Morgunblaðið - 27.06.2001, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI
18 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SVANBJÖRN Thoroddsen, fram-
kvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, hef-
ur verið ráðinn forstjóri Flögu hf. og
tekur hann við því
starfi 1. ágúst
næstkomandi.
Svanbjörn tekur
við af Helga
Kristbjarnarsyni
lækni og stofn-
anda Flögu, sem
hefur ákveðið að
draga sig út úr
daglegum rekstri
og einbeita sér að
vísindastörfum á nýrri svefnrann-
sóknarstofu sinni sem hefur starf-
semi í haust.
Flaga hf. sérhæfir sig í framleiðslu
og þróun búnaðar, sem notaður er til
rannsókna í læknisfræði, einkum
rannsókna á svefntruflunum. Starfs-
menn Flögu eru nú rúmlega 80 tals-
ins og var velta félagins á síðasta ári
560 milljónir króna. Flaga er í eigu
stofnenda og um 400 annarra inn-
lendra og erlendra hluthafa. Þar á
meðal er bandaríska félagið ResMed
helsta samstarfsfyrirtæki Flögu.
Ráðinn for-
stjóri Flögu hf.
Svanbjörn
Thoroddsen
HORFUR eru á því að afkoma
Hraðfrystihús Eskifjarðar hf.
verði undir væntingum fyrstu
sex mánuði ársins. Í tilkynningu
til Verðbréfaþings segir að lakari
afkomu megi, fyrst og fremst,
rekja til gengislækkunar ís-
lensku krónunnar á árinu og sjó-
mannaverkfalls í vor. Gengis-
lækkunin hafi veruleg áhrif á
fjármagnsgjöld félagsins og því
telji stjórnendur fyrirtækisins
ástæðu til að gefa út afkomuvið-
vörun.
Tap af rekstri Hraðfrysti-
stöðvar Þórshafnar
Samkvæmt óendurskoðuðu
milliuppgjöri fyrir fyrstu fjóra
mánuði ársins nam tap af rekstri
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar hf.
um 11 milljónum. Afkoman er
lakari en gert var ráð fyrir í áætl-
unum og má rekja það til lækk-
unar á gengi íslensku krónunnar.
Í tilkynningu segir að rekstraraf-
koma fyrir afskriftir og vexti sé
betri en áætlað var en hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði
nam um 290 milljónum eða um
30% af rekstrartekjum og veltufé
frá rekstri var um 65 milljónir.
Áframhaldandi fall íslensku
krónunnar í maí og lítil tekju-
myndun í sama mánuði geri það
hins vegar að verkum að útlit sé
fyrir að félagið verði rekið með
verulegu tapi fyrri hluta ársins.
Erfið afkoma sjáv-
arútvegsfyrirtækja
ALÞJÓÐLEGA matsfyrirtækið
Moody’s Investors Service hefur
gefið út nýja greiningarskýrslu um
Búnaðarbanka Íslands. Lánshæfis-
mat bankans í heild helst óbreytt frá
síðustu skýrslu. Í greiningarskýrslu
Moody’s kemur fram að mat fyrir-
tækisins á bankanum endurspeglar
sterka stöðu bankans á heimamark-
aði og sterkar fjárhagslegar stoðir
hans.
Við gerð matsins var tekið tillit til
fyrirhugaðrar einkavæðingar bank-
ans og mun mat Moody’s á Búnaðar-
bankanum því ekki breytast við sölu
ríkissjóðs á eignarhluta sínum í
bankanum. Arðsemi, fjárhagslegur
styrkleiki og kostnaðaruppbygging
þykir einnig viðunandi þótt hagræð-
ingarmöguleikar séu enn til staðar.
Meðal helstu styrkleika Búnaðar-
bankans að mati Moody’s eru fjöl-
breytt starfsemi, traustur undir-
liggjandi rekstur, sterk fjárhagsleg
staða, aukin gæði útlána, þróuð
áhættustjórnunarkerfi og góð mark-
aðsstaða bankans. Moody’s bendir
einnig á að meðal þess sem gæti ógn-
að stöðu bankans séu sveiflukenndur
innlendur fjármálamarkaður, hátt
kostnaðarhlutfall bankans og tak-
markaðir vaxtarmöguleikar á heima-
markaði.
