Morgunblaðið - 01.04.2001, Page 47
ÞJÓNUSTA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólöf Erla Hauksdóttir 435 0095
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1222
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir 478 8962
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Björn Ingólfsson 463 3131 463 3118
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 451 2618 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Bára Sólmundsdóttir 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Arnheiður Guðlaugsdóttir 421 5135 862 0375
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Jónína M. Sveinbjarnardóttir 566 6082 868 7654
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Ólöf Þórhallsdóttir 486 1136 862 1924
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Nes – Höfn Sigurbergur Arnbjörnsson 478 2113
Neskaupstaður Sigrún Júlía Geirsdóttir 477 1812 477 1234
Neskaupstaður Sveinbjörg Guðjónsdóttir 477 1841 896 0326
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962
Neskaupstaður Bjarney Ríkharðsdóttir 477 1687
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Stefanía Jónsdóttir 465 1179
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Jóhanna Konráðsdóttir 423 7708
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Jón Einarsson 456 2567
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
ENGJASEL - MJÖG
FALLEG
Í einkasölu mjög falleg 89 fm, 3ja
herbergja íbúð í þriggja hæða
fjölbýlishúsi ásamt 36 fm stæði í
bílageymsluhúsi. Allt húsið er
klætt Steniplötum. Góður
sameiginlegur verðlaunagarður
með leiktækjum fyrir börn.
V. 10,8 m. Áhv. 3,9 m.
BORGIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
F A S T E I G N A S A L AF A S T E I G N A S A L A
HLÍÐARVEGUR
KÓPAVOGI
Falleg og rúmgóð 94 fm neðri
sérhæð í þríbýli á mjög góðum
stað í suðurhlíðum Kópavogs.
Tvö rúmgóð svefnherb., bað-
herb. með kari og innréttingu
stór stofa með útgengi út á
suðurverönd og í garð. vandað
parket og flísar á gólfum.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn Sigtúni – 105
Reykjavík Sími553 2155 Fax: 562 6191 Netfang: lista-
safn@reykjavik.is www.reykjavik.is/listasafn Opið maí–
september kl. 10–16 alla daga október–apríl kl. 13–16 alla
daga
LISTASAFN KÓPAVOGS – GERÐARSAFN: Opið daglega
kl. 12–17 nema mán.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í s.
553 2906.
LISTASALUR Korpúlfsstöðum við Thorsveg er opinn alla
mið. kl. 12-18.
LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Grófarhús,
Tryggvagata 15, Reykjavík. Sími 563 1790. Fax:
563 1799. reykjavik.is/ljosmyndasafn - Opið mán._föst.
kl. 10-16.
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Safnið er
lokað yfir vetrarmánuðina, en hópar geta fengið að skoða
safnið eftir samkomulagi.
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 58, Akureyri. S. 462 4162. Opið frá 16.9.–31.5. á
sun. milli kl. 14–16. Einnig eftir samkomulagi fyrir hópa.
Skrifstofur opnar virka daga kl. 8–16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mán. kl. 11–17 til 1.
september. Alla sun. frá kl. 14–17 má reyna sig við gam-
alt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn eldri borgara.
Safnbúð með minjagripum og handverksmunum. Kaffi,
kandís og kleinur. S. 471 1412, netfang minaust@eld-
horn.is.
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina v/
Elliðaár. Opið á sun. kl. 15–17 og eftir samkomulagi. S.
567 9009.
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar frá
kl. 13–17. Hægt er að panta á öðrum tímum í s. 422 7253.
IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opið frá
1. júní til 31. ágúst kl. 14–18, en lokað á mán. S. 462 3550
og 897 0206.
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, s. 569 9964. Opið virka daga kl. 9–17 og á öðrum
tíma eftir samkomulagi.
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið mið. og lau. 13–18. S. 554 0630.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sun. þri. fim. og lau. kl. 13.30–16.
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið opið mán.–sun. 12–17.
Sýningarsalur opinn þri.–sun. kl. 12–17, lokað mán.
Kaffistofan opin mán.–laug. kl. 8–17, sun. kl. 12–17. Skrif-
stofan opin mán.–föst. kl. 9–16, lokað 20.–24.4. Sími 551–
7030, bréfas: 552 6476. Tölvupóstur: nh@nordice.is –
heimasíða: hhtp://www.nordice.is.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þri. og sun. 15–18. S. 555 4321.
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið lau. og sun. til
ágústloka frá l. 13–18. S. 486 3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551 3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin lau. og sun. kl. 13.30–16.
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið lau. og sun. frá kl. 13–17 og eftir samkomulagi. Sími
sýningar 565 4242. Skrifstofa Lyngási 7, Garðabæ, sími
530 2200. Fax: 530 2201. Netfang: aog@natmus.is.
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS HINRIKS-
SONAR, Súðarvogi 4. Opið þri. – lau. frá kl. 13–17. S.
581 4677.
