Morgunblaðið - 11.02.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.02.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 3/2–10/2  Fyrsta hópsýking af völdum calici-veiru hefur verið staðfest hér á landi en slíkar hópsýkingar eru vel þekktar erlendis. Alls smituðust 27 manns af völdum veirunnar eftir að hafa borðað snittur en veiran veldur uppköstum, niðurgangi, hita og bein- verkjum.  Samþykkt var sam- hljóða á aðalsafnaðarfundi Reykholtssóknar á þriðju- dag að heimila sóknar- nefnd að ganga til samn- inga við Þjóðminjasafnið um endurgerð og ráð- stöfun gömlu kirkjunnar í Reykholti.  Nýtt fundamet var sett hjá ríkissáttasemjara í síð- asta mánuði en þá voru haldnir þar 176 formlegir sáttafundir. 58 stéttar- félög eiga eftir að ljúka samningum við samn- inganefnd ríkisins. Launa- nefnd sveitarfélaganna á einnig eftir að ljúka gerð nokkurra tuga kjarasamn- inga.  Öldrunarstofnun banda- rísku heilbrigðisstofn- unarinnar mun veita Hjartavernd styrk sem nemur um 20 milljónum Bandaríkjadala, eða ríf- lega 1,7 milljörðum króna, vegna samstarfs um sjö ára rannsókn á áhrifum öldrunar. Styrknum verð- ur m.a. varið til kaupa á flóknum tækjabúnaði.  Samþykkt var á fundi Landssambands kúa- bænda að fresta innflutn- ingi fósturvísa úr norsk- um kúm um ótilgreindan tíma. Formaður VR segir forsendur halda Magnús L. Sveinsson, formaður VR, sagði eftir kjaraþing VR að miðað við núverandi verðbólgu væru engar for- sendur til uppsagna á kjaraliðum samninga. Verðbólgan var 5,8% þegar samningar voru gerðir í maí sl. en er nú á bilinu 4-5%, samkvæmt upplýs- ingum Þjóðhagsstofnunar. Um 5.000 lítrar af svartolíu láku niður Þúsundir lítra af svartolíu láku úr ein- um olíugeyma Skeljungs hf. við Hólmaslóð á Granda á fimmtudag. Olí- an barst hvorki í sjó né holræsi. Óhappið var rakið til mannlegra mis- taka, því starfsmönnum láðist að skrúfa fyrir loka sem tengir geyminn við olíuleiðslu niður að Faxagarði þannig að geymirinn yfirfylltist. Dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir morð Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á mánudag Ásgeir Inga Ásgeirsson í fjórtán ára fangelsi fyrir að myrða 21 árs gamla stúlku, Áslaugu Perlu Kristjónsdóttur, að morgni laugar- dagsins 27. maí sl. Komst héraðsdóm- ur að þeirri niðurstöðu að hann hefði hrint Áslaugu yfir handrið á 10. hæð fjölbýlishúss við Engihjalla í Kópavogi og hún látist vegna áverka sem hún hlaut við fallið á steinstétt við húsið. Grunnskólakennarar samþykkja samning Félagsmenn í Félagi grunnskólakenn- ara og Skólastjórafélaginu samþykktu nýgerðan kjarasamningmeð tæpum 60% atkvæða. Guðrún Ebba Ólafs- dóttir, formaður Félags grunnskóla- kennara, sagði það ákveðinn létti. INNLENT Sharon vill samstjórn með Barak HARÐLÍNUMAÐURINN Ariel Sharon úr hægriflokknum Likud í Ísra- el sigraði vinstrimanninn Ehud Barak örugglega er kosið var til embættis for- sætisráðherra á þriðjudag. Bráða- birgðatölur bentu til þess að Sharon hefði fengið um 60% atkvæða en loka- tölur verða birtar síðar. Hann sagði eft- ir sigurinn að Ísraelar myndu halda yf- irráðum sínum yfir óskiptri Jerúsal- emborg en yfirráð hennar eru eitt af viðkvæmustu deilumálum Ísraela og Palestínumanna vegna helgistaðanna í borginni. Barak sagði af sér leiðtogaembætti Verkamannaflokksins er úrslit lágu fyrir. Stjórnmálaskýrendur voru á einu máli um að hann hefði verið felldur vegna vonbrigða kjósenda með að ekki skyldu nást friðarsamningar við Pal- estínumenn og einnig vegna uppreisn- ar Palestínumanna gegn her og lög- reglu Ísraela sem nú hefur staðið í fjóra mánuði og kostað um 400 mannslíf. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, kvaðst myndu virða úrslitin og sagðist vona að friðarferlið héldi áfram, þrátt fyrir leiðtogaskiptin. Viðbrögð í arabalöndum voru blend- in við kjöri Sharons. Sýrlendingar gagnrýndu Sharon hart en Egyptar og Jórdanir sögðust myndu láta reynsluna skera úr um mat sitt á nýja leiðtog- anum sem oft hefur boðað ósveigjan- lega stefnu og ekki viljað gefa eftir her- numin landsvæði eða sætta sig við að Palestínumenn fengju að stofna eigið ríki. Ljóst var er á leið á vikuna að Sharon myndi leggja áherslu á að ná sam- komulagi við Verkamannaflokkinn um myndun samsteypustjórnar fremur en að þurfa að reiða sig á stuðning margra smáflokka bókstafstrúarmanna til hægri. Á föstudag bauð Sharon keppi- naut sínum Barak embætti varnar- málaráðherra í nýrri ríkisstjórn.  POUL Nyrup Rasmus- sen, forsætisráðherra Danmerkur, ítrekaði í vik- unni yfirlýsingar sínar um að ef Færeyingar kysu að stefna að sjálfstæði myndu Danir ekki greiða framlög í sjóði þeirra lengur en fjögur ár eftir sjálfstæðið. Færeyskir ráðamenn sökuðu hann um að beita þvingunum en nær allir danskir stjórn- málamenn taka undir með Andersen.  RÉTTARHÖLDUM yfir franska kaupsýslumann- inum Alfred Sirven, sem áður var ráðamaður hjá ríkisolíufélaginu Elf, var í vikunni frestað í París til 12. mars. Hann var hand- tekinn nýlega á Filipps- eyjum eftir að hafa verið á flótta í fjögur ár. Sirven er sakaður um fjárdrátt og að hafa mútað stjórn- málamönnum.  SAKSÓKNARAR í Þýskalandi hafa ákveðið að falla frá málssókn á hendur Helmut Kohl, fyrr- verandi kanslara, fyrir að að hafa tekið við ólögleg- um peningagreiðslum í sjóði Kristilegra demó- krata. Hann mun þó verða að greiða sekt.  SYSTKIN fundust á lífi á mánudag í húsarústum eftir jarðskjálftana í Ind- landi, tíu dögum eftir hamfarirnar. Höfðu lokast inni í eldhúsinu og nærst á kexi og dálitlu vatni. Nú er talið að yfir 30.000 manns hafi farist í jarð- skjálftunum og fjölmargir hafa misst heimili sín. ERLENT ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í gær í ávarpi sínu á öðrum fundi Samfylkingarinnar í fundaröð stjórnmálaflokksins um lýðræði – hugsjón og veruleika, að kynslóð sín hefði aldrei staðið frammi fyrir öðrum eins valdhroka af hálfu stjórnvalda og ríkisstjórn Íslands hefði sýnt með viðbrögðum sínum við dómi Hæstaréttar í máli Ör- yrkjabandalagsins gegn Trygg- ingastofnun. Sagði hún enn fremur að þróun og staða lýðræðisins yrði aldrei rifin úr samhengi við alþjóð- lega strauma. „Í umræðu undanfarinna vikna, bæði innan og utan veggja Alþing- ishússins, hefur verið um það deilt hvort svokölluð klassísk mannrétt- indi, þ.e.a.s. borgaraleg og stjórn- málaleg mannréttindi, séu æðri þeim mannréttindum sem nefnd hafa verið efnahagsleg, félagsleg og menningarleg,“ sagði Þórunn. „Þá hefur borið við að þeir hinir sömu og vilja flokka mannréttindi í sund- ur eftir mikilvægi þeirra telja einn- ig nauðsynlegt að forgangsraða réttindunum, til dæmis með þeim hætti að tjáningarfrelsið sé á ein- hvern hátt mikilvægara en réttur- inn til grunnmenntunar,“ sagði hún. Hlutverk Íslands í tilraunum til lausnar á vandanum Í erindi Hrundar Gunnsteins- dóttur þróunarfræðings, sem talaði um afnám skulda fátækustu ríkja heims og hvort slíkt væri góðgerða- starfsemi eða réttlæti, kom m.a. fram að fátækum íbúum í heiminum hefði fjölgað um 200 milljónir sl. fimm ár. Skuldabyrði fátækustu