Morgunblaðið - 27.06.2001, Síða 22

Morgunblaðið - 27.06.2001, Síða 22
ERLENT 22 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HARÐIR eftirskjálftar hafa gert hjálparstarfsmönnum í Perú erfitt fyrir, en stærsti eftirskjálftinn mældist 5,7 stig á Richter. Skjálft- inn á laugardag átti upptök sín í hafinu austur af borginni Areq- uipa, um 600 kílómetra suðaustan við höfuðborgina Líma. Að minnsta kosti 97 manns hafa látist í skjálftunum og tugir þúsunda eru heimilislausir. Alþjóða rauði kross- inn hvatti erlend ríki til að veita Perúbúum aðstoð, en að minnsta kosti 100 milljónir króna þarf á næstu dögum til að fæða, klæða og hýsa þann fjölda fólks sem missti heimili sín í skjálftunum. Evrópu- sambandið hefur þegar heitið 100 milljónum króna og Japan hefur lofað öðrum 50 milljónum. Auk peninganna senda munu Japanir senda tjöld og teppi að andvirði 800.000 íslenskra króna. Fyrsti skjálftinn harðari en áður var talið Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna gaf út yfirlýsingu í gær þar sem segir að skjálftinn sem skók Perú á laugardaginn hafi verið 8,1 stig á Richter en ekki 7,9 eins og áður var talið. Talsmaður stofnunarinn- ar sagði það lán í óláni að skjálft- inn skyldi ekki hafa orðið á þétt- býlla svæði þar sem hann hefði valdið enn meira tjóni. Þrátt fyrir það mikla tjón sem varð í skjálft- anum þykja Perúbúar hafa sloppið furðuvel miðað við stærð skjálft- ans. Fimmtánþúsund manns létu lífið á Indlandi fyrr á þessu ári í jarðskjálfta sem var töluvert minni en þessi. Í hjálparbeiðni Rauða krossins segir að 20.000 fjölskyldur séu heimilislausar í Moquegua-hér- aðinu einu og að önnur héruð hefðu orðið fyrir miklu tjóni. Tala heimilislausra hlaupi því á tugum þúsunda. Vegna þess hve kalt er í veðri á svæðinu er nauðsynlegt að skjóta skjólshúsi yfir hina heim- ilislausu, en óttast er að börn og gamalmenni muni deyja úr kulda og vosbúð verði ekkert að gert. Menningarverð- mæti skemmast Næst stærsta borg Perú, Areq- uipa, sem nýlega var lýst alþjóð- legt menningarverðmæti af Sam- einuðu þjóðunum, varð afar illa úti í skjálftanum. Borgin er fræg fyrir fallegar byggingar frá nýlendutím- anum og er hún ein elsta borg Suður-Ameríku. Var bílaumferð bönnuð í miðborginni af ótta við að hún gæti valdið frekara tjóni á hinum sködduðu byggingum. Níu af hverjum tíu byggingum í borginni Moquegua skemmdust að meira eða minna leyti í skjálft- unum og létust að minnsta kosti 17 íbúar hennar. Bjuggu þeir flestir í fátækrahverfinu San Fransisco sem nánast var jafnað við jörðu í skjálftanum á laugardag. Einnig létust átta manns í hafnarbænum La Punta þegar risastór flóðbylgja skall á honum á laugardag, en al- gengt er að jarðskjálftar sem verða á hafi úti geti af sér slíkar flóðbylgjur. Harðir eftirskjálftar auka enn á tjónið í Perú Fleiri heimilislausir en áður var talið Reuters Indíánafjölskylda vaknar í því sem eftir stendur af húsi þeirra í borginni Moquegua. Líma. AFP, The Daily Telegraph. 3) 4 ) 3   56 78 64)9  :;3)5 : ;  # 2#$ # < <  <      TUGIR þúsunda Berba gengu um götur Tizi Ouzou, höfuðstaðar Kabýla-héraðs í Alsír, í fyrra- dag til að krefjast þess að yfirvöld hæfu nýja rann- sókn á morði á vinsælum söngvara, Lounes Mat- oub, sem barðist fyrir réttindum Berba. Lögreglan beitti táragasi og vatnsþrýstibyssum til að dreifa mannfjöldanum og koma í veg fyrir að óeirðir blossuðu upp. Efnt var til mótmælanna í tilefni þess að þrjú ár voru liðin frá því að Matoub var myrtur. Yfirvöld kenndu íslömskum uppreisnarmönnum um morð- ið, en þeir höfðu rænt söngvaranum fjórum árum áður og haldið honum í gíslingu í hálfan mánuð. Margir Berbar telja hins vegar að ríkisstjórn bandamanna hersins hafi fyrirskipað morðið. Matoub er átrúnaðargoð ungra Berba og orðinn að tákngervingi baráttu þeirra fyrir auknum rétt- indum. Í söngvum sínum gagnrýndi hann ráða- mennina í Algeirsborg fyrir mannréttindabrot, spillingu og kúgun, meðal annars í laginu „Svik- arar“, skrumskælingu á alsírska þjóðsöngnum. Lagið nýtur mikilla vinsælda meðal mótmælend- anna í Kabýla en yfirvöldin hafa mikla óbeit á því. Yfirvöldin sökuðu íslamska uppreisnarmenn um að hafa myrt söngvarann í árás úr launsátri 25. júní 1998. Íslömsk