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. samkl.
Uppl. í s: 483 1165, 483 1443.
SNORRASTOFA, Reykholti: Sýningar alla daga kl. 10–18.
S. 435 1490.
STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þri. til fös. kl. 14–16 til 15.
maí.
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13–18 nema mán. S. 431 5566.
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Sýningar við Suðurgötu
lokaðar vegna endurbóta á húsnæði.
ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ: Menningarsögulegar sýning-
ar. Fundarstofur til leigu. Veitingastofa. Opið alla daga
frá kl. 11–17. Sími 545 1400.
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mán. til fös. kl. 10–
19. Lau. 10–15.
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alla daga frá kl. 14–18.
Lokað mán.
NONNAHÚS, Aðalstræti 54. Opið a.d. kl. 10–17 frá 1. júní –
1. sept. Uppl. í s. 462 3555.
NORSKA HÚSIÐ Í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
ar frá kl. 11–17.
ORÐ DAGSINS
Reykjavík s. 551 0000.
Akureyri s. 462 1840.
SUNDSTAÐIR
SUNDSTAÐIR Í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30–21.30, helg. kl. 8–19. Opið í bað og heita potta alla
daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30–21.30, helg. 8–19.
Laugardalslaug er opin v.d. 6.50–21.30, helg. 8–19. Breið-
holtslaug er opin v.d. kl. 6.50–22, helg. kl. 8–20. Graf-
arvogslaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–20.30.
Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50–22.30, helg. kl. 8–20.30.
Kjalarneslaug opin mán. og fim. kl. 11–15. Þri., mið. og
fös. kl. 17–21.
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 6.30–22, um
helgar 8–19 (apríl-sept.), kl. 8-18 (okt.-mars).
GARÐABÆR: Sundlaugin opin mán.–fös. 7–20.30. Lau. og
sun. 8–17. Sölu hætt hálftíma fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mán.–fös. 7–21, lau.
8–18, sun. 8–17. Sundhöll Hafnarfjarðar: Mán.–fös. 6.30–
21, laug. og sun. 8–12.
VARMÁRLAUG Í MOSFELLSBÆ: Opið v. d. kl. 6.30–7.45
og kl. 16–21. Um helgar kl. 9–18.
SUNDLAUGIN Í GRINDAVÍK: Opið alla v. d. kl. 7–21 og kl.
11–15 um helgar. S. 426 7555.
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45–8.30 og 14–22,
helgar 11–18.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mán.–fös. kl. 7–21,
lau. kl. 8–17, sun. kl. 9–16.
SUNDLAUGIN Í GARÐI: Opin mán.–fös. kl. 7–9 og 15.30–
21, lau og sun. kl. 10–17. S: 422 7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7–21, lau. og
sun. kl. 8–18. S. 461 2532.
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mán.–fös. 7–
20.30, lau. og sun. kl. 8–17.30.
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mán.–fös. 7–21,
lau. og sun. 9–18. S: 431 2643.
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11–20, helgar kl. 10–21.
ÚTIVISTARSVÆÐI
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10–17.
Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjölskyldugarðurinn er op-
inn sem útivistarsvæði á veturna. S. 5757 800.
SORPA:
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl.
8.15–16.15. Móttökustöð er opin
mán.–fim. 7.30–16.15 og föst 6.30–
16.15. Endurvinnslustöðvarnar við: Bæjarflöt, Jafnasel,
Dalveg og Blíðubakka eru opnar kl. 12.30–
19.30. Endurvinnslustöðvarnar við: Ánanaust, Sævarhöfða
og Miðhraun eru opnar k. 8–19.30. Helgaropnun laug-
ardaga og sunnudaga kl. 10–18.30. Endurvinnslustöðin á
Kjalarnesi er opin sunnudag., miðvikud. og föstud. kl.
14.30–19.30. Uppl.sími 520 2205.
HUGVEKJA
„En þannig skuluð þér biðja: Faðir
vor, þú sem ert á himnum. Helgist
þitt nafn, til komi þitt ríki, verði
þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í dag vort daglegt brauð.
Fyrirgef oss vorar skuldir, svo
sem vér og fyrirgefum vorum
skuldunautum. Og eigi leið þú oss í
freistni, heldur frelsa oss frá illu.
Því að þitt er ríkið, mátturinn og
dýrðin að eilífu, amen.“
Matteus 6:9–13.
Margir leggjast ekki til svefns
fyrr en þeir hafa farið með kvöld-
bæn, oft bænavers sem þeir lærðu
í bernsku, eða bænina sem Jesús
kenndi lærisveinum sínum og vitn-
að er til hér að ofan. Eins fara
margir með bæn í byrjun dags.
Aðrir leita ekki til bænarinnar
nema þegar eitthvað fer úrskeiðis
og þeir standa frammi fyrir óvið-
ráðanlegum vanda.
