Morgunblaðið - 27.06.2001, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 27.06.2001, Blaðsíða 7
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 7 w w w .d es ig n. is © 20 01 Faxafeni 5 • 108 Reykjavík • Sími 588 8477 Opi›: Mán. - fös kl. 10-18 & Laugardaga kl. 11-15 Loka› á laugardögum frá 8. júní til 10. ágúst. 15-30% afsláttur af svefnsófum 15-25% afsláttur af hægindastólum Sprin g air Ame rísk heils ud‡n a Stilla nleg rúm 10-50% afsláttur af teppasettum 10-25% afsláttur af svefnherbergishúsgögnum Borgartúni 28,  562 2901 www.ef.is Olíufylltu WÖSAB rafmagnsþilofnarnir lækka hitunarkostnaðinn!  Fallegir, vandaðir.  Geta sparað allt að 30%  Þunnir, taka lítið pláss.  Brenna ekki rykagnir.  Frostvarnarstilling, hentug fyrir sumarhús.  Margar stærðir, 30 eða 60 cm háir.  Sérlega hagstætt verð! KROSSNEFUR hefur nú sést að því að vitað er í Vestmannaeyjum, á Hofi í Öræfum, Kópaskeri og á skipum fyrir suðaustan landið og telja kunnugir krossnefsgöngu vera í uppsiglingu. Síðasta stóra krossnefsgangan var árið 1990, en hún er álitin sú stærsta sem sögur fara af. Árið 1994 varð síðast vart við krossnef hér á landi. „Í garðinum beint á móti Nátt- úrugripasafninu hér í Vestmanna- eyjum voru að minnsta kosti þrír krossnefir á sunnudaginn. Á mánudaginn var komið með einn krossnef til mín sem köttur hafði náð í en hann dó. Þá komu nokkrir krakkar til mín í morgun [gær- morgun] með annan. Það er mjög trúlegt að krossnefsganga sé í uppsiglingu,“ segir Kristján Eg- ilsson, safnvörður á Nátt- úrugripasafninu í Vestmanna- eyjum, og bætir við að í bókinni Íslenskir fuglar segi að fyrst hafi orðið vart við varp hér á landi árið 1994 á Tumastöðum í Fljótshlíð. Jóhann Óli Hilmarsson, fugla- ljósmyndari, tekur í sama streng og Kristján þegar hann er inntur eftir hvort krossnefsganga sé í uppsiglingu. Hann segist reyndar ekkert hafa frétt af ferðum þeirra frá Skotlandi né Færeyjum en þangað fari þeir oft fyrst. Jóhann Óli segir göngurnar svo- kölluðu vera taldar vegna skorts á æti á hefðbundum slóðum sam- hliða offjölgun í stofninum. Að- spurður hvaða þýðingu þetta hafi fyrir fuglalíf hér á landi segir hann að þeir gætu ílengst hér því greniskógur hafi aukist mikið en krossnefir lifa aðallega á greni- fræjum og fylgir varptími þeirra þroska fræjanna. „Þetta gæti því orðið jákvæð viðbót við fuglalíf hér á landi.“ Jóhann Óli segir að hér séu á ferð fallegir norðlægir fuglar sem komi frá barrskógum Skandinavíu og Rússlands. Þá séu þeir í dag til- tölulega útbreiddir og hafi stungið sér niður á ólíklegustu stöðum eins og í Himalayafjöllum og í Víetnam. Krossnefs- ganga á leiðinni Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Goggurinn er eitt af einkennum krossnefsins og dregur hann nafn sitt af honum. RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær að ganga til samninga við Háskóla Íslands og leggja til fjármagn til að mæta kostnaði við nýja stöðu lektors í stjórnmálasögu 20. aldarinnar sem stofnað verður til í haust. Var þetta gert að tillögu utanrík- isráðherra og forsætisráðherra. Samkvæmt upplýsingum frá for- sætisráðuneytinu verður samning- urinn staðfestur á næstu dögum en hann mun ná til áranna 2002 til 2005. Ný lektors- staða í stjórnmála- sögu við HÍ VEGNA þoku á Reykjavíkurflug- velli þurfti að vísa vélum frá Akur- eyri og Kulusuk á Grænlandi til Keflavíkur um miðjan daginn en þegar á leið létti þokunni og var flug- vélunum þá flogið til Reykjavíkur. Í gærkvöldi lokaðist flugvöllurinn á ný og var öllu flugi til Akureyrar aflýst upp úr kl. 21 sem og kvöldflugi frá Egilsstöðum og Vestmannaeyjum. Flugvélum vísað frá Reykjavík vegna þoku ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.