Í skýrslu Moody’s kemur einnig
fram að þrátt fyrir að sveiflur á
hlutabréfamörkuðum hafi haft nei-
kvæð áhrif á afkomu Búnaðarbank-
ans, sé arðsemi bankans í samræmi
við arðsemi annarra evrópskra
banka. Í greiningarskýrslunni er
horft til framtíðar og gerir Moody’s
ráð fyrir að fjölbreyttir tekjustofnar
Búnaðarbankans muni áfram
tryggja arðsemi hans.
Mat Moody’s á Bún-
aðarbanka óbreytt
ENDURSKOÐAÐAR áætlanir
Flugleiða gera ráð fyrir að við
óbreyttar aðstæður verði tap af
rekstri félagsins og dótturfyrirtækja
þess á árinu 2001. Í tilkynningu til
Verðbréfaþings Íslands segir að
meginástæður þessa séu samdráttur
í efnahagslífi, sem komi fram í
minnkandi eftirspurn í millilanda-
flugi, innanlandsflugi, sólarlanda-
ferðum og fraktflutningum, og óhag-
stæð þróun dollaragengis gagnvart
íslenskri krónu og gagnvart evrópu-
gjaldmiðlum. Áætlanir Flugleiða
bendi hins vegar til þess að sjóð-
streymi félagsins verði sterkt og
veltufé frá rekstri svipað og undan-
farin ár.
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, lagði þunga áherslu á að
þótt ytri aðstæður væru einkar
óhagstæðar um þessar mundir og
félagið væri að laga sig hratt að nýju
rekstrarumhverfi væri mjög mikil-
vægt að verja hina gríðarlegu upp-
byggingu Flugleiða í flugrekstri og
ferðaþjónustu á Íslandi undanfarin
10 ár. Uppbygging á leiðakerfi Flug-
leiða og sókn félagsins á alþjóða-
markaði hafa leitt til þess að ferðum
til og frá landinu hefur fjölgað um
60-80% á þessu tímabili og stuðlað að
tvöföldun feðamannafjöldans.
Hefur sigið á ógæfuhliðina
frá því í apríl
Rekstur Flugleiða gekk þokka-
lega framan af ári en síðan seig á
ógæfuhlið þegar leið á apríl. Í maí
fækkaði farþegum í millilandaflugi
um 2,5%, í innanlandsflugi um 19,6%
og 7,2% samdráttur varð í frakt-
flutningum. Eftirspurn í flugrekstri
og ferðaþjónustu sveiflast mjög í
takt við almennar hagstærðir og
samdráttur í efnahagslífi segir fljótt
til sín. Nú er spáð minni hagvexti í
flestum mikilvægustu markaðslönd-
um Flugleiða en í upphafi árs og gert
er ráð fyrir að þetta leiði til þess að
tekjur án gengisáhrifa verði nokkru
minni en í upphaflegri áætlun. Spár
um minni flutninga á árinu ásamt
mjög óhagstæðri gengisþróun vega
þyngst í endurskoðaðri rekstrar-
áætlun Flugleiða sem gerir nú ráð
fyrir tapi af rekstrinum. Auk þess-
ara ytri þátta er eldsneytisverð enn
afar hátt. Flugleiðir munu í ljósi
þessarar stöðu minnka framboð í
áætlunarflugi milli landa um 5%.
Flugi verður hætt á flugleiðinni
Keflavík-Halifax nú í haust en hún
hefur verið sú áætlunarleið félagsins
sem hefur gefið minnst af sér. Einn-
ig verður dregið nokkuð úr ferða-
tíðni á öðrum leiðum þar sem afkom-
an hefur verið slök. Á móti verður af
auknum krafti sótt í verkefni í leigu-
flugi erlendis. Þá verður dregið úr
framboði hjá dótturfyrirtækjunum
Flugleiðum-Frakt, Flugfélagi Ís-
lands og Ferðaskrifstofu Íslands í
samræmi við minnkandi eftirspurn.
