Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
!" #$$ % $ &'( )
&'( !" #$$
* &) !" #$$ + )
&'( !" #$$
)
& &( ) & & &(
! " #
$## # #
#
" #
# %# &
'#()$ # % % #
✝ Ólafur Pétur Sig-urlinnason fædd-
ist 12. maí 1929.
Hann varð bráð-
kvaddur mánudag-
inn 5. febrúar síðast-
liðiinn. Foreldrar
hans voru Vilhelmína
Ólafsdóttir í Gesthús-
um, Hafnarfirði, f.
11. maí 1905, og Sig-
urlinni Pétursson,
byggingameistari í
Garðabæ, f. 12. des.
1899. Systkini Ólafs
eru: Ingibjörg, f. 30.
mars 1926, d. 21.
mars 1986, eiginmaður hennar er
Steingrímur Kristjánsson lyfsali,
f. 21. okt. 1926; Sigurlinni, f. 12.
júní 1927, kvæntur Ingibjörgu
Einarsdóttur, f. 20. júlí 1927;
Svanhvít, f. 6. ágúst 1934, gift
Bergi P. Jónssyni, f. 11. des. 1925;
Gylfi Eldjárn, f. 17. mars 1936,
kvæntur Þórunni S. Ólafsdóttur,
f. 13. okt. 1937; Vilhjálmur Eld-
járn, f. 6. jan. 1944.
Ólafur kvæntist 21. ágúst 1955
Sunnu Guðmundsdóttur frá Ás-
búð, Hafnarfirði, f. 12. mars 1932.
Þau slitu samvistir.
Börn Ólafs og Sunnu eru: 1)
Guðmundur Páll, f. 28. des. 1952.
Fyrri kona hans er Helga Nína
Heimisdóttir, f. 26. sept. 1953.
Þeirra barn er Vilma Kristbjörg,
f. 21. maí 1975. Sambýlismaður
hennar er Brynjar Sigurðsson.
Þeirra barn er Sigurður Helgi, f.
31. sept. 1999. Seinni kona Guð-
mundar er Agnes Svavarsdóttir, f.
4. ágúst 1955. Þeirra börn eru
Rakel Björg, f. 14. júní 1978,
Kristín, f. 12. mars 1986, og Magn-
hildur Birna, f. 21. nóv. 1991. 2)
Kristín, f. 17. des. 1956. Eiginmað-
ur hennar er Eyvindur Magnús
Jónasson bóndi, f. 20. feb. 1952.
Þeirra börn eru: a) Anna Björk, f.
27. feb. 1974, maður hennar er
Gunnlaugur Örn
Gunnlaugsson, f. 6.
mars 1970. Þeirra
barn er Ólöf Anna, f.
30. maí 1995. b) Guð-
rún Svanhvít, f. 27.
ágúst 1975. Sam-
býlismaður hennar
er Kjartan Sveins-
son, f. 21. ágúst
1962. Þeirra barn er
Sigríður Magnea, f.
20. okt. 2000. c) Guð-
mundur Páll, f. 26.
júlí 1978. d) Hrafn-
hildur Ólöf, f. 10.
júní 1981. e) Lovísa
Tinna, f. 25. sept. 1987. 3) Kjartan,
f. 30. nóv. 1957. Fyrri kona hans:
Sólveig Antonsdóttir, f. 19. feb.
1961. Þeirra barn er Daníel
Freyr, f. 4. feb. 1982. Seinni kona
Kjartans er Valda Brokane, f. 5.
febr. 1969. Þeirra barn er Alex-
ander Sólon, f. 22. sept. 2000. 4)
Ása, f. 31. ágúst 1962. Fyrri sam-
býlismaður hennar er Guðmund-
ur Jónasson, f. 25. maí 1956.
Þeirra börn eru Berglind Sunna,
f. 25. feb. 1981, og Ólafur, f. 3. maí
1983. Seinni eiginmaður hennar
er Helgi Grétar Helgason, f. 20.
okt. 1962. Barn þeirra er Helgi
Fannar, f. 4. júlí 1986.
Síðari sambýliskona Ólafs er
Dóra Jóhannesdóttir, f. 19. júní
1928. Þeirra barn er Jóhann Val-
björn, f. 20. des. 1960. Hann
kvæntist Völku Jónsdóttur, f. 6.
mars 1966. Barn þeirra er Þórir, f.
7. júní 1989. Valka átti fyrir Kol-
brúnu Völkudóttur, f. 7. júní 1984.
Ólafur lærði trésmíði í Iðnskól-
anum í Hafnarfirði og vann lengst
af hjá föður sínum við húsasmíði,
meðal annars framleiðslu og upp-
setningu steyptra húseininga.
Útför Ólafs fer fram frá Garða-
kirkju á Álftanesi á morgun,
mánudaginn 12. febrúar, og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Kæri frændi og mágur. Ég veit að
þú fyrirgefur mér að ég skuli ekki
telja mig þess umkominn að skrifa
ævisögu þína hér, því læt ég allar til-
raunir í þá átt eiga sig. Hins vegar get
ég ekki látið hjá líða að skrifa nokkur
kveðjuorð til þín. Nú þegar við Svan-
hvít höfum búið hér í Hveragerði í tvö
ár höfum við orðið aðnjótandi hinna
fjölmörgu og fyrirvaralausu heim-
sókna þinna, þegar þú hefur átt leið
hér um. En þannig hefur það nú alltaf
verið, hvort sem við bjuggum í
Hraunhólum, á Álftanesi eða í
Hvannalundi. Og þannig ætti það að
vera með alla svo nákomna og kæra.
