Morgunblaðið - 11.02.2001, Page 16

Morgunblaðið - 11.02.2001, Page 16
ERLENT 16 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ THABO Mbeki, forsetiSuður-Afríku, er ekki íöfundsverðri stöðu þessadagana. Dýrðarljómi sig- ursins yfir aðkilnaðarstefnunni hefur dvínað þau sex ár sem liðin eru frá fyrstu lýðræðislegu kosn- ingunum er komu Nelson Mandela og Afríska þjóðarráðinu (ANC) til valda í landinu. Gömul vandamál sem dulin voru á bak við grímu að- skilnaðarstefnunnar eru nú komin upp á yfirborðið og krefjast úr- lausnar hið fyrsta ef landið á ekki lenda í sömu ógöngum og svo mörg önnur ríki sunnan Sahara eyði- merkurinnar. Óneitanlega virðist sem margt jákvætt hafi átt sér stað í Suður- Afríku síðan Nelson Mandela varð forseti árið 1994 í fyrstu kosning- unum þar sem allir íbúar landsins höfðu kosningarrétt. Ný stjórnar- skrá hefur tekið gildi, sem er í svipuðum dúr og hjá vestrænum lýðræðisríkjum, og jafnvel hörð- ustu andstæðingar stjórnarinnar og gamlir fylgismenn aðskilnaðar- stefnunnar hafa lýst því yfir að þeir virði stjórnarskrána. Mandela skipaði fjölmarga blökkumenn í stjórn landsins sem og mikinn fjölda kvenna og þykir hún endurspegla þjóðfélagið nokk- uð vel. Fjölmiðlar landsins eru frjálsir undan oki herlaga og kúg- unar og hika ekki við að gagnrýna ríkisstjórnina, en passa sig þó á að styðja ávallt við meginstefnumál hennar. Landið hefur aftur hlotið við- urkenningu umheimsins og er nú virkur þátttakandi í friðargæslu- störfum í Afríku. En á sama tíma hefur efnahagskerfið skroppið saman, menntakerfið er í ólestri og glæpir og alnæmi hafa breiðst eins og eldur í sinu um samfélagið. Auk þess er efnahagslegur ójöfnuður í landinu með því mesta sem gerist í heiminum, líkt og á tímum aðskiln- aðarstefnunnar, og boðar ekki gott fyrir framtíð landsins. Vandamálin hrannast upp Vonleysi og fátækt meðal stórs hluta blökkumanna í S-Afríku end- urspeglast í ört hækkandi glæpa- tíðni sem S-Afríka er að verða hvað þekktust fyrir, enda tíðni al- varlegra glæpa í landinu með því mesta sem gerist í heiminum. Sem dæmi má nefna að tíðni morða í landinu er um 60 morð á hverja 100.000 íbúa, sem er tíu sinnum hærra hlutfall en í Bandaríkjunum, og myndi jafngilda því að um 170 Ís- lendingar væru myrtir árlega. Nauðganir eru einnig hrikalegt vandamál og benda gögn ríkis- stjórnarinnar til þess að tíðni nauðgana sé sú hæsta í heiminum. Flestir glæpir eru hins vegar auðgunarglæpir og um 80% þeirra eiga sér stað í hverfum svertingja. Yfirstéttin verður því lítið vör við glæpaölduna nema í einstaka til- vikum. Skipulögð glæpastarfsemi stendur einnig í miklum blóma og er þar bæði um að ræða innfædda glæpahópa sem og rússneska og nígeríska, sem stunda útflutning á stolnum bílum í stórum stíl auk viðskipta með ólögleg vímuefni og annarrar hefðbundinnar mafíu- starfsemi. Til að stemma stigu við glæpa- fárinu verða íbúar landsins að treysta á 120.000 manna lögreglu- lið sem er vægast sagt illa í stakk búið til að takast á við vandamálið. Ríkisstjórn Mandela erfði lögreglu sem hafði það að meginmarkmiði að viðhalda yfirráðum hvíta minni- hlutans