Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 36

Morgunblaðið - 11.02.2001, Side 36
MINNINGAR 36 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ H efur höfuðborg skyldum að gegna sem aðrar borgir hafa ekki? Svarið við þessari spurn- ingu er barnalega einfalt: Já. Og það þarf ekki að fara út í mikið ab- strakt til að útlista þessar skyld- ur. Dugar að benda á, að höfuð- borg, til dæmis Reykjavík, er höfuðstaður landsins alls. Reykja- vík er höfuðborg Íslands. Hefur það kannski gleymst í allri um- ræðunni um framtíð Reykjavíkur- flugvallar? Spurningin virðist í raun snúast um það hvort völlurinn verði áfram þar sem hann er í Vatns- mýrinni, eða verði aflagður og innanlandsflug flytjist til Kefla- víkur. Aðrir kostir eru sennilega hugarórar til þess gerðir að mað- ur þurfi ekki að horfa upp á nöturlegan veruleikann. Frá sjónar- horni landsbyggðarinnar er best að völlurinn verði áfram þar sem hann er til þess að samgöngur við höfuðborgina geti verið sem greiðastar. Það er ekki aðeins að þeir sem búa úti á landi eigi erindi við stjórnsýslu landsins, sem er að mestu í Reykjavík, í höfuð- staðnum eru líka hlutir eins og þjóðleikhús, gott ef þar er ekki Þjóðmenningarhús, Landsbóka- safn, og listasafn sem kennt er við Ísland. Svo er þarna háskóli kenndur við sama land. Væntan- lega eru þetta allt saman stofn- anir sem eru í „eigu“ landsbyggð- arlýðsins jafnt sem borgarbú- anna. Og það er ekki hægt að nálgast þjónustu þessara stofn- ana á Netinu – nema náttúrlega Þjóðleikhúsið fari að taka upp beinar útsendingar frá sýningum. Og svo er er það heilsugæslan. Þær eru bókstaflega óteljandi fréttirnar sem borist hafa af slys- um úti á landi og enda á því að sagt er að hinn slasaði eða hinir slösuðu hafi verið fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Vegna þess að í Reykjavík eru fullkomnustu sjúkrahús landsins. Þess vegna þurfa slasaðir og veik- ir dreifbýlingar að geta átt jafn- greiða leið og höfuðborgarbúar inn á sjúkrahús í höfuðborginni sinni. Þess vegna er það skylda Reykjavíkur að vera eins að- gengileg og mögulegt er. Þessi skylda er þó kannski ekki beinlín- is höfuðborgarskylda – og þó, er ekki þarna spítali kenndur við landið allt? Margir landsbyggðarbúar þurfa að leita til Reykjavíkur til lengri dvalar vegna alvarlegra sjúkdóma sem krefjast langtíma- meðferðar. Að vera veikur er slæmt – að ekki sé nú minnst á al- varlega veikur – en það er jafnvel enn verra að þurfa að dvelja fjarri heimahögum þegar maður er veikur. Og fyrir landsbyggðar- mann í Reykjavík er veruleikinn sá, að því nær sem maður er flug- vellinum, því nær er maður heimahögunum. Auk þessa skiptir miklu máli að sjúkraflug geti verið utan af landi beint til Reykjavíkur, og helst þannig að sem styst sé frá lend- ingarstað og á sjúkrahús. Og það þarf að vera hægt að nota flug- vélar í þetta. Þyrlur geta ekki séð um allt sjúkraflug. Jakob Ólafs- son, þyrluflugstjóri hjá Landhelg- isgæslunni, skrifaði í Morgun- blaðið á fimmtudaginn var, og grein hans er með því málefnaleg- asta sem sést hefur í flugvallar- umræðunni. Það er því full ástæða til að endurtaka orð hans: „Í öllum þessum flugvallar- vangaveltum er iðulega látið að því liggja að þyrlur geti og sjái nú þegar um megnið af sjúkraflugi hér á landi. Þetta er