Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 18
ÍÞRÓTTIR
18 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Frjáls-
íþrótta-
menn á
faraldsfæti
ÍSLENSKIR frjálsíþrótta-
menn verða í æfingabúðum
utan landsteinanna um
páskana til þess að búa sig
undir átök sumarsins. Vitað
er að 41 íþróttamaður frá
frjálsíþróttadeild FH verður í
11 daga æfingabúðum við
Algarve í Portúgal fyrri
hluta apríl. Á sama tíma
verða 27 frjálsíþróttamenn
frá Breiðabliki við æfingar á
svipuðum slóðum.
Skagfirðingar verða einn-
ig á faraldsfæti á þessum
tíma og á milli 15 og 20
manna hópur frá frjáls-
íþróttadeild UMSS, undir
stjórn Gísla Sigurðssonar,
stefnir að æfingabúðum í
Athens í Bandaríkjunum.
Þá hefur heyrst að fleiri
félög stefni á æfingabúðir á
svipuðum tíma utan land-
steinanna, en búðir sem þess-
ar eru orðnar fastur liður í
starfi margra deilda líkt og
hjá knattspyrnufélögunum.
KSÍ hefur endurnýjað samninga
við Ólaf Þór Guðbjörnsson þjálf-
ara U-17 ára landsliðs kvenna og
Ragnheiði Skúladóttur þjálfara
U-19 ára landsliðs kvenna. Samn-
ingarnir eru til tveggja ára en
haust eð var gekk KSÍ frá
tveggja ára samningi við Jörund
Áka Sveinsson þjálfari A-lands-
liðs kvenna og U-21 árs liðsins.
Þjálfarar karlalandsliðanna á
þessu ári verða allir þeir sömu en
þeir eru allir á seinna ári af
tveggja ára samningi sínum. Atli
Eðvaldsson er þjálfari A-lands-
liðsins, Sigurður Grétarsson
þjálfari U-21 árs liðsins, Guðni
Kjartansson þjálfar U-19 ára lið-
ið og Magnús Gylfason U-17 ára
liðið.
Ólafur og Ragnheiður
þjálfa unglingana
Ieper er nú í 4. sæti í belgísku deild-inni með 35 stig en Oostende er á
toppnum með 41 stig. „Það hafa ver-
ið mikil meiðsli í
hópnum hjá okkur
og þrír til fjórir lyk-
ilmenn eru meiddir.
Sjálfstraustið hjá
leikmönnum sem hafa leikið minna
er ekki eins gott og hjá þeim sem
venjulega eru í byrjunarliði og því
hefur ekki gengið sem skyldi að und-
anförnu,“ sagði Helgi, sem lék með
Antwerpen í fyrra og hampaði bikar-
og Belgíumeistaratitli með liðinu.
Fyrir tímabilið í ár fór hann ásamt
ellefu öðrum leikmönnum, þjálfara
og öðru starfsfólki frá Antwerpen,
yfir í Ieper og ætlaði liðið sér því
stóra hluti í ár. „Við eigum í raun tvo
titla að verja og það er stefnan að
halda þeim þótt við séum hjá öðru
félagi núna,“ sagði Helgi.
Leikjaáætlun Ieper hefur verið
þéttskipuð síðastliðna tvo mánuði
þar sem það tekur þátt í Evrópu-
kenni félagsliða ásamt því að leika í
deildar- og bikarkeppninni í Belgíu.
Liðið sló Ceceras frá Spáni út úr
Evrópukeppninni á miðvikudaginn
og er komið í undanúrslit keppninni-
ar.
