Vísir - 01.06.1979, Page 20
Föstudagur 1. júnl 1979
hœ kiakkar!
Umsjón: Anna
Brynjúlfsdóttir
Mynd til umræðu
Hvað er að gerast á myndinni?
Haldið þið að börnin á myndinni leiki sér vel saman?
Af hverju?
Hver getur verið með til að hjálpa börnunum og gæta
þeirra?
Getur svæðið, sem þið sjáið á myndinni, gef ið börnun-
um næga athafnamöguleika?
Hver ákveður, hvernig leiksvæði eru hönnuð?
Ef þið mættuð ákveða það, hvernig mynduð þið þá
vilja hafa leiksvæðið í kringum húsið ykkar? Haf ið þið
verið spurð álits?
Hvaða leið þurfa mennirnir i bátnum að fara til
að komast að skipsflakinu og þaðan að eyjunni?
Hættuleg kóralrif
Hvaö er þetta?
Strikið milli stafanna i réttri stafrófsröð
Litla kvöldsagan;
Blauti litli
bangsinn
Kristján var að hlaupa
niður götuna. Það var
ausandi rigning og hann
var með regnhlífina sína.
Allt í einu sá Kristján að
brúnn lítill bangsi lá í
einum pollínum.
Aumingja litli bangsi.
Hann lá þarna aleinn og
rennblautur.
Ég get farið með hann
heim og þurrkað hann,
hugsaði Kristján með
sér. En ég á hann ekki.
Svo tók hann bangsann
upp og fór í öll næstu hús.
Hann hringdi alls staðar í
dyrasima en alls staðar
var svarið: Nei, þetta er
ekki minn bangsi — minn
bangsi er farinn að sofa.
En loks kom Kristján
að litlu húsi. Hann heyrði
að einhver var að gráta
þar inni. Hann bankaði á
dyrnar. Hefur einhver
hér týnt bangsa? spurði
hann.
Já, þarna var einmitt
lítil stúlka, sem hafði týnt
bangsanum sínum. Mikið
varð hún fegin að fá hann
aftur.
Hún vafði svo bangsa
sinn inn í hlýtt handklæði
og þurrkaði hann.
Kristján hljóp áfram
heim á leið. Hann var
ósköp glaður yfir því að
hafa fundið bangsann
litlu stúlkunnar.