru mikil mann-
virki, um 3 m í þvermál og
bera 36 ljósaperur hvor, 24 á
neðri hring og 12 á efri.
Ljósakrónurnar falla vel að
arkitektúr hússins bæði hvað
varðar efni og form. Í miðju
þeirra er gert ráð fyrir að
settir verði hátalarar.
Helga Guðráðsdóttir frá
Kópareykjum og fjölskylda
hennar lögðu fram fé til lýs-
ingar kirkjunni í minningu
barns sem þau misstu, Sig-
urjóns Eyjólfssonar, en hann
hefði orðið fertugur árið 1999.
Hjónin Gunnar Á. Gunnars-
son og Ingibjörg A. Konráðs-
dóttir, bændur á Hýrumel,
gáfu síðan, ásamt börnum sín-
um, mikið fé til þessara ljósa-
króna.
Jafnframt var við guðsþjón-
ustuna greint frá öðrum gjöf-
um til kirkjunnar. Um jólin
færði frú Sigrún Jónsdóttir
kirkjulistakona, ásamt vígslu-
biskupshjónunum í Skálholti,
bænaljósbera sem Sigrún hef-
ur gert af basalti, járni og
keramiki. Einnig hefur Ís-
kraft hf. í Reykjavík gefið úti-
lýsingu á kirkjuna, en frá því
fyrirtæki eru margir lampar í
Reykholtskirkju-Snorrastofu.
Í ávarpi eftir prédikun þakk-
aði sóknarprestur, Geir
Waage, þessar gjafir fyrir
hönd kirkju og safnaðar.
Ljósakrónurnar eru smíð-
aðar á Vélaverkstæði Krist-
jáns Pálssonar í Borgarnesi
en ljósastæðin eru innflutt.
Hinar nýju ljósakrónur Reykholtskirkju
bera alls 72 perur.
Kveikt á nýjum ljósakrónum í
Reykholtskirkju á kyndilmessu
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir