Morgunblaðið - 27.06.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
REYNSLA og þekking Íslendinga á
jarðhita kann að vera verðmæt út-
flutningsvara og viðskiptatækifæri
fyrir Ísland. Íslenska orkufyrirtækið
ENEX og Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis hafa skrifað undir sam-
komulag við fjárfesta í Kaliforníu um
að stefna að samvinnu á sviði orku-
mála. Einnig hefur í samvinnu við
iðnaðarráðuneytið verið lagður
grunnur að minnisblaði Íslands og
Bandaríkjanna um samstarf á sviði
jarðhitaþekkingar.
Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor í
jarðeðlisfræði, segir að hugsanlegt
sé að stofnað verði orkufyrirtæki í
Bandaríkjunum með aðkomu Íslend-
inga. Hann segist sjá þetta þannig
fyrir sér að Bandaríkjamenn fjár-
magni fyrirtækið að mestu leyti og
að Íslendingar komi þar inn með
þekkingu. Þorsteinn sagði ekki úti-
lokað að íslenskir fjárfestar kæmu
að fjármögnun fyrirtækisins.
„Við slíku fyrirtæki gætu blasað
verkefni á sviði orkumála, allt frá
ráðgjafarrþjónustu til beinnar þátt-
töku í jarðhitavirkjunum og lausnum
á sviði orkunýtingar,“ segir Þor-
steinn. Aðspurður hvort það gæti
verið inni í myndinni að Íslendingar
ættu orkuver í Kaliforníu, eða hlut í
þeim, sagði Þorsteinn það ekki
óhugsandi.
Þorsteinn segir að allt muni þetta
skýrast betur á næstu mánuðum, en
hann segir ekkert því til fyrirstöðu
að fyrirtækið gæti tekið til starfa
strax á næsta ári. Hann segir
ómögulegt að segja hversu háar fjár-
hæðir þessi útflutningur þekkingar
gæti fært Íslandi, en hann segir að
þetta verkefni gæti verið mikilvægur
þáttur í útflutningi á jarðhitaþekk-
ingu. Íslenskir sérfræðingar veita nú
þegar ráðgjöf á sviði jarðhita í Kína
og á öðrum svæðum, en Þorsteinn
bendir á að nú bjóðist viðskiptatæki-
færi í nýrri heimsálfu, ekki sé ein-
göngu um þróunarhjálp að ræða.
Íslendingar búa yfir mikilli
þekkingu á jarðhita
Mikill orkuskortur hefur hrjáð
íbúa í Kaliforníu undanfarin misseri
og er þar því leitað leiða til að styrkja
orkuframleiðslu og dreifingu orku.
Þorsteinn segir að í Kaliforníu sé þó
nokkuð af jarðhita sem ekki er nýtt-
ur. Hann segir að Kaliforníubúar
hafi nýtt sinn jarðhita mjög mikið, en
að síðasta áratug hafi orðið ákveðin
stöðnun hjá þeim.
Þorsteinn segir að íslenskir sér-
fræðingar og orkufyrirtæki standi
mjög framarlega á sviði jarðhita í
heiminum. „Ég hugsa að Orkustofn-
un Íslands sé einn stærsti rannsókn-
arvettvangur í heimi á sviði jarð-
orku. Það sést t.d. á því að stofnunin
hefur umsjón með jarðhitaskóla
Sameinuðu þjóðanna,“ segir Þor-
steinn og bætir við að Orkuveita
Reykjavíkur sé stærsta jarðhita-
orkuveita heims.
Upphafið að þessu samstarfi má
rekja til þess að í febrúar síðastliðn-
um kom hingað til lands fulltrúi fjár-
festa í Kaliforníu til að kynna sér ís-
lenskar lausnir á sviði sjálfbærrar
orku. Hingað kom hann að frum-
kvæði Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis, en fyrirtækið er í viðskipta-
sambandi við fjárfestana. Hann
fundaði með mörgum aðilum, m.a.
fulltrúum iðnaðarráðuneytis, Ís-
lenskrar NýOrku, Nýsköpunarsjóðs
og fleirum. Í kjölfarið fóru Arnar
Bjarnason, framkvæmdastjóri við-
skiptastofu SPRON, og Þorsteinn til
Kaliforníu með fulltingi iðnaðarráðu-
neytisins þar sem þeir áttu viðræður
við ýmsa aðila tengda orku- og um-
hverfisyfirvöldum í Sacramento, höf-
uðborg Kaliforníu. Meðal annars
áttu þeir sérstakan fund með aðstoð-
armanni ríkisstjórans.
Í síðasta mánuði fór stærri sendi-
nefnd til Bandaríkjanna með þátt-
töku Jóns Baldvins Hannibalssonar,
sendiherra Íslands í Bandaríkjun-
um. Þá fóru auk Þorsteins og Arn-
ars, Ásgeir Margeirsson, aðstoðar-
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og
stjórnarmaður í ENEX, Benedikt
Steingrímsson frá Orkustofnun og
Hörður Már Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri ENEX.
Þekking á jarðhita flutt út til Bandaríkjanna
Jarðhiti virkjaður með
aðstoð Íslendinga
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMargrét ánægð
í Bandaríkjunum /B4
Eyjakonur lögðu KR-inga
í Eyjum / B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
SYSTKININ á Sauðhúsvelli undir Vestur-Eyjafjöll-
um voru í heyskap í veðurblíðunni í gær. Sigurrós
Sigmarsdóttir heimasæta sá um að snúa heyinu en
Rúnar bróðir hennar sló. Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Íslands er búist við að veður verði
þurrt á þessum slóðum í dag, en hætt við síðdegis-
skúrum á fimmtudag og föstudag og búist er við
rigningu á laugardaginn. Það borgar sig því senni-
lega að hirða heyið sem fyrst undir Vestur-Eyja-
fjöllum.