fjarri sann- leikanum, í hverjum landshluta fljúga sjúkraflugvélar á annað hundrað sjúkraflug á ári. Þyrl- urnar eru mest í sjúkraflutning- um þar sem flugvélum verður ekki við komið, en þær eru að jafnaði meira en helmingi hæg- fleygari en flugvélarnar og geta ekki flogið eins hátt og þær. Þeg- ar sjúklingar eru sóttir með þyrlu á hálendið og á haf út fjarri Reykjavík, t.d. á Norður- og Austurlandi, er oft beðið um sjúkraflugvél á næsta flugvöll til að flýta för sjúklings á sjúkrahús í Reykjavík.“ Jakob bendir enn- fremur á, meðal annars, að vind- afar sé hagstætt á Vatnsmýrar- flugvelli, og á þeim forsendum sé einnig affarasælast að hafa völl- inn þar sem hann nú er. Stundum grunar mann að sum- ir borgarbúar sjái málið dálítið mikið frá einni hlið. Athyglisvert væri ef hægt væri að koma því við að gera könnun á því hvort það eru fremur Reykvíkingar sjálfir eða dreifararnir sem nota Reykjavíkurflugvöll. En úr því að ekki er að vænta slíkrar könnunar verður maður að láta duga vanga- veltur um hvernig málinu sé að líkindum háttað. Þá er ágætt að byrja á spurningum. Til dæmis: Hvað gæti rekið Reykvíkinga til að fara út á land? Og hvað gæti rekið landsbyggðarbúa til að fara til Reykjavíkur? Eru svörin við þessum spurningum líkleg til að vera hin sömu? Nei. Borgarbúar fara kannski á sumrin þangað sem sólin skín, eða um páskana á skíði á Ísafjörð eða Akureyri. Dæmi eru um staðfasta borgarbúa sem hafa slysast út á land um miðjan vetur með engin skíði og komið aftur í bæinn flaumósa yfir skelfilegri dvöl þarna úti í landinu þar sem er snjór. Talandi um „vetrardvala- staðinn“ Akureyri – nei, það vant- ar ekki err í orðið, vetrarDVALA- staðinn. Enginn kúltur – bara vídeó. Hryllingur! (En soldið fynd- ið að vísu hvernig fólkið talar). Það er varla við því að búast að þetta fólk sjái punktinn í því að hafa flugvöll í miðri Reykjavík á þeim forsendum að það þurfi að vera samgöngur til landsins þar sem er snjór. Því er vel skiljanlegt að frá sjónarhorni margra borgarbúa snúist flugvallardeilan alls ekki um samgöngumál, og allt tal um nauðsyn þess að sem styst sé til borgarinnar fari fyrir ofan garð og neðan hjá þeim. En vegna þess að það eru þeir – en ekki landsmenn allir – sem fá að segja álit sitt á því hvort völlurinn verð- ur áfram í borginni eða ekki, væri æskilegt að þeir myndu reyna að sjá málið frá öðru sjónarhorni. Þetta er ekki spurning um sam- göngur frá Reykjavík, heldur samgöngur til Reykjavíkur. Til Reykja- víkur Fyrir landsbyggðarmann í Reykjavík er veruleikinn sá, að því nær sem maður er flugvellinum, því nær er maður heimahögunum. VIÐHORF Eftir Kristján G. Arngrímsson ✝ Sigríður EyglóÞórðardóttir fæddist 5. ágúst 1931 í Vík í Mýrdal. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudag- inn 5. febrúar síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Þórður Stefánsson, héraðs- bókavörður og verkamaður í Vík, f. 25.7. 1894, d. 7.4. 1981, og Guðrún Ingibjörg Sigurðar- dóttir, húsmóðir, f. 7.1. 1899, d. 9.11. 1988. Systkin Sigríðar Eyglóar: Vilborg Magnea Þórðardóttir, f. 9.6. 1922, Jóna Þórðardóttir, f. 15.6. 1923, áður gift Ingvari Sigurðssyni, f. 6.6. 1910, eignuðust tvö börn, Unnur Þórðardóttir, f. 1.3. 1926, d. 7.1. 1993, Kristbjörg Þórðardóttir, f. 8.4. 1928, gift Daníel D. Berg- mann, f. 16.11. 