Morgunblaðið - 11.02.2001, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
hef ég lýst því yfir að ekki komi til greina að
leggja í þá fjárfestingu sem fylgir því að byggja
upp sérstakan flugvöll fyrir innanlandsflugið.
Taki stjórnendur höfuðborgarinnar þá afstöðu
að breyta aðalskipulaginu og leggjast gegn
flugvellinum í Vatnsmýrinni mun innanlands-
flugið verða flutt til Keflavíkur...“
Ráðherra sagði á blaðamannafundi á dögun-
um að nýr flugvöllur á Lönguskerjum væri
skemmtileg framtíðarsýn sem ekki kæmist á
dagskrá á næstu árum.
Sturla Böðvarsson segir í samtali að núver-
andi Reykjavíkurflugvöllur sé óvítrætt hag-
kvæmasti kosturinn af þeim sem nefndir hafa
verið. Vitnar hann í skýrslu Hagfræðistofnunar
Háskólans um þjóðhagslegt óhagræði af því að
flytja innanlandsflugið til Keflavíkurflugvallar.
Þá minnir hann á að skipulagið á Íslandi sé að
því leyti annað en í mörgum öðrum löndum að
hér hafi mest af þjónustunni verið byggð upp á
sama stað, í Reykjavík, þar á meðal öll sérhæfð
heilbrigðisþjónusta. Því sé mikið öryggi fólgið í
því að hafa miðstöð innanlandsflugsins nálægt
stóru sjúkrahúsunum en mikið óhagræði og
óöryggi að flytja hana til Keflavíkur. „Það er
sama hvernig við lítum á þetta, sú óvenjulega
góða aðstaða sem við höfum hérna í Reykjavík
skapar okkur forskot sem við megum ekki
sleppa,“ segir Sturla.
Mismunandi afstaða
borgarfulltrúa
Borgaryfirvöld hafa ekki tekið afstöðu til ein-
stakra valkosta. Þannig hafa helstu forystu-
menn Reykjavíkurlistans mismunandi sýn á
málið, lýsa ýmist yfir áhuga á að völlurinn fari
og þá suður fyrir Hafnarfjörð eða að hann verði
áfram í Vatnsmýri, þó þannig að rýmt verði fyr-
ir byggð með flutningi austur-vestur-brautar-
innar út í sjó.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
hefur ekki viljað kveða upp úr með sína afstöðu
en fer þó nærri því. Hún segir að flugvöllurinn
geti ekki verið í óbreyttri mynd í Vatnsmýri til
framtíðar. Annaðhvort þurfi að losa hluta lands-
ins eða flytja flugvöllinn alfarið annað. „Mér
sýnist að það sé ágætur kostur að flytja hann
suður fyrir Hafnarfjörð. Ég hef ekki trú á
Lönguskerjahugmyndinni. Hún er of dýr og
umhverfislega erfið. Og lítið vinnst umfram
Hafnarfjörð,“ segir borgarstjóri. Áður hefur
hún í Morgunblaðsgrein vakið athygli á þeim
galla sem fylgir því að flytja innanlandsflugið til
Keflavíkurflugvallar vegna þess að við það
lengist ferðatími fólks um of.
Ef reynt er að rýna í orð hennar nú og áður
virðist flugvöllur í landi Hvassahrauns vera efst
á óskalista hennar en breyttur Reykjavíkur-
flugvöllur komi þó til greina. Hún vill þó ekki
kveða upp úr um það hvort hún telji að breyttur
Reykjavíkurflugvöllur yrði varanleg lausn, ef
sá kostur yrði að niðurstöðu nú.
Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar, segir
að Vatnsmýrin sé einfaldlega allt of dýrmætt
svæði fyrir borgarsamfélagið til að hafa undir
starfsemi flugvallarins. Mikilvægt sé að fá þar
svigrúm, sérstaklega fyrir þekkingariðnað,
miðbæinn, Háskóla Íslands og háskólasjúkra-
húsið. Telur hann að ekki sé lengur um þetta
deilt, spurningin snúist fremur um það að hve
miklu leyti völlurinn eigi að víkja, hvernig,
hvert og hvenær.