með hvaða aðferðum sem er og voru pyntingar og aftökur al- gengar. Margir liðsmenn lögreglunnar voru einnig gerspilltir og skorti þá grundvallarþjálfun og þann aga sem hefðbundin lögreglustörf í lýð- ræðissamfélagi krefjast. Umbætur á lögreglunni hafa ekki gengið sem skyldi og eru spilling og vanhæfni jafnmikið vandamál og áður. Sem dæmi má nefna að sjálfur yfirmað- ur lögreglunnar hefur viðurkennt að um 30.000 lögreglumenn séu meira eða minna ólæsir. Hin háa glæpatíðni hefur svo valdið því að landflótti meðal menntaðs fólks og sérfræðinga – yfirleitt hvítra eða af indverskum uppruna – er orðið stórt vandamál, þar sem þjóðin missir þá sem best eru í stakk búnir til að hjálpa við að koma landinu á réttan kjöl en eru ekki meðlimir yfirstéttarinnar. Sérstaklega á þetta við um lækna og hefur Suður-Afríka í vax- andi mæli þurft að fá til sín lækna frá löndum eins og Kúbu, Rúss- landi og annars staðar að úr Afríku til að mæta ört vaxandi þörf fyrir læknisþjónustu. Líkt og mörg önnur Afríkuríki glímir Suður-Afríka við mikinn og vaxandi alnæmisfaraldur. Af 43 milljón íbúa landsins er talið að meira en sex milljónir séu HIV- smitaðir og fjölgar smituðum stöð- ugt. Samkvæmt skýrslu samtak- anna Worldwatch frá 1999 má reikna með að um fimmta hver fullorðin manneskja í S-Afríku muni deyja úr alnæmi næstu 10 ár- in. Í ljósi þessa mætti ætla að rík- isstjórnin gerði allt sem í hennar valdi stæði til að stemma stigu við þessari geigvænlegu þróun. En raunin er önnur. Thabo Mbeki hef- ur í stað þess að horfast í augu við vandann kosið leið afneitunar og skellt skuldinni á aðra. Fórnarlömb nauðg- ana og ófrískar konur hafa ekki aðgang að al- næmislyfjum en á sama tíma er hins vegar hátt- settum opinberum emb- ættismönnum og ANC-flokksfor- kólfum boðið upp á slík lyf á kostnað skattborgaranna. Þessi af- staða Mbekis og tregða til að tak- ast á við alnæmi á raunsæjan hátt hefur, að sögn fulltrúa heilbrigð- isstéttarinnar, grafið undan til- raunum þeirra til að ná tökum á vandanum. Óttast menn að hann muni halda áfram að vaxa á meðan ekki verður breyting á stefnu stjórnarinnar. Við þetta má svo bæta að til- raunir Suður-Afríkustjórnar til að verða sér úti um ódýrari alnæm- islyf, bæði með kaupum erlendis frá sem og mögulegri framleiðslu innanlands á ódýrari afbrigðum, leiddi til málsóknar af hálfu vest- rænna lyfjafyrirtækja á þeim for- sendum að einkarétti þeirra á lyfj- unum væri ógnað. Svo virðist sem þrýstingur lyfjafyrirtækjanna hafi virkað og hefur stjórn S-Afríku fallist á breytingar á lögum sem munu tryggja einkarétt fyrirtækj- anna á alnæmislyfjum í landinu. Það hefur hins vegar í för með sér að flestir þeir Suður-Afríkubúar sem í dag eru HIV-smitaðir munu deyja úr alnæmi í náinni framtíð sökum fátæktar. Það bætir ekki úr skák að menntakerfið, sem er besta leiðin til að koma upplýsingum um al- næmi til fólks, er rústir einar og byggist ennþá á menntakerfi að- skilnaðarstefnunnar í stórum dráttum. Eini munurinn er að í dag er nokkrum svörtum börnum hleypt inn í skóla hvítra en flestir svertingjar sitja ennþá við nokk- urn veginn sama