Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 25

Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 25 TILBOÐ ÓSKAST í Ford Expedition (Eddie Bauer) 7 manna m/leðursætum (ekinn 40.000 mílur) árgerð ‘98 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 13. febrúar kl. 12-15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. RENNIBEKKUR Ennfremur óskast tilboð í Rockford rennibekk (fyrir járnsmíði). Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16 UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA Bjálka-, eininga- og frístundahús, arnar, eldhús, uppsetning HAGKVÆM HEILDARAFHENDING BEINT FRÁ FINNLANDI! www.emhouse.fi, e-mail/emhouse(att)sgic.fi Fax 00 358 3 2130045. Sími 00 358 3 2130050. EM House Marketing, Rautatienkatu 17, 33100 Tampere, Finnlandi Námstefna Barnaheilla og Barnaverndarstofu um meðferð ungra gerenda kynferðislegs ofbeldis gegn börnum haldin á Grand Hóteli við Sigún 15. febrúar frá kl. 9:00 - 16:00 Fyrirlesari á námstefnunni verður dr. Richard Beckett, sérfræðingur í klínískri sálfræði og réttarsálfræði. Hann er yfirmaður réttarsálfræðiþjónustunnar í Oxford og starfar einnig við sálfræðideild háskólans í Birmingham. Nánari upplýsingar um dr. Beckett er að finna á heimasíðu Barnaheilla www.barnaheill.is og Barnaverndarstofu www.bvs.is Dagskrá 8:30 - 9:00 Innritun. Heitt kaffi á könnunni! 9:00 - 9:10 Námstefnan sett: Guðbjörg Björnsdóttir, formaður Barnaheilla 9:15 - 10:30 Yfirlitserindi: „Hvað vitum við um meðferð ungra gerenda kynferðislegs ofbeldis?" • Hvað einkennir unga gerendur kynferðislegs ofbeldis? • Hvað vitum við í dag? - Kynning á rannsóknum. • Þróun og helstu breytingar í meðferðarúrræðum. 10:30 - 10:45 Kaffihlé 10:45 - 12:00 Mikilvægi meðferðar fyrir unga gerendur kynferðislegs ofbeldis. • Hverjir halda áfram að beita aðra kynferðislegu ofbeldi? • Hættan á ítrekun. 12:00 - 13:00 Hádegisverðarhlé 13:00 - 14:30 Meðferð ungra gerenda kynferðislegs ofbeldis. • Markmið - koma í veg fyrir áframhaldandi ofbeldi. • Kynning á meðferðarúrræðum. 14:30 - 14:45 Kaffihlé 14:45 - 15:50 Meðferð ungra gerenda kynferðislegs ofbeldis (framh.). • Árangur meðferðar. • Framtíðarsýn. 15:50 - 16:00 Námstefnuslit Fundarstjóri verður Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu Ráðstefnugjald kr.: 7.000. Stúdentar greiða kr. 2.000. Innifalið er kaffi fyrir og eftir hádegi. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á skrifstofu Barnaheilla í síma 561 0545 fyrir miðvikudaginn 14. febrúar nk. MÁLVERK og tákn er heiti sýn- ingar Péturs Halldórssonar sem þessa dagana stendur yfir í Galleríi Sævars Karls. Það má segja að sýn- ingin sé í raun tvískipt en Pétur hef- ur kosið að tefla saman þremur olíu- málverkum, Landslag I, II og III og þremur táknmyndum sem unnar eru á dagblaðapappír og fjallar hann ít- arlega um hvert táknanna í sýning- arskrá sinni. Táknin þrjú eru öll tákn fyrir- tækja og stofnana sem sýningar- gestir kynnu að kannast við úr dag- legu lífi sínu en auk myndlistarinnar starfar Pétur sem grafískur hönnuð- ur. Táknin þrjú sem hann sýnir í Gallerí Sævars Karls tilheyra Verð- bréfaþingi Íslands, Opna skólanum og Sementsverksmiðjunni og má í sýningarskrá finna dágóða lesningu um hvert þeirra og þann myndlestur sem að baki býr. Þannig er tákni Opna skólans til að mynda ætlað að minna á ákvarðanatöku – dökki hringurinn stendur fyrir neitun en sá opni fyrir já – og punktar og þrí- hyrningar tákns Sementsverksmiðj- unnar vísa jafnt á byggingarefnið sem og upphaf, eða grunn, mann- virkja. Staðsetning táknmyndanna í gall- eríinu brýtur vissulega upp rýmið á milli málverkanna og ekki hægt að segja annað en að þær krefjist að vissu leyti athygli á sínum eigin for- sendum. Einföld uppbygging þeirra á gráhvítum pappírnum er skemmti- leg andstæða við málverkin en tákn- in virka þó misvel utan síns hefð- bunda umhverfis og verður t.d. tákn Verðbréfaþings tómlegt á meðan notkunarmöguleikar tákns Opna skólans virðast öllu meiri. Landslagsverkin þrjú reynast þá táknmyndunum sterkari, bæði sök- um stærðar og litanotkunar, en þau vinnur Pétur með olíulitum og blönd- uðu efni. Litnum er smurt misþykkt á strigann sem Pétur ræðst á með fleira en penslana eina að vopni og bera myndirnar vott um síendur- teknar atrennur listamannsins. Hér hefur verið bætt við, rifið, skafið, smurt og skrapað. Myndirnar eru í raun mitt á milli þess að vera málverk og eins konar collage-myndir og skilar þessi efn- isblöndun sér á myndfletinum í óróa, óvissu og ákveðnum eyðileggingar- krafti sem skilur eftir í huga áhorf- andans þá tálsýn, þar sem efnis- blöndun er tímafrekt ferli, að eins konar æði hafi runnið á Pétur og hann ekki látið staðar numið fyrr en verkinu var lokið. Þessi eyðileggingar- og niðurrifs- áhrif eru hvað sterkust í landslags- myndinni sem er á vinstri hönd við innkomu. Svartur flötur þjónar hlut- verki þungamiðju verksins sem blá, bleik, græn, gul og hvít litalög vinna út frá. Óróinn er hér alls ráðandi og ljóst að listamaðurinn leitast ekki við að fylgja hefðbundnum „fegurðar- stöðlum“. Landslagsverkin tvö sem eftir eru hafa um margt nánari tengsl við heiti myndraðarinnar en fyrrgreinda verkið. Ekki er til að mynda erfitt fyrir sýningargesti að sjá fyrir sér bláhvítan jökul og glóandi hraun í litalögum annarrar myndarinnar og þá gæti blágrænt jökullón virst prýða þriðju myndina – þá hógvær- ustu í hópi málverkanna. Sterk tengsl eru þó greinilega milli verkanna þriggja og sú tog- streita sem myndast milli stílhreinna og einfaldra auglýsingatáknanna og þeirrar óreiðu og eyðileggingar sem einkennir málverkin vekur upp at- hyglisverðar spurningar um hvar mörk tákna, sem við öllu jöfnu tengj- um auglýsingagerð, og myndlistar liggja. Morgunblaðið/Ásdís Eitt landslagsverka Péturs Halldórssonar. Olía og blandað efni á striga. Togstreita andstæðna MYNDLIST G a l l e r í S æ v a r s K a r l s Sýningunni lýkur 15. febrúar. Sýn- ingin er opin á verslunartíma. MÁLVERK OG TÁKN EFTIR PÉTUR HALLDÓRSSON Anna Sigríður Einarsdótt ir Stafrófsbolur Stærð: S, M, L, XL aðeins 700 kr. NETVERSLUN Á mbl.is Taska aðeins 750 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.