Morgunblaðið - 20.05.2001, Page 50
FÓLK Í FRÉTTUM
50 SUNNUDAGUR 20. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
15% kynningarafsláttur meðan á
kynningum stendur í Apótekinu
Kynning á morgun í
Iðufelli og Kringlunni,
þriðjudag 22. maí í Skeifunni,
miðvikudag 23. í Spönginni,
föstudag 25. á Suður-
strönd og í Firðinum
laugardag 26. á
Smiðjuveginum
Micro-húðfegrun
fyrir
eftir
Guðrún er búin að fá
Micro-húðfegrun
og Tattoo á brúnir,
augu og varir.
Hún er ánægð –
hvað með þig?
Upplýsingar í s. 561 8677
Húðslípun
og Lazer
Upplýsingar í s. 561 8677
Ör
Slit
Bólur
Cannes, Frakklandi, 15. maí, 2001.
Hér í Cannes er ávallt beðið í ofvæni eftir stjörnunum en í þetta skipti létu
þær ekki sjá sig. Uppákoma þessi snerist um útnefningu til „heita pálmans“.
Sú viðurkenning hefur átt undir högg að sækja hér í Cannes en sá heiti er
veittur fyrir framúrskarandi árangur í gerð „dökkblárra/heitra“ mynda.
Ljósmyndun á stjörnum þeirra mynda fer ósjaldan yfir strikið og endar iðu-
lega með fáklæddum ósköpum. En nú í ár voru aðstæður fyrir myndatökur
fremur kaldar eins og þessi mynd ber með sér.
Dagbók ljósmyndara
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Hvar er fólkið?
TAKA 2001, stuttmyndahátíð
grunnskóla og félagsmiðstöðva í
Reykjavík var haldin síðastliðinn
fimmtudag í kvikmyndasal Austur-
bæjarskóla.
Keppendum var skipt í tvo flokka
eftir aldri, 10-12 ára og 13-16 ára.
Alls bárust 16 stuttmyndir í
keppnina úr sjö grunnskólum.
Margar stuttmyndanna áttu rætur
að rekja til skáldsagna en heim-
ildamyndir settu einnig sterkan
svip á keppnina.
Sigurvegarar keppninnar komu
úr Breiðholtsskóla og hét þeirra
mynd Survivor 3. Nemendur í
Grandaskóla áttu myndirnar Marg-
ur verður af aurum api og Sprelli-
gosar, sem höfnuðu í öðru og þriðja
sæti
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Sigurvegarar í TÖKU 2001. Í fremri röð eru höfundar Survivor 3, Berg-
ur Tómas Andersson, Bjarni Einarsson, Ari Gunnar Þorsteinsson og
Einar Ingimar Helgason. Á myndina vantar Pétur Bjarna Pétursson.
Stuttmyndakeppni grunnskóla og félagsmiðstöðva í Reykjavík
TAKA 2001
í Austur-
bæjarskóla
ÞAÐ ER orðinn dágóður hópur Ís-
lendinga sem sækir reglulega kvik-
myndahátíðina í Cannes. Sumir eru
kvikmyndagerðarmenn að kynna
myndir sínar og í
leit að fjárstuðn-
ingi fyrir framtíð-
arverkefni, aðrir
bíóhúsamenn sem
eru að skoða
myndir, hitta sam-
starfsfélaga og
leggja á ráðin um
bíósýningar á kom-
andi misserum.
Þegar vænu dags-
verki er lokið er
stundin milli stríða
kærkomin. Þá er
miðpunkturinn,
samkomustaður-
inn, ósjaldan skrif-
stofa kvikmynda-
sjóðanna á Norð-
urlöndum. Þangað
geta áhugasamir kaupendur sótt
upplýsingar um Norrænar kvik-
myndir, hverjir framleiða þær,
hverjir selja og hvernig hægt er að
ná í viðkomandi.
Á hverjum degi klukkan fimm
eftir hádegi er svo haldin sérstök
„gleðistund“ þar sem venjan er að
flestir Norðurlandabúar á Cannes, í
það minnsta Íslendingar, koma
saman og bera saman bækurnar.
Endrum og sinnum eru síðan haldn-
ar sérstakar móttökur og sam-
kvæmi á sömu skrifstofu og er þá
vanalega slegist
um inngöngu.
Á laugardaginn
var tóku Danirnir
á staðnum sig til
og héldu Evróvis-
ion-teiti í tilefni af
því að keppnin vin-
sæla var haldin í
heimalandi þeirra
en svo vildi til að
það var svo gott
sem eini staðurinn
sem hægt var að
fygjast með þess-
ari æsispennandi
keppni. Svo fór á
endanum, eftir
mjög svo tvísýna
keppni, að Eistar
fóru með sigur af
hólmi í fyrsta sinnið eftir tvísýna
keppni við Dani. Einn Eisti var á
staðnum og fagnaði að vonum ógur-
lega sigrinum.
Á þriðjudaginn höfðu Íslendingar
hins vegar ástæðu til þess að fagna
þegar þeir héldu móttöku í tilefni af
fyrstu úthlutun samkvæmt nýju
endurgreiðslulögunum til kvik-
mynda, til myndarinnar No Such
Thing eftir Hal Hartley, en hún er
var frumsýnd á Cannes á dögunum.
Vitanlega voru allir Íslendingar í
Cannes á staðnum og gerðu sér
glaðan dag. Valgerður Sverrisdóttir
viðskiptaráðherra hélt tölu og
fulltrúar frá Íslensku fjárfestinga-
stofunni veittu ráðgjöf. Ekki bar á
öðru en að erlendir kvikmynda-
framleiðendur sýndu nýju vildar-
kjörunum áhuga og samkvæmt
framkvæmdastjóra Kvikmynda-
sjóðs Íslands, Þorfinni Ómarssyni,
er þegar farið að gæta aukins áhuga
á því að kvikmynda alfarið á Ís-
landi.
Einmana Eistinn
fagnaði sigri
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Áhugasamir áhorfendur fylgjast með Evróvision.
Sigurjón Sighvatsson og Þórir Snær á Íslendingamóttökunni.
Eistinn fagnaði einn síns
liðs árangri samlanda sinna.
Cannes. Morgunblaðið.
Stund milli stríða á Kvikmyndahátíðinni í Cannes