Morgunblaðið - 11.02.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.02.2001, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRAMTÍÐ Átökin um staðsetningu Reykja- víkurflugvallar snúast um for- gangsröðun. Hvort mikilvægara sé að hafa þetta samgöngu- mannvirki í Reykjavík eða nýta Vatnsmýrina til uppbyggingar íbúða- og atvinnuhúsnæðis í tengslum við miðbæinn. Einnig um það hvort unnt sé að staðsetja flugvöllinn annars staðar með góðu móti og hvort vit sé í slíkri fjárfestingu. Línur eru aðeins farnar að skýrast í þessu efni, eins og kemur fram í fyrstu grein Helga Bjarnasonar og Jóhönnu Ingvarsdóttur í flokki greina Morgunblaðsins um skipulag Vatnsmýrar og framtíð Reykjavíkurflugvallar, en deilurnar halda þó áfram, að minnsta kosti fram að atkvæðagreiðslunni 17. mars. R eykjavíkurflugvöllur hefur lengi verið í úlfakreppu deilna um framtíð hans. Það hefur dregið úr mönnum að fjárfesta á flugvallarsvæðinu sem er illa skipulagt og margar bygging- ar óhrjálegar. Fyrir nokkrum árum var svo komið að brautir flugvallarins voru taldar ógna öryggi í umferð- inni um völlinn og á árinu 1999 var ákveðið að ráðast í endurbyggingu þeirra eftir langan und- irbúning og mikið samráð yfirvalda samgöngu- mála og borgar. Í tengslum við þessa fram- kvæmd var það staðfest í aðalskipulagi Reykjavíkur til 2016 og deiliskipulagi að Reykjavíkurflugvöllur skuli vera miðstöð inn- anlandsflugs á skipulagstímabilinu. Var þetta meðal annars staðfest í sameiginlegri bókun sem Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri und- irrituðu 14. júní 1999. Þar kom einnig fram vilji samgönguráðuneytisins til að draga úr um- hverfisáhrifum flugumferðar með ýmsum hætti og að fækka flugtökum og lendingum á vell- inum með því að flytja snertilendingar í æfinga- og kennsluflugi á annan flugvöll, í hæfilegri fjarlægð frá Reykjavík. Framkvæmdir hófust og er lokið við endur- byggingu austur-vestur-brautarinnar og vinna er nú hafin við norður-suður-brautina. Kostar framkvæmdin um hálfan annan milljarð króna. Málið tekur nýja stefnu Miklar umræður urðu um framtíð Reykjavík- urflugvallar í tengslum við undirbúning fram- kvæmdarinnar og þær héldu áfram eftir að ákvörðun var tekin. Fram komu hugmyndir um að flytja flugvöllinn á uppfyllingar og að setja þétta byggð í Vatnsmýrina. Borgaryfirvöld virðast hafa litið svo á að með því að heimila þessa miklu framkvæmd væru þau að vinna sér tíma til að undirbúa ákvarðanir um framtíð Vatnsmýrar enda hafa verið skiptar skoðanir innan Reykjavíkurlistans og raunar einnig Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn um framtíð vallarins. Mánuði eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri undirritaði bókun um að völlurinn fengi að vera á sínum stað til 2016 skrifaði hún grein í Morgunblaðið þar sem hún vakti athygli á fyrirhugaðri endurskoðun að- alskipulags Reykjavíkur og lýsti þeirri skoðun sinni að í tengslum við endurskoðunina mætti leggja framtíð flugvallarins innan borgarmark- anna eftir 2016 í dóm kjósenda í almennri at- kvæðagreiðslu. Hefur umræðan þróast áfram innan borgarkerfisins og í tengslum við vinnu við svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið og atkvæðagreiðslan verður 17. mars. Þessi þróun mála virtist koma samgönguráð- herra á óvart, kom það