borð og á tímum aðskilnaðarstefnunnar þegar kem- ur að menntamálum. Tilraunir til breytinga á kerfinu hafa hrokkið skammt sökum fjárskorts og van- hæfni þeirra sem að málinu koma „Tifandi tímasprengja“ Suður-Afríka hefur í gegnum tíðina talist með ríkustu löndum Afríku en þetta hefur verið að breytast undanfarin ár. Þó svo að stjórn ANC hafi frá byrjun sýnt aðhaldssemi í fjármálum hefur það ekki stöðvað hnignunina í efna- hagskerfinu. Þjóðarframleiðsla hefur minnkað en launin, sem þykja há á afrískan mælikvarða, hafa staðið í stað, sem hefur valdið því að erlendir fjárfestar halda að sér höndum. Gengi gjaldmiðilsins (rand) hefur rýrnað svo um munar sl. ár og er minnkandi gjaldeyr- isforði ríkisins sívaxandi höfuð- verkur meðal ráðamanna. Gulliðn- aðurinn, sem lengi vel var drifkraftur efnahagskerfisins, er nú orðinn gamall og úr sér genginn þar sem hinar auðugu námur landsins verða óhagkvæmari í rekstri með hverju ári sem líður. Sífellt verður að grafa dýpra eftir gulli sem heldur áfram að lækka í verði á heimsmarkaði. Svipaða sögu er að segja af hinni stoð hag- kerfisins, sem er demantaiðnaður- inn, eða öllu heldur fjölskyldufyr- irtækið og fyrrverandi einokunar- risinn De Beers, sem er í eigu Oppenheimer-fjölskyldunnar til margra kynslóða. En þótt hningun efnahagskerf- isins sé sannarlega áhyggjuefni er það skipting hinna minnkandi gæða sem veldur hvað mestum áhyggjum og boðar illt fyrir fram- tíð landsins. Því þótt aðskilnaðar- stefnan hafi að nafninu til verið lögð niður er kynþáttahatur rótgróið og leifar aðskilnaðarstefn- unnar halda áfram að gegnsýra samfélagið. Mestallt land er t.a.m. ennþá í eigu hvítra manna, þótt þeir séu einungis um 10% íbúanna og sömu sögu er að segja af skipt- ingu eigna í verslun og iðnaði. Í stjórnsýslu- og dómskerfinu skipa hvítir enn flestar æðstu stöðurnar og sama á við um her og lögreglu landsins. Um helmingur hvítra manna telst til yfirstéttarinnar, sem ennþá fer með stjórn hagkerfisins í stórum dráttum. Talið er að þessi stétt – sem er um 5% af þjóðinni – stjórni um 90% af auði landsins, líkt og á tímum aðskilnaðarstefn- unnar. Þessi gífurlegi ójöfnuður sem ríkt hefur í Suður-fríku og var hornsteinn aðskilnaðarstefnunnar virðist því enn lifa góðu lífi. Þetta kemur berlega í ljós þegar skoðað er hvernig almenningur býr sam- anborið við þann hluta hvítra manna sem naut hvað mestra ávaxta af aðskilnaðarstefnunni. Meirihluti svartra í landinu býr enn við ömurlegar aðstæður í þétt- býlum hreysishverfum þar sem skortur er á flestu og atvinnuleysi fer í 70% á köflum. Á meðan, bak við háa veggi þakta af gaddavír, situr hvíta yfirstéttin í allsnægtum og sötrar te við sundlaugarbakk- ann. Ekkert hefur breyst varðandi stöðu þessa fólks og það firrir sig ábyrgð á ástandinu í landinu. Flestir úr þessari stétt eru Búar en það var einmitt stjórnmála- flokkur Búa sem kom á aðskiln- aðarstefnunni eftir kosningasigur þeirra árið 1948. Fyrirtækin í eigu þessa hóps tóku virkan þátt í fram- kvæmd aðskilnaðarstefnunnar og nutu góðs af því ódýra vinnuafli sem hún bar með sér. Þegar kemur að glæpum