Þegar Helgi er spurður að því hvaða kostur
sé vænlegastur, segir hann: „Mér líst best á að
völlurinn fari úr Vatnsmýrinni, á Löngusker
eða suður fyrir Hafnarfjörð. Mér sýnist þó að
síðarnefndi kosturinn sé líklegri niðurstaða.“
Árni Þór Sigurðsson, formaður skipulags-
nefndar Reykjavíkur, er jafnframt formaður
samvinnunefndar um svæðisskipulag fyrir höf-
uðborgarsvæðið. Á vegum svæðisskipulagsins
hefur sérstaklega verið hugað að möguleikum
þess að koma flugvelli fyrir sunnan Hafnar-
fjarðar og breytingum á fyrirkomulagi Reykja-
víkurflugvallar. Þar er um að ræða flutning AV-
brautarinnar út í Skerjafjörð en við það losna
70–75 hektarar lands í Vatnsmýri. Að mati
Árna Þórs eru báðir þessir valkostir raunhæfir,
tiltölulega lítill munur sé á kostnaðinum og báð-
ir komi til greina af umhverfisástæðum. Hins
vegar sé flugvöllur á Lönguskerjum gríðarlegt
inngrip í náttúru og umhverfi Skerjafjarðar.
Spurður um vænlegasta kostinn byrjar Árni
Þór á því að rifja upp sérstöðu sína innan Al-
þýðubandalagsins á sínum tíma, þegar hann
lýsti því yfir að flugvöllurinn ætti að vera í
Vatnsmýrinni. Segist hann sjá marga kosti við
það en telur ótækt að völlurinn sé eins pláss-
frekur og hann er í dag. Segir hann að hug-
myndin um flutning annarrar flugbrautarinnar
út í sjó sé sú besta sem sé uppi á borðinu í dag.
Einnig segist hann telja að það sé ekki slæmur
kostur að byggja völl sunnan Hafnarfjarðar.
Sigrún Magnúsdóttir, varaformaður borgar-
ráðs og formaður borgarmálahóps Reykjavík-
urlistans, segist vilja halda miðstöð innanlands-
flugsins í Reykjavík, eins og stjórnsýslunni og
menningunni, og rækja þannig höfuðborgar-
hlutverkið. Hins vegar verði að horfa til
framþróunar á þessu svæði, skapa möguleika til
að byggja þar meira upp, meðal annars há-
tæknifyrirtæki í tengslum við Háskóla Íslands
og styrkja þannig miðbæinn. Segist hún telja að
sú lausn að byggja nýja austur-vestur-braut út í
sjó geti komið til móts við bæði sjónarmiðin. Þá
segir Sigrún að sér þætti hugmyndin um að
byggja flugvöll í landi Hvassahrauns athyglis-
verð, ekki síst í ljósi þess að hugmyndir væru
uppi um að byggja völl til snertilendinga á því
svæði.
Minnihlutinn einnig klofinn
Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn hafa
staðið saman um að gagnrýna ákvörðun meiri-
hlutans um að efna nú til atkvæðagreiðslu um
staðsetningu flugvallarins eftir 2016. En eins og
hjá meirihlutanum eru skiptar skoðanir meðal
borgarfulltrúa sjálfstæðismanna þegar spurt er
um einstaka valkosti. Sumir vilja hafa flugvöll-
inn áfram í Vatnsmýri en aðrir vilja að hann
fari.
Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðis-
manna, segist ekki vilja standa að ákvörðunum
um að verja milljörðum af skattpeningum
landsmanna í nýjan flugvöll í 25 kílómetra fjar-
lægð frá Keflavíkurflugvelli. Valið sé á milli
Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurflugvallar.