Gert er ráð fyrir að gengisþróun
dollars gagnvart evrópumyntum ein
og sér kosti Flugleiðir um 600 millj-
ónir króna á þessu ári umfram það
sem ráð var fyrir gert í upphaflegum
áætlunum félagsins. Ástæðan eru
mikil útgjöld í dollurum tengd flug-
rekstrinum. Félagið þarf árlega að
kaupa 70 milljónir dollara fyrir evr-
ópumyntir, sem eru uppistaðan í er-
lendum tekjum Flugleiða.
Gengi bréfa Flugleiða lækkaði um
4,8% í gær eða í 2,0.
Stefnir í taprekstur hjá
Flugleiðum á árinu
ÍSLANDSBANKI hf. hefur selt til
erlends stofnanafjárfestis víkjandi
skuldabréf til eigin fjár í samræmi við
reglugerð nr. 852/2000 um viðbótar-
eiginfjárlið fyrir viðskiptabanka,
sparisjóði, aðrar lánastofnanir og fyr-
irtæki í verðbréfaþjónustu. Sam-
kvæmt reglugerðinni telst útgáfan til
eiginfjárþáttar A og með útgáfunni
fullnýtir bankinn heimildir Fjármála-
eftirlitsins til útgáfu víkjandi skulda-
bréfa. Í tilkynningu til Verðbréfa-
þings segir að útgáfan sé í erlendri
mynt að jafnvirði um 4,2 milljarða ís-
lenskra króna og sé með föstu vaxta-
álagi til 2031 en eftir þann tíma hækki
vaxtaálag og á sama tíma er útgáfan
uppsegjanleg af hálfu bankans.
Í samræmi við markmið
um eiginfjárhlutfall
„Salan er í samræmi við markmið
bankans um eiginfjárhlutfall og sam-
setningu eiginfjárþátta. Með útgáf-
unni verður hluti eignfjárþáttar A í
erlendri mynt og minnkar þannig
áhrift gengisbreytinga á íslensku
krónunni á eiginfjárhlutfall bankans.
Vegna mjög hagstæðra kjara er út-
gáfan nokkuð stærri en framangreind
reglugerð heimilar að teljist til eig-
infjárþáttar A. Þrátt fyrir verulega
hækkun eigna og skulda vegna geng-
islækkunar krónunnar þá er ljóst að
markmið bankans um eiginfjárhlut-
fall er uppfyllt. Bankinn er þannig
með þá stöðu í hlutföllum skulda og
eiginfjár sem talin er skila hámarks
arðsemi til hluthafa samhliða því að
tryggja örugga fjárhagsstöðu,“ segir í
tilkynningu.
Aðspurður segir Finnur Reyr Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri markaðs-
viðskipta hjá Íslandsbanka, að ekki sé
venja að gefa upp nafn kaupanda í
viðskiptum af þessu tagi. Og þegar
um einn aðila sé að ræða sé það nán-
ast hefð í svona útgáfu að halda nafni
kaupandans leyndu.
Tómas Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri áhættu- og fjárstýring-
ar hjá Íslandsbanka, segir að mark-
miðið með útgáfunni sé að styrkja
eiginfjárstöðu bankans. „Við getum
ekki sagt nákvæmlega til um breyt-
inguna á eiginfjárhlutfalli því við birt-
um uppgjör bara ársfjórðungslega. Í
síðasta uppgjöri bankans var eigin-
fjárhlutfall um 9,6% og þar af var eig-
infjárþáttur A um 7,5%. Okkar mark-
mið er að hafa eiginfjárhlutfallið 10%
og A-hlutfall 8%. Það sem við getum
sagt núna er að þrátt fyrir verulega
stækkaðan efnahagsreikning vegna
gengislækkunar krónunnar þá teljum
við okkur hafa náð þessum markmið-
um. Tilgangurinn með útgáfunni er
að styrkja eiginfjárstöðuna í sam-
ræmi við markmið bankans. Þá er það
einnig verulegur kostur að fá þetta í
erlendri mynt og að vissu leyti um
áhættudreifingu að ræða.“
Íslandsbanki styrkir
eiginfjárstöðuna
Á STJÓRNARFUNDI í Þorbirni
Fiskanesi hf. var fjallað um uppgjör
fyrir annars vegar fyrstu 3 mánuði
ársins 2001 og hins vegar fyrstu 4
mánuði ársins 2001. Eftir fyrstu
þrjá mánuðina var hagnaður af
rekstri félagsins 89 milljónir en 111
milljóna tap varð af rekstrinum
fyrstu fjóra mánuði ársins.