Helgi hóf atvinnumannaferil sinn
hjá Groningen í Hollandi fyrir tveim-
ur árum og lék þar í eitt tímabil áður
en hann gekk til liðs við Antwerpen í
fyrra. Þetta er því þriðja tímabil
Helga sem atvinnumaður en hann
gerði tveggja ára samning við Ieper
fyrir þetta leiktímabil. „Ég hef tví-
mælalaust bætt líkamlegan styrk
minn, en það er kannski ekki beint
fyrir mig að dæma um hvort ég hafi
bætt mig körfuboltalega séð – það er
frekar að aðrir sjái það – en ég held
ég hafi bætt mig,“ sagði Helgi Jónas
sem segir körfuboltann í Belgíu tölu-
vert frábrugðinn þeim sem leikinn er
á Íslandi. „Ég held að það sé engin
spurning að liðið hér sé mun betra en
það besta á Íslandi. Það felst mikið í
líkamlegum styrk leikmanna sem
gerir það að verkum að varnarleik-
urinn verður mun harðari. Körfu-
boltinn hérna er einnig miklu skipu-
lagðari. Hérna er leikur
andstæðinganna skoðaður mjög náið
og farið í gegnum leikkerfi þeirra á
æfingum. Það er því stór munur á
undirbúningi. Frá sjónarmiði hæfi-
leika er Ísland alls ekki á eftir –
munurinn felst helst í styrk og hæð-
armuni. Það vilja margir meina að
það séu frábærar skyttur á Íslandi
og það er það vörumerki sem við Ís-
lendingar höfum, en það eru ekkert
síðri skyttur hérna á meginlandinu.“
Íslenska landsliðið í körfuknatt-
leik vann í síðasta mánuði sinn fyrsta
sigur í undanúrslitarriðli Evrópu-
keppninnar í leik gegn Portúgal þar
sem Helgi Jónas skoraði ævintýra-
lega úrslitakörfu á lokasekúndunum.
„Ég vil ekki meina að ég hafi verið að
spila neitt frábærlega með landslið-
inu. En það eru framfarir hjá lands-
liðinu þar sem við unnum okkar
fyrsta leik um daginn og fólk sér
breytingar á liðinu og það er já-
kvætt. Ég held þó að landsliðið verði
ekkert betra fyrr en að yngri leik-
mennirnir fari að fara utan í betri
deildir og fái reynslu við að spila
hörkuleiki daginn út og inn. Það er
mikið af hæfileikaríkum leikmönn-
um heima sem verður gaman að sjá í
framtíðinni,“ sagði Helgi sem kemur
til með að taka þátt í næstu undan-
keppni landsliðsins sem hefst í byrj-
un júní. Þar munu Íslendingar mæta
Finnum, Írum og Svisslendingum.
Góðar skyttur – ís-
lenskt vörumerki
ÍSLENSKIR körfuknattleiks-
menn eru ekki áberandi í
Evrópu um þessar mundir en
hafa í gegnum árin getið sér
gott orð fyrir að vera góðar
skyttur. Helgi Jónas Guðfinns-
son er sem stendur eini íslenski
leikmaðurinn sem hefur körfu-
knattleik að fullri atvinnu en
hann leikur með belgíska
úrvalsdeildarliðinu Ieper.
Ljósmynd/Bart Vandenbroucke
Helgi Jónas Guðfinnsson í leik með íslenska landsliðinu gegn því belgíska á nýliðnu ári en Helgi
Jónas hefur leikið með tveimur belgískum félagsliðum í Korac-keppninni, Antwerpen og Ieper.
Íris Björk
Eysteinsdóttir
skrifar
frá Belgíu
KRISTINN Jakobsson, milliríkja-
dómari í knattspyrnu, hefur fengið
verkefni í vor í undankeppni heims-
meistaramótsins. Hann dæmir leik
Írlands og Andorra sem fram fer í
Dublin 25. apríl. Aðstoðardómarar
verða Eyjólfur Finnsson og Ólafur
Ragnarsson og varadómari verður
Bragi Bergmann.
TEITUR Þórðarson, þjálfari
norska knattspyrnufélagsins Brann,
ítrekaði gagnrýni sína á leikstíl
norska landsliðsins þegar hann hitti
Nils Johan Semb, landsliðsþjálfara
Noregs, á fundi á miðvikudagskvöld-
ið. Teitur gagnrýndi Semb og
norska landsliðið talsvert á síðasta
ári og um það var talsvert fjallað í
norskum fjölmiðlum.
„VIÐ ræddum þessa gagnrýni og
leikstíl norska liðsins, og í ljós kom
að ýmislegt sem haft var eftir okkur í
fyrra var ekki rétt með farið. En við
erum á öndverðum meiði í þessu máli
og ég hvika ekki á nokkurn hátt frá
því sem ég hef áður sagt um landslið
Noregs,“ segir Teitur í samtali á
heimasíðu Brann.
CHRIS Webber körfuknattleiks-
maður er með lausan samning við
Sacramento í sumar og allar líkur
eru á því að hann fari frá félaginu.
Sacramento hefur aldrei leikið betur
eftir að Webber kom til liðsins en
Washington Wizards lét Webber
fara í skiptum fyrir Mitch Richmond
eftir keppnistímabilið 1997–1998.
