Vísir - 11.06.1979, Blaðsíða 6
6
VÍSIR Mánudagur 11. júnl 1979^
5din« siMih
33600
Þegarskynsemin rœður
kaupa menn
V®
yA
kveikjara:
Bic kveikjarinn er fyrir
ferdariítill, og fer vel i
hendi.
Stórt tannhjól auöveldar
notkun.
A Bic kveikjara kviknar
alltaf þegar reynt er aó
kveikja, meöan gasiö
endist.
Meira en 6 milljónir
kveikjara seldust í
Sviþjóó 1978.
. Hlutdeild B ic í solunni
voru 4 milljónir. Þetta
segir meira en mörg orö.
UMBOD:
Þóröur Sveinsson&Co. h.f.,
0 Haga v/Hofsvallagötu,
IfAtLOGRAFi*/CAB Reykjavík Sími: 18700.
í:kz
:::::
sil:
n::x
Nýkomin Reykjaborð
í Antik-stíl
Ódýr - folleg heimilisprýði
Gorn- og
honnyrðoyörur
i miklu úrvoli
Ingóifsstræti í
(gegnt Gomlo bió)
■•■■■ ■■■•• ***** j ■■ j j **j*j jj j jj jjjjj ****j *jjjj
ÞROSTUR
Evjan Mön:
RÍKI VÍKINGANNA
í ÍRLANDSHAFI
- Dúsunfl ára afmæll Dingsins í sumar
Vagnhestur skokkar um götur I höfuöstaðnum Douglas.
Það verður mikið um
dýrðir á eyjunni Mön i
sumar. Þá halda eyja-
skeggjar upp á þúsund ára
afmæli þingsins. Það kem-
ur saman á stað sem nefn-
ist Tynwald, sem er sama
nafnið og Þingvellir.
Fyrsti gestur eyja-
skeggja verður forseti ís-
lands Kristján Eldjárn, en
hann verðurá Mön í endað-
an júní.
Forsetinn mun m.a.
verða viðstaddur Víkinga-
veisluna svokölluðu. Hún
er haldin til að minnast
þess að norskir víkingar
stigu fyrst á land á Mön ár-
ið 798 í borginni Peel.
Þingið gæti verið eldra en
Alþingi.
Engar ritaðar heimildir eru til
um þaö hvenær þing kom fyrst
saman á Tynwald. Þeir sem
þekkja gerst til, halda þvi fram
aö þingiö getiö veriö eldra en
okkar islenska Alþingi.
Allar likur benda til þess aö
þing hefi komiö saman fyrir 950.
En fullvist er aö það kom reglu-
lega saman frá 970, og fram á
þennan dag. Þaö á þvi langa
óslitna sögu að baki, en þaö sama
veröur ekki sagt um okkar
Alþingi
Norskir kóngar á Mön
Norömenn réðu ríkjum á Mön i
næstum 400 ár. Þaö hefur sett sin
merki á menningu eyjaskeggja.
Frá 970 riktu norskir kóngar og
fram til 1265.
Ýmis staðarnöfn hafa geymst i
gegn um aldir, þrátt fyrir aö nor-
rænir menn hafi ekki ráöið rikj-
um i aldir á Mön.
Tveir stærstu bærirnir heita
Laxey og Ramsey. Flugvöllurinn
á eyjunni heitir Ronaldsway, sem
er upprunalega Rögnvaldsvegur,
Þá má einnig finna nöfn eins og
Foxdale, sem er upprunanlega
Fossdalur.
Norsk prinsessa.
Þegar norskir vikingar komu til
Mön, þá var þar fyrir keltneskur
þjóöflokkur. En þeir blönduðust
fljótt eyjarskeggjum.
Norömenn geröu sér far um aö
halda yfirráöum sinum yfir eyj-
unni f írlandshafinu. Þaö gat ver-
ið erfitt, þar sem langur vegur er
heim til Noregs. En þeir konung-
ar sem riktu þar.tóku sér gjarnan
norskar prinsessur fyrir konur.
Mikil brúökaup voru þá oft haldin
i Noregi.
Sagan um Cecilia er ennþá sögö
á Mön. Hún var norsk prinsessa
sem var gefin konunginum á Mön
um miöja tólftu öld. Mikiö brúö-
kaup var haldiö i Bergen. En á
leiðinni yfir hafiö hrepptu brúð-
hjónin hiö' versta veöur og skip
þeirra týndist.
Rétt eins og víkingur
Ólafur Noregskonungur verður
gestur eyjaskeggja i sumar.
Hann hefur heimsótt eyjuna fyrr,
en þá var hann krónprins. En
norskur konungur hefur ekki stig-
ið fæti á eyjuna Mön siöan nor-
rænir vikingar misstu völdin.
Noregskonungur kemur siglandi
til Mön á sinu eigin skipi, rétt eins
og vikingarnir foröum.
En Noregskonungur verður
ekki viöstaddur Vikingahátiöina i
Peel, sem er haldin til aö minnast
norsku víkinganna. Þegar kóngur
varpar akkerum fyrir utan eyj-
una, þá veröur þar i gangi mikil
siglingakeppni, þvi eyjaskeggar
kunna réttu handtökin viö seglin.
50 þúsund íbúar.
A Mön búa um 50 þúsund
manns. Þar er Bretadrottning
hæstráðandi og hefur veriö i ára-
tugi En, formlega séö er Mön
ennþá konungsriki. Þaö stofnaöi
Guöráður Haraldsson sonur
norsk konungs sem réö rikjum i
Dublin á vikingaöld. Drottningin
ber því titilinn „Lord of Man”.
Arlega kemur um hálf milljón
ferðamanna til Mön. Flestir
þeirra eru frá Bretlandi. Höfuð-
borgin Douglas minnir dálitiö á
enska baðstrandarbæi. Hótelin
eru þétt meðfram ströndinni.
Það má segja aö maöur komist
dálitiö aftur i timann meö þvf aö
heimsækja Mön. Ótrúlega margt
minnir mann á liöna tima. Sem
dæmi má taka þann feröamáta
sem er mikið notaður i höfuö-
staðnum. Þar er skokkar vagn-
hesturinn ennþá um göturnar og
erðamenn kunna svo sannarlega
að meta þaö aö fá sér far.
— KP
UM AILAf
BORGINA^
SÍMI \
85060