Segist Inga Jóna ekki geta staðið að því nú að
flytja innanlandsflugið til Keflavíkurflugvallar
vegna afleiðinga þess. „Áður en endanlegar
ákvarðanir eru teknar vil ég sjá hver þróunin í
innanlandsfluginu verður. Mér segir svo hugur
um að innanlandsflug muni breytast mjög á
næstu áratugum vegna búsetubreytinga í land-
inu og þá verði ekki þörf fyrir þá starfsemi hér í
miðju borgarlandinu. Þess vegna er atkvæða-
greiðslan ótímabær og við eigum ekki að svara
svona spurningum fyrr en við sjáum þessa
mynd skýrar.“ Hún segist sammála því að í
Vatnsmýrinni sé dýrmætt byggingarland en
það verði þarna áfram og muni nýtast í framtíð-
inni. Þess vegna segist hún telja skynsamlegast
að velja ódýrasta kostinn sem völ sé á nú, það er
að segja að hafa innanlandsflugið enn um sinn á
Reykjavíkurflugvelli samkvæmt nýju skipulagi
flugvallarsvæðisins, en alls ekki að binda aukið
fé í flugvellinum með því að lengja AV-brautina
yfir Suðurgötu eða byggja nýja braut út í sjó.
Júlíus Vífill Ingvarsson, einn af borgarráðs-
mönnum Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að sá
tími komi að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni
og sjálfur segist hann fylgjandi því. Hins vegar
sé ekki hægt fyrir þá sem nú sitja í borgar-
stjórn að ákveða það hvert hann skuli fara eftir
mörg ár og ljóst að þeir sem sitji þá í borg-
arstjórn muni taka ákvarðanir út frá forsendum
þess tíma en ekki einhverri gamalli atkvæða-
greiðslu. Vekur borgarfulltrúinn athygli á því
að stöðugt eru að koma fram nýir valkostir og
telur hann líklegt að við nánari skoðun málsins
eigi þeim eftir að fjölga. Ekki sé hægt að taka
afstöðu til málsins nema hafa alla kostina fyrir
framan sig. Segist hann ekki sjá neinn góðan
kost, af þeim sem helst hafa verið nefndir, til að
taka við ef ákveðið verður að flytja flugvöllinn
af núverandi stað. Hann geti því ekki tekið þátt
í þessari ótímabæru atkvæðagreiðslu.
„Ef það væri raunverulegur áhugi á að koma
flugvellinum úr Vatnsmýrinni hefðu borgaryf-
irvöld nálgast málið allt öðruvísi. Reynt að ná
samkomulagi við yfirvöld samgöngumála í stað
þess að standa í hnútukasti sem ekki ber nokk-
urn árangur,“ segir Júlíus Vífill.
Kappsmál að stytta leiðir
Árni Johnsen, formaður samgöngunefndar
Alþingis, segir að hugmyndir Flugmálastjórnar
um breytt skipulag á Reykjavíkurflugvelli séu
áhugaverðar. Hann segir að gott sé að hafa
svona opið rými eins og flugvöllur skapar, í ná-
grenni miðborgar Reykjavíkur, það sé um-
hverfismál. Segir Árni að aðrir kostir sem
nefndir hafi verið séu ekki boðlegir, meðal ann-
ars vegna þess hversu mikið þeir skerði mögu-
leika á samgöngum milli höfuðborgarinnar og
landsbyggðarinnar. Flugið sé lykill margra
landsbyggðarmanna að höfuðborginni og öfugt.
Það eigi að vera kappsmál allra að stytta leið-
irnar en ekki lengja. Nefnir hann í þessu samb-
andi uppbyggingu þjónustu og stjórnsýslu í
höfuðborginni, meðal annars sjúkrahúsa fyrir
allt landið. „Ég skil ekki þá lítilsvirðingu gagn-
vart fólki úti á landi sem felst í því að vilja flug-
völlinn burt og hækka verð á lóðum fyrir nýríka
úti í mýri. Það lýsir ekki samstöðu og vinarþeli
sem ríkja þarf meðal allra landsmanna.“
Flugumferð um Reykjavíkurflugvöll hefur
ekki einungis áhrif í Reykjavík heldur einnig
sveitarfélögunum í kring. Bæjaryfirvöld í
Kópavogi, Hafnarfirði og Bessastaðahreppi og
einstakir íbúar hafa látið í sér heyra um málið.
Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnar-
firði, segir það vera sína tilfinningu að val Reyk-
víkinga geti ekki snúist um annað en það hvort
þeir vilji hafa völlinn áfram í Vatnsmýrinni eða
á Keflavíkurflugvelli. Í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins minnir hann á að uppi eru
áform um að tvöfalda Reykjanesbrautina og
það hljóti að ýta frekar undir það að flugvöll-
urinn fari til Keflavíkur með tíð og tíma. „Hins-
vegar held ég að flugvöllurinn verði enn um
sinn í Reykjavík. Það er alltaf spurning hvort
rétt sé að fara út í svona kosningar þar sem al-
menningur er alla jafna ekki að velta vöngum
yfir því sem mun gerast eftir tuttugu til þrjátíu
ár. Samgöngur eiga eftir að batna og breytast
verulega á höfuðborgarsvæðinu og fjarlægðir á
milli staða að minnka að sama skapi,“ segir
Magnús.
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, tel-
ur atkvæðagreiðslu um staðsetningu flugvallar
með öllu ótímabæra nú og fráleitt að hugsa sér
að eftir sextán til tuttugu ár, þegar taka þarf
ákvörðun um völlinn, muni eftir því verða leitað
hver afstaða fólks var árið 2001. „Ég tel alla
þessa umræðu hafa verið afspyrnu heimsku-
lega og óttalegt fjaðrafok vera gert út af máli,
sem engin atkvæðagreiðsla í dag mun hafa nein
áhrif á. Þetta er hrein tímaeyðsla. Það er eins
og menn þurfi bara að finna sér eitthvað til að
dunda við í skammdeginu,“ segir Sigurður.
Staðsetning flugvallarins kemur, að sögn
Sigurðar, Kópavogsbúum hinsvegar við ekki
síður en Reykvíkingum, enda væru íbúar Kárs-
nessins nær flugvellinum en flestir Reykvík-
ingar og það væru fyrst og fremst nágrannar
vallarins sem yrðu fyrir óþægindum af völdum
flugumferðar. Að mati Sigurður er hæglega
hægt að stunda innanlandssamgöngur án flug-
vallar í miðborg Reykjavíkur. Austurstræti
væri ekki lengur nafli alheimsins og því ekki
ástæða til að ætla að allir þeir, sem kæmu til
höfuðborgarinnar, ættu endilega erindi þangað.
„Auðvitað er Vatnsmýrin orðin alltof dýrt land
undir flugvöll og ef ég væri í borgarmálunum í
Reykjavík, myndi ég sjá mikið eftir þessu landi
undir flugvöll. Mín kenning um land er nefni-
lega sú að það þrífst engin starfsemi til lengdar
á landi sem er orðið of dýrt fyrir viðkomandi
starfsemi,“ segir bæjarstjórinn í Kópavogi.
Einstakar aðstæður
Hollvinasamtök Reykjavíkurflugvallar voru
stofnuð á síðasta ári til að berjast gegn flutningi
innanlandsflugsins til Keflavíkurflugvallar.
Friðrik Pálsson, formaður samtakanna, segir
að Reykjavíkurflugvöllur sé einstaklega vel
staðsettur í borginni. Aðflugið trufli lítið á
íbúðasvæðum, hann sé mjög öruggur og veð-
ursæld einstaklega mikil og hentug fyrir flug.