1923, eiga þau þrjú börn, Stefán Ármann Þórðarson, f. 30.9. 1929, kvæntur Sigrúnu Jóns- dóttur, f. 27.2. 1935, eiga þau fimm börn, Ólafur Þórðarson, f. 1.11. Ólöfu Jónu Friðriksdóttur, sjúkra- liða, f. 11.3. 1960. Börn þeirra eru: Andrea Þóra, f. 10.3. 1983, Anna Kristín, f. 11.11. 1987. Stjúpdóttir Guðna, dóttir Ólafar, er Áslaug Margrét, f. 19.5. 1979. 3) Ingibjörg Vala Jónsdóttir, húsmóðir, f. 16.1. 1962. Hún er í sambúð síðan 1990 með Jóni Engilbert Sigurðssyni, vélstjóra, f. 4.9. 1968. Börn þeirra eru: Sigurður Einar, f. 17.2. 1996, Marta María, f. 19.11. 1998, Sús- anna Erna, f. 19.11. 1998. Sigríður Eygló ólst upp í Vík í Mýrdal. Á unglingsárum starfaði hún m.a. við afgreiðslu- og skrif- stofustörf hjá Kaupfélagi V-Skaft- fellinga. Liðlega tvítug fluttist hún til Reykjavíkur og starfaði hjá Landsbanka Íslands, þar til hún stofnaði heimili með Jóni Gunnari. Hún hóf störf á ný upp úr 1970, m.a. á gæsluvöllum Reykjavíkur- borgar og hjá Austurbæjarbíói. Árið 1980 hóf hún störf hjá SÁÁ, fyrst á Silungapolli og síðan á Vogi og sá um þvottahús sjúkrahússins. Hún starfaði síðan hjá Breiðholt- sapóteki 1988–1997 við ýmis þjón- ustustörf. Hún tók hin síðari ár virkan þátt í félagsstarfi eldri borgara í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi. Útför Sigríðar Eyglóar fer fram frá Fella- og Hólakirkju á morgun, mánudaginn 12. febrúar, og hefst athöfnin klukkan 15. 1937, kvæntur Kol- brúnu Valdimarsdótt- ur, f. 2.2. 1934, eiga þau þrjú börn. Sigríður giftist 19.7. 1957 Jóni Gunnari Kristinssyni, verslun- arstjóra, f. 12.3. 1932, d. 3.6. 1985. Foreldrar hans voru Einara Andrea Jónsdóttir, kjólameistari, f. 8.2. 1902, d. 27.3. 1986, og Kristinn Jóhann Helgason, vélfræðing- ur og ökukennari, f. 1.4. 1896, d. 31.3. 1935. Fósturfaðir Jóns Gunnars var Hjörtur Kristmundsson, skóla- stjóri, f. 1.2. 1907, d. 17.6. 1983. Sigríður og Jón Gunnar skildu 1980. Börn Sigríðar og Jóns Gunn- ars eru: 1) Einar Kristinn Jónsson, rekstrarhagfræðingur, f. 23.4. 1957. Hann kvæntist 1979 Kristínu Einarsdóttur, kaupmanni, f. 11.12. 1955, slitu samvistir 1998. Börn þeirra eru: Ásgeir Orri, f. 21.2. 1980, Rúnar Ingi, f. 4.7. 1985. 2) Guðni Þór Jónsson, sölustjóri, f. 14.10. 1959. Hann kvæntist 1988 Það er erfitt að sjá á bak nánasta ástvini, sem hafði mikið að gefa. Hvernig er hægt að koma þeim til- finningum á blað sem bærast í brjósti manns? Sem samfléttast við ótal margar minningar liðinna ára, allt frá blautu barnsbeini. Ég get ekki annað en flutt fátæk- leg þakkarorð, mamma mín, til þín. Fyrir þá persónu sem þú varst. Þú varst prýdd fágætum styrkleika, sem öllum var ekki alltaf sýnilegur. Þessi styrkleiki var sérstaklega augljós þegar mikið lá við, og sýndi sig í stað- festu, stöðugleika, kappi og trú á það sem maður ætlaði sér þar til fulln- aðarsigur var í höfn. Þetta kom berlega í ljós í barátt- unni við sjúkdóminn undanfarin þrjú misseri. Aldrei að hopa heldur skyldi mæta hverjum degi og hverju skrefi af staðfestu og trú á lífið. Við áttum langt og ógleymanlegt samtal um trúna á lífið þegar erfiðleikarnir sýndust hrannast upp í þessari bar- áttu. Lífið með öllu því sem það hefur upp á að bjóða, bæði gleði og sorg, vonir og vonbrigði, var alltaf þess virði að lifa því. Styrkleikinn fólst einnig