Morgunblaðið/RAX
Slegið á Sauðhúsvelli
FYRSTI fundur viðræðunefndar
Framsóknarflokks, Samfylkingar og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs um kosningabandalag
flokkanna þriggja í Reykjavík fyrir
næstu sveitarstjórnarkosningar var
haldinn á mánudag. Er með viðræð-
unum m.a. verið að kanna hvort mál-
efnalegur grundvöllur sé fyrir sam-
starfi flokkanna í næstu borgar-
stjórnarkosningum. Vonast er til að
niðurstöður viðræðnanna liggi fyrir
næsta haust.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri, hafði forgöngu um að
kalla fulltrúa flokkanna þriggja sam-
an, en tekur að öðru leyti ekki þátt í
störfum viðræðunefndarinnar.
„Fyrsti fundurinn gekk ágætlega.
Fyrsta skrefið er vitanlega að hittast
og ræða saman og berlega kom í ljós
vilji hjá öllum til að þetta geti geng-
ið,“ sagði Ingibjörg við Morgunblað-
ið. Hún segir að næstu skref felist í
að flokkarnir kynni sín helstu stefnu-
mál og í framhaldinu verði unnið að
sameiginlegri málefnaskrá fram-
boðsins.
„Allir aðilar hafa sínar hugmyndir,
en auk þess er búið að marka stefnu í
öllum ráðum og nefndum borgarinn-
ar,“ sagði borgarstjóri ennfremur og
bætti við að viðræðunefndin myndi
hittast reglulega fram eftir sumri og
stefnt væri að því að hún skilaði af
sér í september.
Sigríður Stefánsdóttir, formaður
félags VG í Reykjavík, sagði að með
viðræðunum sé VG fyrst og fremst
að kanna hvað sé sameiginlegt með
hinum framboðunum og hvað ekki.
Ennfremur sé verið að efla traust og
skilning milli manna ef af sameigin-
legu framboði verður. „Við förum inn
í þessar könnunarviðræður með opn-
um huga til að gá hvort það sé hag-
kvæmara fyrir okkar málstað að
taka þátt í sameiginlegu framboði
eða ekki,“ sagði hún.
Guðjón Ólafur Jónsson, formaður
fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í
Reykjavík, segir sömuleiðis að með
viðræðunum sé verið að kanna hvort
flokkarnir geti komið sér saman um
málefnalegan grundvöll. „Fundurinn
var á vinsamlegum nótum og menn
fóru yfir það hvort flötur væri á mál-
efnalegu samstarfi,“ sagði hann.
Aðilar komu sér saman um að hitt-
ast á „hlutlausum stað“ eins og það
var orðað og varð Rúgbrauðsgerðin í
Borgartúni fyrir valinu.
Fundur um framboð Reykjavíkurlistans
Stefnt að nið-
urstöðu
í september
BÆJARSTJÓRN Mosfellsbæjar
hefur ákveðið að banna nektardans-
staði í bæjarfélaginu og hefur vísað
samþykktinni til aðalskipulagsgerð-
ar, sem nú er í vinnslu.
Að sögn Jóhanns Sigurjónssonar,
bæjarstjóra, ríkti einhugur um málið
í bæjarstjórn en samþykktin var
gerð að áeggjan jafnréttisnefndar.
Engir
súlustaðir
í Mosfellsbæ
HÁSKÓLI Íslands áformar að láta
reisa vísindagarða á háskólalóðinni
sem leigðir verða hátækni- og þekk-
ingarfyrirtækjum sem vinna náið
með deildum og stofnunum HÍ.
Minnisblað um áformin var lagt
fram á ríkisstjórnarfundi í gær-
morgun til kynningar.
Þá er einnig áformað að reisa svo-
nefnt háskólatorg sem tekur yfir al-
menna þjónustu við háskólasamfé-
lagið og leysir að hluta sameigin-
legar þarfir vegna kennslu.
Áform
um vísinda-
garða
ÞRJÚ tilfelli svokallaðs meningó-
kokkasjúkdóms, sem veldur heila-
himnubólgu og blóðeitrun í börnum
og unglingum, hafa verið tilkynnt til
landlæknisembættisins í júnímán-
uði. Í tveimur tilfellum hafa sjúkling-
ar látist af völdum sjúkdómsins. Alls
hafa átta tilfelli verið tilkynnt land-
lækni það sem af er árinu.
Á síðasta ári komu upp 18 tilfelli.
Áðurnefnd þrjú tilfelli komu öll upp
á höfuðborgarsvæðinu en að sögn
Guðrúnar Sigmundsdóttur smitsjúk-
dómalæknis er ekki um faraldur að
ræða. Ekki hafi verið tengsl milli
sjúklinganna og þá hafi ekki verið
um sama bakteríustofn að ræða. Þá
segir hún að sveiflur milli mánaða
geti komið fram.
Neisseria meningitides nefnast
bakteríurnar sem valda meningó-
kokkasjúkdóminum. Sjúkdómurinn
er algengastur í börnum en getur
komið fyrir á öllum aldri. Útbreiðsla
hans er oft tilviljanakennd en hann
getur stundum orðið að faraldri.
Ekki far-
aldur þrátt
fyrir tvö
dauðsföll
Heilahimnubólga
♦ ♦ ♦