Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 17
Mótorhjól
Mótorhjólafatnaður
Aukahlutir
Kíktu á
netverslun okkar
gagni.is
sími 461 4025
gagni.is
RÚMLEGA þriðjungur þýskra ung-
menna telur að nasistastjórn Adolfs
Hitlers hafi átt sínar „góðu hliðar“,
samkvæmt skoðanakönnun, sem birt
var í tímaritinu Die Woche. Meðal
14–16 ára unglinga í austurhluta
Þýskalands töldu 15% aðspurðra
jafnvel að nasisminn hefði almennt
verið „góð hugmynd“.
Könnunin var gerð á vegum Forsa-
stofnunarinnar, en hún byggðist á
viðtölum við 1.106 þýsk ungmenni á
aldrinum 14 til 25 ára. Þar af kváðust
47% svarenda frá fyrrum Austur-
Þýskalandi sjá eitthvað jákvætt við
nasismann, á móti 35% svarenda frá
vesturhlutanum. Þá töldu 62% ung-
linga á aldrinum 14 til 16 ára í austur-
hlutanum að nasisminn „hefði ekki
verið alslæmur“.
Ekki er skilgreint nánar hvað felst
í því að ungmennin sjái „góðar hliðar“
á nasismanum, en þeir sem aðhyllast
nýnasisma segja gjarnan atvinnu-
stefnu Hitler-stjórnarinnar vera til
eftirbreytni.
Þýsk stjórnvöld birtu jafnframt í
gær nýja skýrslu, þar sem fram kem-
ur að ofbeldisglæpum gegn útlend-
ingum hafi fjölgað um 39% á síðasta
ári, úr 397 í 553. Helmingurinn af
þessum glæpum var framinn í aust-
urhluta Þýskalands, þrátt fyrir að
þar búi aðeins 2% innflytjenda.
Þýska lögreglan skráði auk þess
13.753 atvik þar sem nýnasistar, gyð-
ingahatarar eða útlendingahatarar
komu við sögu, samanborið við 9.456
atvik árið áður. Otto Schily, innanrík-
isráðherra Þýskalands, sagði þetta
mikið áhyggjuefni fyrir yfirvöld.
Niðurstöður könnunarinnar í Die
Woche eru ekki til þess fallnar að
vekja bjartsýni að þessu leyti, því
46% austur-þýsku ungmennanna
töldu of marga útlendinga vera í land-
inu og það sama sögðu 40% ung-
mennanna í vesturhlutanum.
Þriðjungur sér „góðar
hliðar“ á nasismanum
Berlín. The Daily Telegraph.
Skoðanakönnun meðal ungmenna í Þýskalandi
EVRÓPUSAMBANDIÐ boðaði á
föstudag samræmdar aðgerðir gegn
sölu á konum og börnum til kynlífs-
þrælkunar í Evrópu.
Innanríkis- og dómsmálaráðherr-
ar ríkja ESB hétu því á tveggja daga
fundi í Stokkhólmi að samræma að-
gerðir sínar í baráttunni gegn slíku
mansali og kynferðislegri misnotkun
á börnum. Evrópusambandið segir
að hundruð þúsunda ungra kvenna
og barna frá Austur-Evrópu séu
flutt með ólöglegum hætti til ESB-
ríkjanna á ári hverju og mörg þeirra
séu hneppt í kynlífsánauð.
Thomas Broström, dómsmálaráð-
herra Svíþjóðar, sagði að óyggjandi
sannanir væru fyrir því að stúlkur
væru seldar til vændis og annarrar
kynlífsþrælkunar í Evrópu, oft fyrir
andvirði 16.000–160.000 króna.
Hann kvaðst hafa hitt stúlku í Bosn-
íu sem hefði verið seld alls átján
sinnum.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins hefur lagt fram tillögur
sem miða að því að samræma við-
urlög við sölu á fólki til kynlífsþrælk-
unar og barnaklámi og skilgreining-
ar á þessum glæpum.
Aðgerðir
gegn
kynlífs-
þrælkun
Stokkhólmi. Reuters, AP.
JAPANSKIR lögreglumenn, sem
rannsaka hvarf breskrar konu,
Lucie Blackman, skýrðu frá því á
föstudag, að þeir hefðu fundið lík af
konu, sem þeir vissu þó ekki hver
væri vegna þess, að höfuðið væri
hulið steinsteypu. Blackman hvarf
um mitt síðasta ár og hefur málið
vakið mikla athygli í Japan þar sem
glæpir gegn vestrænum konum eru
fátíðir.
Að sögn lögreglunnar fannst lík-
ið, það er að segja höfuð, búkur og
handleggir, í helli við ströndina
skammt frá bænum Miura, sem er í
45 km fjarlægð frá Tókýó. Hefur
verið leitað sérstaklega á þessu
svæði síðan lögreglan handtók Joji
Obara, 48 ára gamlan byggingar-
verktaka í Tókýó, en hann er sak-
aður um að hafa nauðgað fimm
konum, erlendum og japönskum, og
manndráp að auki. Fannst líkið í
250 metra fjarlægð frá íbúð, sem er
í eigu Obara.
Blackman var 22 ára gömul og
var áður flugfreyja hjá British
Airways. Þegar hún hvarf vann
hún á krá í Roppongi-nætur-
klúbbahverfinu í Tókýó. Síðast í
júní sagði hún stúlku, sem hún
leigði með, að hún ætlaði í dagsferð
á Chiba-ströndina fyrir austan
Tókýó með einhverjum manni.
Obara, sem er auðugur maður, er
auk nauðgananna sakaður um að
hafa valdið dauða ástralskrar konu
1992 en hann hafði þann háttinn á
að lauma lyfjum í drykki þeirra
kvenna, sem hann nauðgaði.
Illa leikið konulík
finnst í helli í Japan
Tókýó. Reuters, AFP.