Morgunblaðið - 01.04.2001, Side 4

Morgunblaðið - 01.04.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 25/3–31/3  Forsætisráðherra lýsti því yfir í vikunni að ráðu- neyti hans væri að vinna að tillögum sem miðuðu að því að Þjóðhagsstofnun yrði lögð niður. Vakti yf- irlýsingin hörð viðbrögð stjórnarandstöðunnar sem og starfsmanna Þjóðhags- stofnunar sem staðhæfa að þeir hafi ekki vitað um fyrirætlunina.  TVEIR piltar voru hætt komnir á fimmtudag þeg- ar snjóflóð ofan við skíða- svæði Seyðfirðinga hreif þá með sér og bar þá 200 metra niður á við. Hvor- ugan sakaði.  UPPGJÖRI á greiðslum til öryrkja, vegna breyttra viðmiðunar- marka varðandi tengingu örorkubóta við tekjur maka, lauk í vikunni. Alls verða 880 milljónir greiddar út til öryrkja eftir að skattar hafa verið dregnir frá.  GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráðherra lýsti því yfir í vikunni að álagning smásala og heildsala á papriku væri tæp 85%. Kaupmenn mót- mæla þessu og segja verðtolla valda háu verði. Verðstríð kaupmanna á papriku fylgdi í kjölfar deilnanna.  ÍSLANDSPÓSTI barst í vikunni hluti ösku banda- rískrar konu og fylgdi sendingunni ósk ættingja hennar um að öskunni yrði dreift á fallegum stað á Íslandi. Íslensk lög heimila þetta ekki og verður askan því jarðsett í Gufuneskirkjugarði. Horfið frá sveigjan- legri gengisfestu RÍKISSTJÓRNIN og Seðlabanki Ís- lands tilkynntu á þriðjudag að vikmörk gengisstefnunnar yrðu afnumin og formleg verðbólgumarkmið tekin upp í staðinn. Stefnt verður að því að árleg verðbólga verði sem næst 2,5% og að því markmiði verði náð fyrir árslok 2003. Þá ákvað Seðlabankinn að lækka stýrivexti um 0,5% næstkomandi þriðjudag og verða þeir 10,9% eftir breytinguna. Íslenska krónan hafði náð sögulegu lágmarki á mánudag þegar vísitala krónunnar hækkaði um 0,48% og endaði í 123 stigum. Seðlabankinn greip inn í til að verja gengissigið bæði á mánudag og þriðjudag og keypti krónur fyrir um 5,4 milljarða þessa tvo daga. Miklar sveiflur voru á gjaldeyr- ismörkuðum eftir afnám vikmarkanna. Ekki tilefni til leyfissviptingar FLUGMÁLASTJÓRN telur ekki til- efni til að svipta Leiguflug Ísleifs Otte- sen flugrekstrarleyfi eða segja upp samningum um áætlunarflug þrátt fyr- ir að fyrirtækið hafi orðið uppvíst að- „alvarlegri vanrækslu á faglegum grundvallarþætti í flugrekstri,“ eins og segir í svarbréfi til samgönguráðherra. Svarið ásamt greinargerð Flugmála- stjórnar um flugslysið var kynnt á fimmtudag. Þar kemur fram að allt frá því að slysið varð hafi legið fyrir að flugrekandinn hafi ekki framfylgt gild- andi starfsreglum og t.d. látið hjá líða að gera leiðarflugáætlanir. Hins vegar hafi Flugmálastjórn gert sérstaka út- tekt á rekstri LÍO í vikunni þar sem nokkurra „frávika“ hafi orðið vart en ekkert þeirra hafi verið alvarlegt. Svars samgönguráðherra við bréfi Flugmálastjórnar, þar sem vænta má ákvörðunar um það hvort flugsamning- um við LÍO verður sagt upp, er að vænta eftir helgi. INNLENT Sprengjum rignir yfir þorp í Kosovo STJÓRN Makedóníu og albanskir skæruliðar neituðu því á fimmtudag að hafa staðið á bak við sprengjuárás á þorp í Kosovo sem varð þremur að ald- urtila, auk þess sem tíu særðust. Frið- argæslulið Sameinuðu þjóðanna harm- aði árásina og Hans Hækkerup, yfirmaður stjórnar SÞ í Kosovo, sagði hana skelfilega. Her Makedóníu hóf áhlaup á alb- anska skæruliða í nágrenni höfuðborg- arinnar, Skopje, og í átt til borgarinnar Kumanovo á miðvikudag. Áður hafði herinn gert harðir árásir á skæruliða í hlíðum upp af borginni