Morgunblaðið - 11.02.2001, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.02.2001, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 15 Stórferð aldarinnar í boði fyrir 1/3 almenns verðs! Verður þú sumar- og sólarmegin í páskafríinu 8.-16. apríl? Suður-Afríka, eitt fegursta land heims með háþróaða ferðaþjónustu, er réttu megin með sumardýrð sína og náttúrutöfra, sól og 25-30° hita, meðan svalt er í Evrópu fram í júní. Beint, þægilegt flug ATLANTA til CAPE TOWN, einnar fegurstu borgar heims, valin hótel, spennandi skoðunarferðir, ódýrt land, íslensk fararstjórn. Þrír frábærir valkostir, allir eftirsóttir: 1) Vika í Cape Town – hrífandi umhverfi á „fegursta höfða heims“! Sól, golf, kynnisferðir. 2) Vika í DURBAN á frægasta baðstað Afríku og einum litríkasta í heimi, sólböð, SAFARI. 3) „Blómaleiðin“ ein fegursta akstursleið í heimi, 3 d. + 4 d. Cape Town. Er að seljast upp! ATH. Takmarkaður sætafjöldi á hverri leið! Missið ekki af tækifærinu! Spennandi gæðaferð fyrir aðeins um 1/3 almenns verðs! Tryggðu þér sæti meðan enn er val! LÆGSTA FARGJALD ÍSLANDSSÖGUNNAR! Nú þegar er um helmingur sæta seldur. Sérstakur kynnisferðabónus fyrir staðfestar pantanir dagana 12.-16. febrúar. Fáið nýja bæklinginn með fullri dagskrá fyrir mest spennandi páskaferð ársins! Álit farþega: „Stórferðir Heimsklúbbsins-Príma skera sig alveg úr hvað skipulag og gæði snertir. Við höfum hvergi gert jafngóð ferðakaup á öllum okkar ferðum.“ GS. Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Útnefnd í alþjóðasamtökin EXCELLENCE IN TRAVEL NETWORK fyrir frábærar ferðir Suður-Afríka Pöntunarsími: 56 20 400 það næðist samkomulag milli borg- aryfirvalda og flugmálayfirvalda og það reyndist flugtæknilega hag- stætt. Hins vegar yrði það ákaflega dýr framkvæmd sem draga mætti í efa að skattborgararnir myndu sam- þykkja auk þess sem hún myndi hafa mikil áhrif á umhverfið. Landið byggist eðlilega upp Nýlega voru stofnuð samtök fólks sem vill berjast fyrir því að flugvöll- urinn fari úr Vatnsmýrinni, 102 Reykjavík, til viðbótar Samtökum um betri byggð og áhugahópi innan Háskóla Íslands sem hafa sama markmið. „Þetta eru þverpólitísk samtök fólks sem vill sjá breytingar á Vatnsmýrinni, að flugvöllurinn fari og landið byggist eðlilega upp,“ seg- ir Bryndís Loftsdóttir, formaður 102 Reykjavík. „Það er verkefni en ekki vandamál og við viljum leysa það á sem farsælastan hátt fyrir alla landsmenn. Sé það vilji borgarbúa að flugvöllurinn fari verður að skoða það mál,“ segir Bryndís þegar hún er spurð að því hvert hún telji að flugvöllurinn eigi að fara. Segir hún að það yrði spennandi verkefni enda hafi komið í ljós að ýmsar leiðir séu færar í því efni. „Ef við veljum að völlurinn eigi að fara er það landspó- litískt mál sem veltur á vilja þing- manna og samgönguráðherra. Þeir hafa aðstöðu til að gera vel við lands- byggðina með því að hafa nýjan flug- völl sem næst höfuðborginni.“ Ekki hefur verið ákveðið hvernig nýju samtökin munu berjast fyrir málstað sínum. Bryndís segist lítið hafa orðið vör við Hollvinasamtök Reykjavíkurflugvallar og að nýju samtökin virðist frekar þurfa að berjast gegn embættismönnum og ráðherra. Segir hún leiðinlegt hvernig samgönguráðherra setur málið upp, að ekki sé nema um Keflavík og Vatnsmýri að velja, það séu ekki lýðræðisleg vinnubrögð. „Skyldur Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar hljóta fyrst og fremst að vera gagnvart íbúum hennar sjálfrar, hún bjóði upp á örvandi og menningarlegt borgarumhverfi fyrir borgarbúa sem og landsbyggðar- fólk, sem hana sækir. Vissulega þurfa samgöngur við höfuðborgina að vera góðar, en þær mega ekki koma niður á borgarumhverfinu,“ segir Orri Gunnarsson, formaður áhugahóps stúdenta um flugvallar- málið, en félagið er, að sögn Orra, stofnað í þeim tilgangi að stuðla að málefnalegri umræðu um Reykja- víkurflugvöll meðal stúdenta og ann- ars ungs fólks. Spurður um hvert heppilegast væri að völlurinn yrði fluttur, sagðist Orri ekki geta talað fyrir hönd stúdenta enda mjög skipt- ar skoðanir um það. „Ég tel ekki ólíklegt að veglegur kennslu- og æf- ingaflugvöllur í útjaðri borgarinnar rúmi innanlandsflug framtíðarinnar. Einnig eru hugmyndir Trausta Vals- sonar um flugvöll á Lönguskerjum ákaflega skemmtilegar. Það er einn- ig rangt að tala eingöngu um innan- landsflug frá Keflavík sem slæman kost, hann mun styrkja ferðamanna- iðnað á landsbyggðinni, það er jú þangað sem ferðamennirnir sækja. Einnig sparast rekstrarkostnaður þegar Íslendingar taka við rekstri Keflavíkurflugvallar og leiðin þang- að er greið eftir breikkun Reykja- nesbrautar. Aðalmálið er að völlur- inn fari úr Vatnsmýrinni. Ný staðsetning er verkfræðilegt vanda- mál sem verður leyst.“ Línur að skýrast Línur eru aðeins farnar að skýrast í afstöðu ráðamanna gagnvart þeim kostum sem í raun verður kosið um 17. mars. Yfirvöld samgöngumála og flugmála eru á einu máli um að Reykjavíkurflugvöllur skuli áfram vera í Vatnsmýrinni í svipaðri mynd og nú. Það er einnig afstaða forystu- manna á landsbyggðinni sem rætt hefur verið við og forystufólks í ferðaþjónustu og flugrekstri, en sjónarmið þeirra koma fram í ann- arri grein. Borgarstjóri hefur ekki kveðið upp úr um afstöðu sín en forseti borgarstjórnar vill flugvöllinn úr Vatnsmýri og nýta hana til uppbygg- ingar í tengslum við miðbæinn. Verulega skiptar skoðanir eru meðal borgarfulltrúa um val á kostum, sumir vilja völlinn alveg í burtu og þá er helst horft suður fyrir Hafn- arfjörð en aðrir sjá möguleika á því að búa til byggingarsvæði á núver- andi flugvallarsvæði með því að flytja meginhluta flugumferðarinnar á nýja austur-vestur-braut sem byggð yrði út í sjó. Þá eru þau sjón- armið einnig uppi að halda beri flug- vellinum í óbreyttri mynd og leggja ekki í fjárfestingar þar, til þess að hægt verði að losa alla Vatnsmýrina þegar réttar aðstæður skapast í inn- anlandsfluginu. Stofnuð hafa verið samtök með og á móti flugvelli. Verður fróðlegt að fylgjast með kosningabaráttunni. TENGLAR ..................................................... Greinaflokkurinn er einnig birtur á Morgunblaðsvefnum: www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.