í einfald- leika og yfirlætisleysi. Þú brýndir fyrir mér á þinn hátt hvað þessir kostir væru þýðingarmiklir og lifðir eftir þeim sjálf, sem sjá mátti í fasi þínu og atlæti. Þetta eru líka fátækleg þakkarorð, mamma mín, fyrir þann vin sem þú hafðir að geyma. Ég naut þess ríku- lega, að vera ekki bara sonur þinn, heldur líka að eiga djúpa vináttu þína, sem bæði gaf og tók. Hún var gagnkvæm þessi vinátta og treystist æ sterkari böndum með árunum. Þú varst næm á tilfinningar. Á erfiðum stundum í lífi mínu reyndist þú ómet- anleg; stuðningur þinn var veittur af nægtarbrunni kærleika og djúpum skilningi á tilfinningum og breysk- leika manneskjunnar. Á gleðistund- um samfögnuðum við, í síma eða yfir kaffibolla, eða ef eitthvað spennandi var í farvatninu. Hvernig er hægt að þakka þessa vináttu, nema ef til vill með því að lifa minninguna áfram og njóta hennar, og segja: Mamma mín, takk fyrir að hafa verið þarna. Þetta eru líka fátækleg þakkarorð, mamma mín, fyrir þá mömmu og ömmu sem þú varst. Þú gafst mér líf- ið sjálft – og sýndir mér síðar þýð- ingu þess að hafa trú á því og hjálp- aðir mér að skilja refilstigu þess. Með þér eignaðist ég ömmu og afa sem voru mér ógleymanleg og ómetanleg. Með þér eignuðust strákarnir mínir ömmu, sem þeim þótti afar vænt um og skipti þá máli, og þeir sakna þín nú. Það var þér mikils virði að fá alla fjölskylduna til að heimsækja þig á spítalann fyrir stuttu og njóta sam- verunnar ekki síst við barnabörnin. Þetta eru búnir að vera erfiðir mánuðir undanfarið. En sólargeisl- arnir hafa líka verið ósparir á að færa okkur birtu og yl inn í lífið. Þannig áttum við öll ánægjulegar stundir um jólin og jólatrésskemmtunin, sem við fórum á með stuttum fyrirvara, var okkur öllum ógleymanleg og þú tal- aðir um lengi á eftir. Í baráttunni undanfarnar vikur hefurðu sýnt ótrú- legan styrkleika, svo eftir er tekið, allt fram á síðustu stundu. Við vitum, mamma mín, að þú munt njóta þess ferðalags sem nú er hafið. Við söknum þín öll, og munum lifa með þér í huganum um ókomin ár, í djúpu þakklæti fyrir öll árin sem við áttum saman og allt það sem þú gafst okkur, bæði í vöggugjöf og síð- ar í lífinu. Við skiljum einnig að að endalokum þessa lífs hlaut að koma og trúum að þín bíði þjáningarlaus og hamingjusöm tilvera, sem þú munir njóta vel. Bestu þakkir, mamma mín, og lifðu í friði. Einar Kristinn. Við mamma vorum alla tíð mjög nákomin allt frá því að ég lá í móð- urkviði. Þegar ég kom í heiminn fyrir rúmum fjörutíu árum síðan urðum við náin og þegar ég óx úr grasi urð- um við miklir vinir. Henni var sérlega umhugað um alla mína hagi og leit- aðist við að styðja mig eftir fremsta megni og eftir að ég var kominn með fjölskyldu og börn var hún ávallt að spyrja mig um hvernig gengi hjá dætrum mínum og var umhugað um velferð þeirra. Við sátum oft saman í seinni tíð og ræddum málin, hún hafði svo mikið að gefa. Ég hygg að ég hafi verið rólegur á uppvaxtarár- um mínum og við áttum samleið í svo mörgu og ég reyndi að styðja hana og styrkja eins og sonur gerir við móður allt til endaloka. Þau pabbi skildu þegar ég var tvítugur og það hafði miklar breytingar í för með sér fyrir hana og alla fjölskylduna. Eftir skiln- aðinn var eins og fram kæmi ný kona, sem hafði svo mikinn kraft og eldmóð að ekki