Fyrir þetta og svo margt annað vil ég
þakka því ég er ekki viss um að ég
hafi nokkru sinni gert það nógu vel.
Það voru nú ekki fáar stundirnar,
sem þú komst til að hjálpa í bygging-
arbrölti okkar Svanhvítar, hvort held-
ur var við að endurbyggja loftin í
Hraunhólum eða að leggja gólffjalir í
bjálkahúsið í Heimatúni, eða gera
stærra op fyrir nýja bílskúrshurð hér
í Laufskógum. Ekki var nú alltaf beð-
ið um hjálp, þú bara komst þegar
þannig stóð á. Fyrir þetta ber að
þakka.
Ekki hefur farið framhjá mér að
allgóða menntun hefur þú tileinkað
þér. Þó er ekki mikilli skólagöngu fyr-
ir að þakka, heldur hinu, sem ekki var
óþekkt meðal þjóðarinnar áður fyrr,
lestri góðra bóka og samtölum við
fróða menn og vísa. Enda varst þú
félagslyndur mjög og hafðir gott lag á
að kynnast fólki af ólíkum uppruna.
Þær eru ófáar sögurnar sem þú hefur
sagt mér af ferðalögum þínum um
landið, hvort heldur var vegna vinnu
við einingahúsin eða á eigin vegum.
Ég veit líka að móður þinni þótti
vænt um hvað þú sinntir henni vel
þegar hún var orðin ein. Það hefur
heldur ekki farið framhjá mér hvern
hug þú barst til barna þinna og barna-
barna.
Fyrir mína hönd og Svanhvítar
systur þinnar þakka ég samfylgdina
hingað og er þess fullviss að þú færð
góðar móttökur foreldra þinna, syst-
ur og annarra ættingja og vina, sem á
undan eru farin yfir móðuna miklu.
Far þú í friði með Guðs blessun.
Bergur P. Jónsson.
ÓLAFUR PÉTUR
SIGURLINNASON
GRETTIR JÓHANNESSON
ALBERT JÓHANNESSON
✝ Grettir Jóhannesson fæddist íVestmannaeyjum 11. febrúar
1927. Hann lést á Vífilsstaðaspít-
ala 12. apríl 2000 og fór útför hans
fram frá Digraneskirkju 19. apríl.
Jóhannes Albert Jóhannesson
fæddist í Vestmannaeyjum 21. júlí
1925. Hann lést á dvalarheimilinu
Jaðri í Ólafsvík 5. febrúar síðast-
liðinn og fór útför hans fram frá
Ólafsvíkurkirkju 10. febrúar.
ár. Að við erum ekki lengur þau sem
erfa skulu landið – heldur börnin
okkar. Að foreldrar og þeirra systk-
ini eldast. Að ekkert varir að eilífu.
En þeir bræður, þótt þeir væru á
margan hátt ólíkir, eru óaðskiljan-
legir í minningum uppvaxtarins.
Grettir svolítill villingur. Ótrúlega
stríðinn. Með glimt í auga. Skyrstríð
í Skarði. Kaffi í glasi með miklum
sykri og kringla með. Bræður að
slást eins og smástrákar. Siggi að
hrella hænsnin. Búið heimasætn-
anna. Við að stelast í hlöðuna.
Bræðrabörnin með frænda á „tröll-
inu“ í kartöfluuppskerunni. Helling-
ur af börnum. Allir glaðir. Engin nú-
tímapirringur.
Það er skammt stórra högga á
milli. Tveir elstu bræður pabba farn-
ir á innan við ári. Það er alltaf gott að
vera vitur eftir á og sjá að tímanum
er ekki ávallt vel varið. Að samveru-
stundirnar voru of stopular hin síðari
Alli eins og kvik-
myndastjarna. Glæsi-
menni í svörtum
frakka sem heillaði
konur upp úr skónum.
Hægur. Rólegur.
Lúmskt stríðinn. Dul-
ur. Listrænn. Alli og
Dista í lúðusúpu-
keppni. Mötuneytið í
Ólafsvík. Fyrsti
nammipokinn. Gifs-
myndirnar. Tvítugsaf-
mælistertan. Glottið
sem fylgdi skýring-
unni á því hvers vegna
pabbi er lægstur
bræðranna og sá eini sem er ljós-
hærður. – „Hann er yngstur og bú-
inn til úr afgöngum.“
Það eru svona minningar sem gefa
lífinu lit og verða að dýrmætum fjár-
sjóðum með árunum. Við þökkum
„strákunum“ fyrir að leggja sinn
skerf í minningabanka okkar. Við og
afkomendur okkar eigum eftir að
njóta þeirra um ókomna tíð.
Ragnheiður Anna, Linda
Kristín, Sigurður Ingi,
Ragnar Þór, Sindri Freyr
og fjölskyldur.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
!"
# %&!'()**
% +,- * .) '()** / )''0
# &' 1" * .) ''0 2,) '! *3 '()**
( +,- ! * .) '()** -'* % 04!
! " * .) '()** * (& & ''0
0 5 5- "