Í bæninni eigum við samfélag
við Guð því bænin virkar í báðar
áttir, eða eins og nútíminn orðar
það, hún er gagnvirk. Við getum
gert Guði kunnar óskir okkar og
þarfir, beðið um vernd hans og vel-
þóknun, falið honum áhyggjur og
vanda. Margir hafa fengið bæna-
svör, sem staðfesta að Guð heyrir
bænir. Eins gott og það er að biðja
þá er ekki síður mikilvægt að
þakka og læra að hlusta, vera opin
fyrir því sem Guð vill segja við
okkur. Hann talar bæði í orði sínu
og anda.
Jesús var iðinn við bænagjörð
og hvatti til bæna. Af lestri guð-
spjallanna má ráða að hann hafi
undirbúið mikilvægar ákvarðanir
og átakastundir í bæn. Hann
kenndi lærisveinum sínum bænina
Faðir vor og má margt af henni
læra um bænagjörð.
Bænin hefst á því að ávarpa Guð
sem föður á himnum, sá sem biður
kemur fram fyrir hann eins og
barnið hans. Við vitum að jarð-
neskir feður, sem þykir vænt um
börnin sín, vilja allt fyrir þau gera
svo lengi sem það er þeim til góðs.
Okkar himneski og kærleiksríki
faðir vill miklu fremur svara bæn-
um barna sinna.
Mönnum er gjarnt að biðja um
það sem þá langar í, að þeirra vilji
verði, en í Faðir vorinu er okkur
kennt að biðja þess að vilji Guðs
verði, jafnt á jörðu sem á himni.
Það er mikil viska í því að beygja
sig fyrir vilja Guðs. Hann er alvit-
ur og sér heildarmyndina á meðan
mennirnir eru takmörkum háðir.
Sá sem biður og beygir sig fyrir
hans vilja verður að gera sér ljóst
að Guð svarar oft á óvæntan hátt.
Hann á það jafnvel til að segja nei!
Bænin um daglegt brauð sýnir
að Guði er ekkert óviðkomandi,
honum er annt um afkomu okkar
og líkamlega velferð. Fyrirgefn-
ingarbænin kennir okkur að biðja
Guð fyrirgefningar á skuldum
okkar, syndum og afbrotum. Ekki
síður að við eigum að fyrirgefa
öðrum það sem þeir hafa gert á
okkar hlut.
Okkur er kennt að biðja um
varðveislu Guðs frá því vonda,
björgun frá hinu illa. Loks endar
bænin á tilbeiðslu til Guðs þar sem
við viðurkennum vald hans og
mátt og gefum honum dýrðina að
eilífu.
Kirkjur landsins eiga að vera
bænahús. Í hverri guðsþjónustu er
farið með bænir og beðið fyrir
bænarefnum. Auk þess eru oft
haldnar sérstakar bænastundir.
Það sem af er þessu ári má til
dæmis nefna árlega bænaviku á
vegum Samstarfsnefndar krist-
inna trúfélaga þegar haldnar eru
til skiptis bænastundir í ýmsum
kirkjum. Einnig sérstakt bænaá-
tak í sjö vikur í vetur á vegum
nokkurra kristinna safnaða á höf-
uðborgarsvæðinu. Þá er alþjóð-
legur bænadagur kvenna árviss
viðburður í byrjun marsmánaðar.
Morgunblaðið birti viðtal við sr.
Hjalta Guðmundsson er hann
hætti prestskap í Dómkirkjunni
fyrr í vetur. Þar minntist hann á
vikulegar bænastundir í kirkjunni,
sem haldnar eru í hádeginu á mið-
vikudögum, og sagði m.a.: „Það
eru yndislegar stundir. Þangað
kemur fólk með bænarefni sín. Við
erum með lista yfir fólk sem við
biðjum reglulega fyrir. Þar höfum
við oft fengið að þreifa á bæn-
heyrslu Guðs.“ Vikulegar bæna-
stundir af þessu tagi eru haldnar í
mörgum kirkjum hérlendis.
Hvers vegna öll þessi áhersla á
bæn? Hallgrímur Pétursson svar-
ar þeirri spurningu í versinu:
Bænin má aldrei bresta þig.
Búin er freisting ýmislig.
Þá líf og sál er lúð og þjáð,
lykill er hún að drottins náð.
Bænin er lykill, verkfæri sem
opnar áður læstar dyr. Verum
ófeimin við að nota þá guðsgjöf
sem bænin er og minnumst orða
Jesú er hann sagði: „Og hvers sem
þér biðjið í mínu nafni, það mun ég
gjöra, svo að faðirinn vegsamist í
syninum. Ef þér biðjið mig ein-
hvers í mínu nafni, mun ég gjöra
það.“
Morgunblaðið/Þorkell
Gagnvirkt
samband við Guð
Bænin er samtal við Guð og hefur verið
líkt við lykil að náð hans. Guðni
Einarsson leiddi hugann að
bæninni og áhrifum hennar.
gudni@mbl.is