aðskilnaðar- stefnunnar kenna þeir ríkisstjórninni um og segjast ekkert hafa getað aðhafst á þeim tíma. Auk þess benda þeir á að sáttanefndin sem sett var á laggirnar af Nelson Mandela hafi farið ofan í kjölinn á aðskilnaðar- stefnunni og að nú ætti fólk að vera sátt og horfa til framtíðar. Fámennur hópur svartra með völdin Vera má að margir svartir geti fyrirgefið gjörðir hvítu stjórnar- innar en hið gífurlega misræmi í kjörum þeirra er mun erfiðara fyr- ir þá að sætta sig við. Jafnvel erf- iðara gæti verið fyrir þá að sætta sig við að sú eina raunverulega breyting sem átt hefur sér stað er sú að fámennur hópur blökku- manna hefur tekið við stjórn lands- ins og bæst í hóp yfirstéttarinnar. Í þessum hópi er fyrst og fremst að finna háttsetta menn innan stjórnarinnar og velgjörðarmenn þeirra auk fámenns hóps nýríkra svertingja í stjórnum stórfyrir- tækja. Síðastnenfdi hópurinn hefur að mati margra þann eina tilgang að vera andlit út á við og fulltrúi fyrirtækisins í samskiptum þeirra við forkólfa ANC. Hin nýja svarta valdaklíka hefur einnig þótt mjög örlát við sjálfa sig og þykja laun ráðherra og annarra háttsettra ríkisstarfsmanna vera með mesta móti, jafnvel á vestræn- an mælikvarða, og spilling meðal meðlima hennar hefur verið að færast í aukana. Það sem hrjáir þennan hóp hvað mest er hversu margir innan hans eru illa mennt- aðir, enda ólust þeir upp við menntastefnu sem bauð hvítum menntun á heimsmælikvarða á meðan menntakerfi svartra miðað- ist að því að koma þeim fyrir í bás- um aðskilnaðarstefnunnar. Skort- ur á menntun meðal ráðamanna hefur síðan leitt til vanhæfni og spillingar og eru margir þeirra ekki þess megnugir að sinna starfi sínu. Það ætti að vera nokkuð ljóst út frá því sem skrifað hefur verið að Suður-Afríka er eitt hrjáðasta land heimskringlunnar. Ekki er nóg með að glæpir, alnæmi og undir- málsmenntakerfi sé að kippa stoð- unum undan framtíð landsins. Staðreyndin er sú að aðskilnaðar- stefnan, sem átti að heyra sögunni til árið 1994 er að mörgu leyti enn í fullu gildi. Með samningum við ANC hefur hvíti minnihlutinn tryggt lagalega stöðu sína í landinu og haldið fast í það ríki- dæmi sem var afrakstur aðskilnaðarstefnunnar. Sáttanefndin hefur frið- að samvisku þeirra á meðan ábyrgðinni á áframhaldandi efnahagslegri aðskilnaðarstefnu hefur verið komið á axlir fámennr- ar valdaklíku blökkumanna. Í sögulegu samhengi Afríku sunnan Sahara eyðimerkurinnar má færa góð rök fyrir því að lokauppgjörið milli hvíta minnihlutans og blökku- manna eigi ennþá eftir að eiga sér stað nema að hagur svarta meiri- hlutans verði bættur svo um mun- ar í náinni framtíð. Vandinn vex í Suður- Afríku Þrátt fyrir að aðskilnaðarstefnan eigi að heyra sögunni til er hún að margra mati ennþá í fullu gildi í Suður-Afríku. Kári Þór Samúelsson fjallar um þau margvíslegu vandamál sem blasa við í landinu. AP Thabo Mbeki forseta Suður-Afríku bíða mörg erfið úrlausnarefni. Höfundur er stjórnmálafræðingur við nám í Danmörku. Efnahagurinn og mennta- kerfið í ólestri Hætta á loka- uppgjöri milli kynþáttanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.