Morgunblaðið - 20.05.2001, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
E
INN af öðrum tínast jakkafata-
klæddir karlar út af fundi Samtaka
atvinnulífsins á Grand Hótel í síð-
ustu viku. Inn á milli er hægt að
greina örfáar konur þótt flestar séu
klæddar í dökkan fatnað og falli því
auðveldlega inn í hópinn. Leitandi staðnæmist
augað við hnarreista unga konu mitt á milli
fundargestanna. Örugg í fasi lítur hún upp og
kinkar kolli. Eftir örskamma stund birtist hún
síðan aftur og kynnir sig. „Linda“ segir hún
með bros á vör og þarf ekki að segja meir því
allir Íslendingar þekkja Lindu Pétursdóttur í
sjón frá því að hún var kjörin Ungfrú heimur ár-
ið 1988. Færri gera sér væntanlega grein fyrir
því hvers konar þrekvirki Linda hefur unnið við
rekstur fjölskyldufyrirtækisins Baðhússins síð-
ustu 8 árin. Fyrirtækið hefur ekki aðeins náð að
vaxa og dafna hér á landi. Orðspor þess hefur
borist út fyrir landsteinana og valdið því að ým-
is tækifæri hafa opnast á erlendri grund. Ef
betur er að gáð stendur Linda sjálf á tímamót-
um því eftir tveggja ára stjórnarsetu í Félagi
kvenna í atvinnurekstri var hún með rússneskri
kosningu kosin formaður félagsins fyrr í mán-
uðinum.
Á réttri hillu í atvinnurekstri
Við ákveðum að flýja út úr anddyrinu og leita
skjóls við lítið hringborð í einum af hliðarsöl-
Linda Pétursdóttir athafnakona með hundana sína tvo, Sunnu og Mána.
Heimurinn er fullur af
Morgunblaðið/Golli
Stjórn Félags kvenna í atvinnurekstri, (f.v.) Aðalheiður Héðinsdóttir, gjaldkeri, Hildur Petersen, ritari, Dagný Halldórsdóttir, varaformaður, Linda Péturs-
dóttir, formaður, Edda Sverrisdóttir, meðstjórnandi, og Katrín Óladóttir, meðstjórnandi. Á myndina vantar Hansínu B. Einarsdóttur, meðstjórnanda.
Linda Pétursdóttir hefur haslað sér
völl með eftirtektarverðum hætti í
íslensku atvinnulífi á síðustu árum.
Anna G. Ólafsdóttir króaði hana af
úti í horni eftir aðalfund Samtaka
atvinnulífsins í síðustu viku.