fram í viðbrögðum hans á sínum tíma. Sturla Böðvarsson segir í samtali við blaðamann að eftir þá miklu vinnu sem lögð var í undirbúning málsins og samkomulagið við borgina hafi það komið í bakið á yfirvöldum samgöngumála að borgin væri að efna til kosn- inga um framtíð flugvallarins. Hann segir að vissulega nái aðalskipulagið aðeins til 2016 en það hafi ekki hvarflað að embættismönnum í samgönguráðuneytinu eða hjá Flugmálastjórn að til þess gæti komið að flugvöllurinn yrði að víkja innan svo skamms tíma. Sturla segir að vissulega geti borgin breytt skipulagi í ein- hverjum atriðum en þegar um sé að ræða jafn miklar breytingar og hér sé rætt um gerist það yfirleitt með lengri fyrirvara. Þá sé mannvirkið stærra en svo að það geti verið hendingu háð hvort það fái að vera áfram á sama stað eða ekki. Helgi Hjörvar, forseti borgarstjórnar, segir að samgönguyfirvöldum hafi verið fullkunnugt um þær deilur sem staðið hafi um völlinn í ára- tugi og Reykjavíkurborg hafi aldrei skuldbund- ið sig til þess að hafa flugvöllinn lengur en til 2016. Í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu í vik- unni rifjaði Helgi upp ummæli borgarstjóra um atkvæðagreiðsluna, áður en deiliskipulag var endanlega staðfest og framkvæmdaleyfi fyrir endurbótunum gefið út. „Samgönguráðherra má hafa verið ljóst í hvað stefndi og ákvarðanir um að veita fé til endurbóta á Reykjavíkurflug- velli eru alfarið frumkvæði og framtak ráð- herrans og á ábyrgð hans. Leggst lítið fyrir ráð- herrann að víkja sér undan ábyrgð sinni á málinu,“ sagði Helgi í umræddu viðtali. Spurningin ekki klár Skipulag Vatnsmýrar er fyrsta skipulags- málið sem lagt hefur verið fyrir íbúa borgarinn- ar í almennri atkvæðagreiðslu og er á borg- arstjóra og öðrum ráðamönnum borgarinnar að heyra að framhald kunni að verða þar á. Áður hafa verið greidd atkvæði um hundahald í Reykjavík og sameiningu við Kjalarnes og má segja að kosningin um hundahaldið, sem fram fór fyrir mörgum árum, sé eina atkvæðagreiðsl- an sem hægt er að bera saman við kosninguna nú. Hlýtur því að vera mikilvægt að vel takist til. Atkvæðagreiðslan átti að vera fyrr en hefur Niðurstöður dregnar saman Borgaralýðræði, fyrirkomulag atkvæða- greiðslunnar, hvernig verður farið með niðurstöðuna og samantekt greinaflokksins. Sunnudagur 18. febrúar Saga flugvallarins Saga Reykjavíkurflugvallar frá upphafi rakin, en Vatnsmýrin varð fyrst fyrir valinu sem flug- vallarstæði 1919. Birtar myndir úr einstæðu myndasafni Ólafs K. Magnússonar. Þriðjudagur 13. febrúar Völlur kyrr í Vatnsmýri Hugmyndir um breytingar á skipulagi flugvallarsvæðisins. Tillaga að flutningi flugsins á nýja aðalflugbraut í Skerjafirði. Miðvikudagur 14. febrúar Valkostir utan Vatnsmýrar Tillögur að byggingu nýs flugvallar á uppfyllingum í Skerjafirði eða í landi Hvassahrauns, sunnan Hafnarfjarðar. Flutningur innanlandsflugsins til Keflavíkur. Fimmtudagur 15. febrúar Tengipunktur landsins Flutningur innanlandsflugsins til Keflavíkurflugvallar vekur hörð mótmæli fulltrúa landsbyggðar, hagsmunaaðila í flugi og þeirra sem bera ábyrgð á öryggismálum. Föstudagur 16. febrúar Allir kostir fela í sér losun lands Hugmyndir um nýtingu Vatnsmýrarinnar miðað við ýmsa kosti. Laugardagur 17. febrúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.