Tetovo. George Robertson, framkvæmdastjóri NATO, sagði að makedónski herinn hefði sýnt „virðingarverða sjálfstjórn“ í sókn sinni gegn skæruliðunum. Stjórn Bush staðfestir ekki Kyoto-bókunina YFIRMAÐUR bandarísku umhverfis- verndarstofnunarinnar (EPA) skýrði frá því á miðvikudag að bandarísk stjórnvöld hygðust ekki staðfesta Kyoto-bókunina frá 1997 við loftslags- sáttmála Sameinuðu þjóðanna um ráð- stafanir til að hamla gegn hitnun lofts- lags á jörðinni. George W. Bush Bandaríkjaforseti kveðst vera andvígur bókuninni vegna þess að í henni séu þróunarlönd und- anþegin því að draga úr losun gróð- urhúsalofttegunda og hún myndi hafa skaðleg áhrif á bandarískt efnahagslíf. Ráðamenn margra ríkja og ýmis umhverfisverndarsamtök gagnrýndu þessa afstöðu Bandaríkjastjórnar. Sænska stjórnin, sem gegnir for- mennsku í Evrópusambandinu, sagði ákvörðun stjórnar Bush hneykslan- lega og umhverfisverndarsamtökin Vinir jarðarinnar sögðu hana valda hættu á „loftslagsstórslysi“.  ÞYRLUR Ísraelshers gerðu árásir á stöðvar líf- varðarsveita Yassers Ara- fats, leiðtoga Palestínu- manna, í Ramallah á Vesturbakkanum og sex stöðum á Gaza-svæðinu á miðvikudag. Karlmaður og kona biðu bana og 60 særð- ust. Stjórn Ísraels sagði að árásirnar hefðu verið rétt- lætanlegar þar sem emb- ættismenn Arafats væru viðriðnir starfsemi hermd- arverkamanna.  UM 1.900 tonn af olíu fóru í sjóinn eftir árekstur olíuskips og flutningaskips suðvestur af eynni Mön í Danmörku aðfaranótt fimmtudags. Fyrstu olíu- flekkirnir náðu ströndum Danmerkur á föstudag og fréttir bárust af dauðum fuglum. Er þetta eitt mesta mengunarslys í sjó við strendur Danmerkur.  ÁHRIFA gin- og klaufa- veikifaraldursins tók að gæta víðar á mánudag þegar Rússar bönnuðu inn- flutning á kjöt- og mjólk- urafurðum frá Evrópu- löndum. Rússar létu bannið einnig ná til allra fiskafurða.  TIL átaka kom á þriðju- dagskvöld milli lögreglu og þýskra kjarnorku- andstæðinga sem reyndu að hindra för járnbraut- arlestar er flutti geisla- virkan úrgang frá endur- vinnslustöð í Frakklandi á geymslustað í Gorleben í Þýskalandi. Úrgangurinn komst þó á áfangastað daginn eftir. ERLENT VIGFÚS Baldvin Heimisson verður fyrsti Íslendingurinn til að keppa í pípulögnum á alþjóðlegum vettvangi en hann mun keppa á Norðurlanda- mótinu í pípulögnum 21 árs og yngri sem fram fer í Kaupmannahöfn dag- ana 16.–18. maí næstkomandi. Vigfús, sem er 21 árs, er að læra pípulagnir í Borgarholtsskóla en að hans sögn æfir hann í Iðnskólanum í Hafnarfirði fyrir mótið. Þessi keppni er haldin árlega en þetta verður í fyrsta sinn sem Íslendingur tekur þátt. Annað hvert ár er svo heims- meistarakeppnin í pípulögnum hald- in og þangað fara þeir fyrir hönd Norðurlandanna sem sigrað hafa í Norðurlandamótunum. Sexhyrnd herbergi Vigfús segir keppnina fara þannig fram að keppendur eiga að leggja pípulagnir í herbergi sem eru hlið við hlið. Herbergin eru sexhyrnd og þannig úr garði gerð að dómarar geta gengið á milli þeirra og skoðað árangurinn, þannig að um einskonar svið er að ræða. Þá fá keppendurnir ákveðin tímamörk sem þeir verða að standast en enginn plús er gefinn fyrir að vera búinn fyrr en tíma- mörkin renna út. „Mér skilst að tím- inn sé alltaf notaður í botn,“ segir Vigfús. „Svo er dæmt eftir því hvern- ig rörin eru, hvort festingar og ann- að sé á réttum stöðum og hvort allt sé eftir bókinni. Svo er það besta lausnin eða besta útfærslan sem vinnur.