Morgunblaðið - 11.02.2001, Page 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 23
heildverslun sími 461 4025
Max - heilsárstorfærutæki
Hringdu og fáðu íslenskan bækling í pósti.
VERKIÐ á myndinni er ein af
þremur stúdíum sem listamaðurinn
Francis Bacon gerði af elskhuga
sínum, John Edwards. Verkin þrjú
voru seld á uppboði á fimmtudag
hjá uppboðshúsi Christie’s í London
fyrir rúmar þrjár milljónir punda,
eða hátt í 400 milljónir króna.
Kaupandi verksins lét ekki nafns
síns getið, en að sögn forstjóra
Christie’s lýsti Bacon sjálfur verk-
unum sem nógu góðum til að þeim
væri komið fyrir á listasafni.
AP
Francis
Bacon á
uppboði
NÚ stendur yfir sýningin
Myndabanki.is í Tjarnarsal
Ráðhúss Reykjavíkur. Þetta er
sölusýning á ljósmyndum og
teikningum. Þeir sem að sýn-
ingunni standa eru Brooks
Walker, Hreinn Hreinsson, Jó-
hann Ísberg, Jóhann Óli Hilm-
arsson, Jón Baldur Hlíðberg,
Lárus Karl Ingason og Sigurð-
ur H. Stefnisson.
Sýningunni lýkur 19. febrú-
ar.
Mynda-
banki.is í
Tjarnarsal
Ráðhússins