Auk þess sé hann vel staðsettur gagnvart þjón-
ustu, stjórnsýslu og sjúkrahúsum. Þetta hafi
skapað þann frið sem ríkt hafi svo lengi um völl-
inn. Segir Friðrik að ekki sé hægt að útiloka
breytingar sem leiði til flutnings innanlands-
flugsins annað en ekkert það sé á sjóndeild-
arhringnum sem bendi til þess að það dragi úr
mikilvægi flugsins í samgöngum innanlands.
Friðrik telur að flutningur flugsins til Keflavík-
ur hefði afdrifarík áhrif á öryggi landsmanna.
Vísar hann til þess að ekki verði lengur hægt að
lenda flugvélum með sjúklinga í Reykjavík og
ekki unnt að reka björgunarþyrlurnar þaðan.
Segir hann að sá þáttur einn og sér ætti að duga
til að afskrifa hugmyndir um flutning flugsins
til Keflavíkur. Og hann vekur athygli á því að
ekki sé eingöngu verið að flytja slasað og veikt
landsbyggðarfólk á sjúkrahús, það séu ekki síð-
ur Reykvíkingar sem þurfi á þessari þjónustu
að halda og vísar til ferða þeirra um landið.
Telur Friðrik aðra kosti vanhugsaða, til
dæmis hugmyndina um flugvöll í landi Hvass-
ahrauns. Segir hann augljóst að ekki sé skyn-
samlegt að byggja nýjan flugvöll við hliðina á
Keflavíkurflugvelli. Veðurfarslega sé hann
verri til flugs en Reykjavíkurflugvöllur og geti
haft áhrif á flug til Keflavíkur. Spyr Friðrik
hvað verði gert ef herinn hætti að reka Kefla-
víkurflugvöll, myndu Íslendingar þá treysta sér
til að reka þessa tvo flugvelli á sama svæði.
Friðrik segist ekkert hafa á móti því að
byggja austur-vestur-brautina úti í sjó ef um
!
" #$%
!(&
' " #$%
!)&
()
*
!
+
*
+
,+
&" -
++
!
" #$%
!(&
' " #$%
!)&
()
*
!
+
'
.-
# /
.-
0
1
2
*
+
,+
&" -
++
$3
+
$3
+
# "
"%
, ' , -./ $%
, -
0/ 1 ,
, %
)- /
,
,
# ,
%
)
2% * 13 -!
%13 -!
, %.*
# "
'
4!"56
"76
896
:56
466
4!766
)+4(4
956
856
"66
)+5(4
5+4))
7!;66
"76
896
:56
466
4!766
6+784
956
"!666
466
8+)(4
7+559
<!466
466
556
566
896
:56
"56
4!766
"66
56
"66
(5+564
"!966
466
(4+664
6+:49
4!;66
566
796
:;6
896
:56
"56
4!766
"56
56
"66
8+5!4
"!966
4!966
766
7+6!4
)+64(
766
896
"56
4!766
!+6!4
4!566
"!966
:!566
;66
7+:!4
5+!49
&
+
#
;
4!,*
/*
# *
! ! **
=
"!,
! !(-* !
:!)*
7!)
* #*/ 5!> * 8!> * 9!- ( 3 ;! * !!
* 7!986
6
45:.5
:4-
856
7569"5
556
)
) 4! % ! 3 * $%
"!
% % :!
%
7!
% 3 1* $%
5!? *
* 8!@*-
/ (-
/ 9!@*-
*
/* ;!, % %(-
/ )
>
>
A
) > 0
> > #BB&
A #B&
) #&
, 3(- *
)
!
(4
(8
;!:46
:!556
44;.9
96-
"!666
4!956
4!956
)
>
>
A
) > > > 5
9
)
(8
4:!:96
;!846
466.5
4::-
"!966
5!666
5!666
)
> * > *
>
>
A
0
> * 0
9
7
!
(8
8!:"6
4!586
79.5
4::-
"!966
5!666
5!666
> * > *
A
A
A
> > ) C ((
7
4
(8
7!""6
576&
:4.9
4::-
"!966
5!666
5!666
> > * > *
/*
/*
/*
> > ) C (!
4
)
(8
! "
#