var annað hægt en að hrífast með. Á þessum tíma treystum við böndin enn frekar þótt ég væri að vinna uppi á hálendi við virkjana- framkvæmdir og hún í bænum. Það sem ég dáðist alltaf að í fari hennar var hversu mikil baráttukona hún var í öllu því sem hún tók sér fyrir hend- ur og leitaðist við að vera sjálfstæð persóna. Það fór ekki mikið fyrir henni og ekki var hún að trana sér fram en hún hafði einarðar skoðanir á því sem hún tók sér fyrir hendur en var alltaf tilbúin að þiggja góð ráð og miðla af sinni reynslu til mín. Hún lagði hart að sér í vinnu og var vel metin meðal sinna samstarfsmanna, hún var vinur vina sinna og ræktaði sambandið við þá af kostgæfni. Hún var mikil hannyrðakona og síðustu árin kynnist hún nýrri list í félags- starfi í Gerðubergi en það var að perla og bjó til marga fallega muni úr perlum. Um síðustu jól færði hún mér fallegan lampa úr perlum sem hún hafði lagt allt kapp á að klára fyr- ir hátíð ljóss og friðar. Ég vissi að hún hafði lagt hart að sér þrátt fyrir veikindi sín að klára þessa gjöf til mín en hún vildi gefa mér táknræna gjöf til minningar um sig. Í þessum fátæklegu orðum langar mig til að þakka vini hennar mömmu, Ólafi Jóhannessyni eða Óla eins og við kölluðum hann, fyrir hans stuðn- ing, vináttu og eindrægni sem hann sýndi mömmu. Þar komu saman tvær sjálfstæðar persónur sem áttu það sameiginlegt að geta stutt hvor aðra og gefið hvor annarri styrk. Þau áttu góðar stundir uppí Koti en þar leið mömmu vel og var hrifin af staðnum og náttúrunni. Óli var ávallt reiðubú- inn til að leggja henni lið í veikindum hennar og þykir mér vænt um góð- vild hans og umhyggjusemi. Hann hefur nú misst góðan vin. Mamma hafði ávallt verið heilsu- hraust og var ekki að kvarta og það var því mikið áfall fyrir hana og fjöl- skylduna þegar hún greindist með ill- vígan sjúkdóm vorið 1999. Allt frá þeim tíma háði hún harða baráttu og enginn uppgjafartónn heyrðist, hún ætlaði sér og var staðföst í að sigrast á sjúkdómi sínum, en það gekk ekki eftir. Hún var hugrökk, einörð bar- áttukona og hetja í glímu sinni við sinn sjúkdóm allt þar til yfir lauk. Við áttum yndisleg jól og áramót saman, sem mig langar til að þakka fyrir, minningin um þig mun lifa. Og nú hefur hún horfið til austurs eilífa og fengið að sjá æðra ljós. Guð blessi þig, mamma mín, og varðveiti. Þakka þér fyrir samfylgdina í öll þessi ár. Guðni Þór. Mig langar til að minnast minnar kæru vinkonu, Sigríðar Eyglóar Þórðardóttur, bæði frá okkar upp- vaxtarárum og síðari kynnum okkar. Sigga, eins og hún var ætíð nefnd, er fædd og uppalin í Vík í Mýdal í sárafátækt eins og var á flestum heimilum á þessum tímum. Hún fór snemma að létta undir á heimilinu og fór ung til starfa hjá kaupfélaginu í Vík. Þar minnist ég hennar fyrst við afgreiðslustörf og ég minnist hennar sérlega fyrir hvað hún var allaf vel til höfð, nett og fríð með sitt rauða og liðaða hár og kom ætíð vel fyrir. Ekki hittumst við oftar en haust og vor þegar farið var með ullina á vorin eða sláturlömbin á haustin því það var langt frá Hvoli til Víkur í þá daga. Eitt áttum við sameiginlegt hún var kölluð Sigga litla Þórðar og ég var kallaður Óli litli á Hvoli. Ekki verður Siggu minnst án þess SIGRÍÐUR EYGLÓ ÞÓRÐARDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.