uppreisnarhreyfing, sem hóf blóðuga uppreisn árið 1992, rændi Matoub fjórum árum fyrir morðið en sleppti honum eftir að hafa haldið honum í hálfan mánuð. Fjórir íslamskir uppreisnarmenn voru hand- teknir fyrir morðið en réttarhöldum yfir þeim var aflýst. Mótmælendurnir í Kabýla kröfðust þess að hafin yrði ný rannsókn á málinu og sökuðu stjórn- ina um að hafa fyrirskipað morðið til að þagga nið- ur í söngvaranum. Tugir manna hafa beðið bana Berbar komu til svæðisins, sem nú er Alsír, löngu áður en arabar lögðu það undir sig á 7. og 8. öld. Um 20% íbúanna líta á sig sem Berba. Kabýlar, einn af ættflokkum Berba, hafa lengi barist fyrir því að móðurmál þeirra, tamazight, verði viðurkennt sem opinbert tungumál ásamt arabísku. Götuóeirðir hafa blossað upp nánast daglega í Kabýla frá 18. apríl þegar herþjálfaðir lögreglu- menn urðu Berba á táningsaldri að bana. Síðan þá hafa öryggissveitir skotið að minnsta kosti 55 mót- mælendur til bana og um 1.800 hafa særst. Kabýlar hafa mótmælt harðræði yfirvaldanna og krafist þess að sveitir herþjálfaðra lögreglu- manna í héraðinu verði lagðar niður. Mótmælin hafa síðan breiðst út til annarra hér- aða í Alsír og óeirðir hafa jafnvel blossað upp í bæjum araba. Ungmenni hafa ráðist á ríkisfyr- irtæki og látið í ljósi óánægju með einræði hersins og efnahagsþrengingarnar í landinu. Mótmælin í Alsír breiðast út Tizi Ouzou. Reuters, AP, AFP. Reuters Berbar halda á mynd af söngvaranum Lounes Matoub í mótmælagöngu í fyrradag. NORÐUR-kóresk fjölskylda kom í gærmorgun á skrifstofu flótta- mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Peking í Kína og óskaði hælis í Suður-Kóreu sem pólitískir flótta- menn. Kvaðst fólkið óttast um líf sitt ef það yrði sent aftur til Norður- Kóreu. Fjölskyldumeðlimirnir eru sjö, á aldrinum 15 til 69 ára. Sögðust þeir ekki ætla að yfirgefa skrifstofuna fyrr en þeir hefðu verið úrskurðaðir flóttamenn og fengið tryggingu fyr- ir því að þeir fengju að fara til Suð- ur-Kóreu. Talsmaður suður-kóreska utan- ríkisráðuneytisins sagði í gær að stjórnvöld í Seoul væru reiðubúin að veita fólkinu hæli. Þúsundir flóttamanna í norðurhluta Kína Mannréttindasamtökin Björgum norður-kóresku þjóðinni (RENK), sem hafa bækistöðvar í Japan, styðja baráttu fjölskyldunnar. Að sögn samtakanna flúði fólkið, sem ber ættarnafnið Jang, frá Norður- Kóreu fyrir tveimur árum og hefur síðan verið í felum í Kína. Hundruð Norður-Kóreubúa flýja árlega kúgun og hungursneyð í heimalandinu. Samkvæmt samningi stjórnvalda í Pyongyang og Peking ber Kínverjum að snúa öllum flótta- mönnum til baka, en þó er talið að þúsundir Norður-Kóreumanna haf- ist við í leynum í norðurhluta Kína. Margir þeirra flóttamanna sem nást eru sendir í fangelsi eða vinnubúðir eftir heimkomuna. RENK-samtökin segja að Jang- fjölskyldan óttist um líf sitt, verði hún send aftur til síns heima, þar sem hún hafi gefið út myndskreytta bók sem lýsir hörmungarástandinu í Norður-Kóreu. Í bókinni eru stjórn- völd í Pyongyang kölluð „einræðis- stjórn“ og lýst ábyrg fyrir „dauða milljóna saklausra manna.“ Fimm fjölskyldumeðlimir munu hafa náðst í Kína og verið sendir aft- ur til Norður-Kóreu og tveir þeirra eru sagðir vera í einangrunarbúðum fyrir samviskufanga. Spennuástand á Gulahafi Í þessari viku er 51 ár liðið frá því að Kóreustríðið braust út. Kóreu- ríkin sömdu aldrei frið, en vopnahlé hefur verið í gildi síðan 1953. Þrátt fyrir að samskipti ríkjanna hafi batnað á undanförnum árum ríkir enn mikil spenna þeirra í milli. Á sunnudag skutu suður-kóresk eftirlitsskip níu viðvörunarskotum að norður-kóreskum báti, sem hafði siglt inn á bannsvæði á Gulahafi, ná- lægt landamærum ríkjanna. Áður en norðanmennirnir höfðu sig á brott skutu þeir blysum að eftirlits- skipunum og veifuðu prikum og hnífum í átt til þeirra, að því er suð- ur-kóreska strandgæslan segir. Var þetta mesta spennuástand sem skapast hefur á hafinu úti fyrir Kóreuskaga síðan til átaka kom á sama svæði árið 1999. Þá sökkti suð- ur-kóreskt herskip norður-kóresk- um tundurskeytabáti með tuttugu mönnum innanborðs, sem allir voru taldir af. N-kóresk fjölskylda leitar hæl- is hjá SÞ Peking, Seoul. AFP, AP.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.