ríkjanna léki stórt hlutverk í þess- ari þróun. Hrund drap á hlutverk Íslands í tilraunum til lausnar á vandanum. „Hvað Ísland varðar, og hlutverk þess í þróunarmálum og tilraunum til að létta á skuldabyrði fátækustu ríkjanna, er rétt að minna á að Ísland er eitt af OECD- ríkjunum, Ísland er aðili að Al- þjóðabankanum og Alþjóðagjald- eyrissjóðnum, sem og öðrum al- þjóðlegum stofnunum sem leggja línurnar í þessum málum. Hlutverk Íslands er ekki síður mikilvægt en hlutverk annarra þjóða sem hlut- deild eiga í alþjóðlegu samstarfi,“ sagði Hrund. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur, Sigurður Líndal lagaprófessor og Natasa B. Friðgeirsson blaðamaður fluttu einnig erindi á fundinum sem nánar verður fjallað um í Morgunblaðinu á þriðjudag. Morgunblaði/Þorkell Eiríkur Bergmann Einarsson og Hrund Gunnsteinsdóttir fyrirlesarar á fundi Samfylkingarinnar í gær. Deilt var á vald- hroka stjórnvalda UNNIN hefur verið sérstök kostnaðargreing á starfsemi kvennasviðs Landspítala – há- skólasjúkrahúss (LSH) og er til- raunasamningur sem kveður á um verð og magn tilbúinn til undirrit- unar. Stjórnendur LSH hafa um skeið látið greina kostnað við starfsemi sjúkrahúsanna, m.a. í þeim tilgangi að breyta fjármögn- unarkerfi þeirra, þannig að fjár- munirnir tengist unnum verkefn- um. Þá hefur ný gjaldskrá á spítal- anum fyrir ósjúkratryggða ein- staklinga verði sett en hún er einnig byggð á kostnaðargrein- ingu. Fjármögnunarkerfi sjúkra- húsanna verði breytt Fram kemur á nýju yfirliti for- stjóra Landspítala – háskóla- sjúkrahúss um stöðu verkefna að kostnaðargreining sé nauðsynleg forsenda þess að gerðir verði þjónustusamningar eða starfsem- in verði færð í kaup- og söluform. Hafa stjórnendur LSH hvatt heil- brigðisráðherra og fjármálaráð- herra að beita sér fyrir því að fjár- mögnunarkerfi sjúkrahúsanna verði breytt sem fyrst. Áfram verður unnið að kostn- aðargreiningu um allan spítalann. Er nú til athugunar að velja annað svið til kostnaðargreiningar og fjármögnunar og er m.a. rætt um skurðlæknasvið ásamt skurð-, svæfingar- og gjörgæslusviðin í því sambandi. Að auki er nú unnið að kostnaðargreiningu á ýmsum deildum í tengslum við stöðuút- tektir, s.s. í blóðskilun og á Rann- sóknastofu Háskólans í meina- fræði. Kostnaðargreining gerð á starfsemi kvennasviðs LSH Samningur tilbúinn um verð og magn HAFIN er athugun Skipulagsstofn- unar á umhverfisáhrifum fram- kvæmda við Búðarhálsvirkjun og Búðarhálslínu 1 í Ásahreppi, Holta- og Landsveit, Gnúpverjahreppi og Djúpárhreppi. Landsvirkjun er framkvæmda- raðili og tók Hönnun hf. saman skýrslu um mat á umhverfisáhrifum. Framkvæmdatími er talinn verða um þrjú ár, en upphaf framkvæmda er háð spurn eftir raforku. Fyrirhuguð Búðarhálsvirkjun er allt að 120 MW vatnsaflsvirkjun og fylgir henni lagning Búðarhálslínu sem er 17 km löng, 220 kV háspennu- lína frá stöðvarhúsi virkjunarinnar að tengivirki Sultartangavirkjunar. Stífluð verður Kaldakvísl rétt ofan ármóta Tungnaár og Köldukvíslar og myndast með því 7 ferkílómetra lón sem kallað hefur verið Sporð- öldulón. Matsskýrslan liggur frammi til kynningar til 23. mars 2001 á skrif- stofum Ásahrepps, Djúpárhrepps, Holta- og Landsveitar og Gnúp- verjahrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík. Almenningi gefast sex vikur til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir sem berist Skipulagsstofnun eigi síðar en 23. mars 2001. Búðarháls- virkjun í um- hverfismat
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.