NBA-þjálfararnir Dave Cowens,
Golden State, og Larry Brown,
Philadelphia, völdu óþekkta leik-
menn á borð við Bonzi Wells og Peja
Stojakovic í stjörnuliðið. Cowens og
Brown voru að reyna að tryggja að
„þeirra“ leikmenn fengju minni sam-
keppni í valinu. Brown fékk ósk sína
uppfyllta og Theo Ratliff var valinn
en Golden State-leikmaðurinn Ant-
awn Jamison fær ekki að vera með
að þessu sinni.
TOM Nordlie var á föstudaginn
vikið úr starfi þjálfara hjá norska
knattspyrnuliðinu Vålerenga. Undir
stjórn Nordlie féll félagið úr úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð, en það er
eitt af ríkari félögunum í Noregi.
Kjetil Rekdal, fyrrum félagi Eyjólfs
Sverrissonar í Herthu Berlin, tekur
við stjórn liðsins af Nordlie.
FABIO Capello er ákveðinn í að
framlengja samning sinn við ítalska
knattspyrnuliðið Roma um tvö ár.
Mörg af stærri félögum í Evrópu
hafa undanfarin misseri borið víurn-
ar í Capello og þar má nefna lið eins
og Manchester United og Barce-
lona. Þessi lið og fleiri verða því að
bíða um sinn en Rómverjar eru him-
inlifandi yfir því að hafa náð samn-
ingum við Capello og ætla að greiða
honum 250 milljónir króna í árslaun.
ROBBIE Keane, framherji Leeds,
sem er í láni frá Inter, var á föstu-
daginn útnefndur leikmaður janúar-
mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.
Keane skoraði fimm mörk fyrir
Leeds í janúar og hann hefur átt
stóran þátt í að þoka liði Leeds upp
stigatöfluna í deildinni.
TERRY Venables hjá Middlesbro-
ugh var fyrir valinu sem knatt-
spyrnustjóri janúarmánaðar. Undir
stjórn Venables hefur „Boro“ tekið
stakkaskiptum og er án taps í síð-
ustu 11 leikjum.
KNATTSPYRNUSAMBAND
Evrópu, UEFA, hefur sett rautt ljós
á heimavöll knattspyrnufélagsins
Brann frá Noregi. Björgvinjarliðið
leikur í forkeppni Meistaradeildar
Evrópu og komist liðið í riðlakeppn-
ina verður það að leika heimaleiki
sína á öðrum velli í Noregi.
NILS Arne Eggen, þjálfari Ros-
enborg, var á dögunum tilbúinn að
lána Brann peninga til þess að liðið
þyrfti ekki að selja bestu leikmenn
sína vegna fjárhagsvandræða sinna.
Fari svo að Brann komist í riðla-
keppnina er líklegt að liðið verði að
leika heimaleikina á Lerkendal,
heimavelli Rosenborg.
FÓLK
Gunnar Oddsson, leikjahæstileikmaður efstu deildar frá
upphafi, gekk rétt fyrir helgina frá
nýjum eins árs samningi við Kefl-
víkinga og leikur því með þeim í
sumar. Gunnar, sem er 35 ára,
íhugaði að leggja skóna á hilluna en
verður að minnsta kosti eitt ár til
viðbótar með Suðurnesjaliðinu, sem
hann þjálfaði síðari hluta síðustu
leiktíðar.
Hann á að baki 276 leiki í efstu
deild, þar af 159 fyrir Keflavík.
Þá hafa Keflvíkingar samið við
Gest Gylfason til eins árs en samn-
ingur hans var útrunninn. Enn er
hinsvegar ósamið við Eystein
Hauksson, sem lék ekkert með
Keflavík á síðasta ári vegna
meiðsla.
Sömdu ekki
við McMillan
Keflvíkingar ákváðu í gær að
semja ekki við Alistair McMillan,
skoska knattspyrnumanninn sem
hefur æft með þeim að undanförnu.
McMillan lék með Grindavík árið
1999. „Þessi ákvörðun er óháð getu
hans sem knattspyrnumanns, við
ætlum einfaldlega að reyna að kom-
ast hjá því að vera með erlenda
leikmenn í ár og gefa frekar okkar
ungu strákum tækifæri,“ sagði
Rúnar Arnarson, formaður knatt-
spyrnudeildar Keflavíkur, við
Morgunblaðið.
Gunnar áfram
með Keflavík