“ En er Vigfús í stífri þjálfun fyrir keppnina? „Ég segi það nú ekki, bara svona eins og ég get,“ segir hann hógvær en játar því að eflaust verði keppinautarnir harðir í horn að taka. Engu að síður leggst keppnin vel í kappann enda einn og hálfur mánuður til stefnu til æfinga. Morgunblaðið/Þorkell Vigfús Baldvin Heimisson æfir þessa dagana fyrir Norður- landamótið í pípulögnum. Fyrsti íslenski kepp- andinn í pípulögnum Býst við harðri keppni LJÓÐAKVÖLD verð- ur haldið í Patreks- fjarðarkirkju á morg- un, mánudag, til styrktar Benadikt Þór Helgasyni og fjöl- skyldu hans. Eins og lesendum Morgun- blaðsins er kunnugt fæddist Benadikt, sem nú er tæplega 11 mán- aða gamall, með afar sjaldgæfan sjúkdóm sem nefnist Pfeiffer- heilkenni og þarf því að fara í fjölda erfiðra aðgerða til Svíþjóðar á næstunni. Fjöl- skyldan mun fara í fyrstu ferðina utan á þriðjudag. Það var Hjalti Rögnvaldsson leikari sem átti frumkvæðið að því að ljóðakvöldið yrði haldið eftir að hafa lesið um Bena- dikt litla í Morg- unblaðinu enda þekk- ir hann svipaðar aðstæður af eigin raun. Á kvöldinu mun hann lesa í heild sinni ljóðabálkinn Þorpið eftir Jón úr Vör, skáldið frá Patreks- firði, en síðastliðið sumar las hann þar hluta bálksins á ljóðakvöldi til- einkuðu Menningarborg Evrópu við mikla hrifningu þeirra sem á hlýddu. Hjalti og allir aðrir sem að kvöldinu koma munu gefa sitt framlag en söfnunarbaukar verða í anddyri kirkjunnar og rennur allur ágóði söfnunarinnar til fjölskyldu Benadikts. Stóru aðgerðinni frestað að sinni Móðir Benadikts, Deborah Bergsson, segir vel hafa gengið með Benadikt að undanförnu en hann hefur verið í sjúkraþjálfun og undir eftirliti lækna daglega. Til stóð að gera fyrstu stóru að- gerðina í þessari ferð til Svíþjóðar en á síðustu stundu var því breytt þar sem læknar telja nauðsynlegt að gera ítarlegri rannsóknir og próf á Benadikt áður en hann fer í aðgerðina, vegna þess hversu erfitt hann á um öndun. Því munu sænsku læknarnir gera svæfing- arpróf á honum auk þess sem hann fer í heilalínurit og röntgenrann- sóknir. Fjölskyldan mun því fara aftur utan eftir einn til tvo mánuði til að fara í sjálfa aðgerðina. Þessi aðgerð er hins vegar að- eins ein af fjölmörgum og hafa læknar tjáð Deborah að fjölskyldan megi búast við að þurfa að ferðast töluvert á milli landanna tveggja. Hún segir fjölskylduna afar snortna yfir framtaki Hjalta og við- brögðum fólks við sjúkdómi Bena- dikts enda fylgir slíkum sjúkdómi töluvert álag, bæði í andlegu og fjárhagslegu tilliti. Þeir sem vilja styðja fjölskylduna er bent á söfnunarreikning í Eyra- sparisjóði með númerinu 1118-05- 101000 og er kennitala eiganda 160566-5669. Ljóðakvöld til styrktar Benadikt Þór Helgasyni sem fæddist með Pfeiffer-heilkenni Fer utan til læknismeðferð- ar á þriðjudag Morgunblaðið/Jim Smart Benadikt ásamt móður sinni, Deborah. SAMTÖK hafa verið stofnuð í Hval- fjarðarstrandarhreppi gegn lagn- ingu háspennuloftlína í Hvalfirði, skammstafað HH-samtökin. For- maður samtakanna er Reynir Ás- geirsson á Svarfhóli. Frá þessu er greint á vefsíðunni bondi.is. Stjórn samtakanna hefur þegar átt fundi með Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra og Siv Frið- leifsdóttur umhverfisráðherra og kynnt þeim stöðu mála hvað varðar væntanlega lagningu Sultartanga- línu 3 um þessa sveit svo og hug- myndir og tillögur heimamanna í þessum efnum. Fyrirhugaður er fundur með Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra. Samtökin ætla að kalla til sérfræðinga til að vega og meta þá valkosti sem fyrir liggja. Samtök gegn háspennu- loftlínum í Hvalfirði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.