Í tilkynningu félagsins til Verð-
bréfaþings segir að munur á afkomu
milli þessara tveggja uppgjöra sé
vegna verkfalls sjómanna sem stóð
yfir á þeim tíma sem afkoma fyrir-
tækisins er hvað best yfir árið og
vegna gengisfalls íslensku krónunn-
ar. „Frá því að verkfalli sjómanna
lauk hafa veiðar og vinnsla gengið
vel og eru horfur í rekstri, fyrir fjár-
magnskostnað, fyrir síðari hluta
ársins góðar.
Jákvæð áhrif til
lengri tíma litið
Gjaldfærsla vegna gengistaps af
erlendum lánum mun vega þungt í
afkomu 30. júní nk., en til lengri
tíma litið hefur gengisfall íslensku
krónunnar jákvæð áhrif á rekstur
Þorbjarnar Fiskaness hf. Skerðing
aflamarks í þorski á næsta afla-
marksári er að hluta vegin upp með
aukningu aflamarks í öðrum teg-
undum og kemur skerðing þessi til
með að vega um 1% í tekjum þessa
árs.“
Uppgjör Þorbjörns Fiskaness
Telja horfur góðar
á síðari hluta ársins
LJÓST er að fyrirtæki í upplýsinga-
geiranum hafa átt erfitt uppdráttar
síðustu mánuðina og í Fjármálafrétt-
um SPRON í gær kemur fram að
vísitala upplýsingatækni hefur nú
lækkað um 63,34% á síðustu 12 mán-
uðum og um 51,46% frá áramótum.
Fram kemur að greiningar fjár-
málafyrirtækja verðmeta fyrirtækin
almennt mun hærra en gengi þeirra
segir til um í dag. Sem dæmi er tekið
að frá áramótum hafa Opin kerfi
lækkað um -59.53%, Nýherji um
-44.6%, Tæknival um -26.96% og
Skýrr um -43.57%.
Vísitala upplýs-
ingatækni lækk-
að um 51,46%
♦ ♦ ♦
BÓKAKLÚBBUR atvinnulífsins
hefur gefið út nýja bók í ritröð
klúbbsins og Viðskiptafræðistofn-
unar Háskóla Íslands, Sölutækni og
samskipti eftir Russel Webster. Í
tilkynningu segir að í bókinni sé
fjallað um hvernig ná megi sem
mestum árangri við sölu á vöru og
þjónustu. Byggt sé á þeirri forsendu
að árangursrík samskipti skipti
sköpum í baráttunni um samkeppn-
isforskot á markaði og hollustu við-
skiptavina.
„Tekin eru fyrir þau þrjú megin-
atriði sem mestu skipta í árangurs-
ríkri sölumennsku: Fyrsta atriðið er
að kynnast viðskiptavininum og
koma fram við hann á heiðarlegan
hátt.
Þarf að huga að framkomu
Annað atriðið er fólgið í vinnulagi
sölumannsins en hann þarf að huga
að framkomu sinni og temja sér að
líta á málin frá sjónarhóli og hags-
munum viðskiptavinarins. Þriðja og
mikilvægasta atriðið er að tileinka
sér leiðir til að tryggja jákvætt og
varanlegt samband við viðskiptavin-
inn.“
Ný bók um sölutækni
og samskipti