Morgunblaðið - 27.06.2001, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 27.06.2001, Qupperneq 25
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2001 25 Á kreml.is jarmar særður maður og ber sig aumlega. En málstað hefur hann veikan að verja og skýlir sér því með upphrópunum og gerir þær persónulegar. Eirík- ur Bergmann heitir hann og segir farir sínar ekki sléttar. Vondur maður hafi svarað grein sinni í Morgunblaðinu og sé sá maður víst útsendari Ísraela og jafnvel sérstaklega þjálfaður til þess arna. Hann segir (og DV vitnar til af áfergju): „Það kemur ekki á óvart að Snorri G. Bergsson skuli, í Morgunblaðinu 12. júní, gera at- hugasemdir við skrif mín um hið hörmulega ástand í Palestínu í sama blaði 6. júní. Þeir sem fylgst hafa með umræðunni á Íslandi um voðaverkin fyrir botni Miðjarðar- hafs vita að Snorri er sjálfskipaður talsmaður Ísraelsstjórnar hér á landi. Mér skilst reyndar að hann sé sérstaklega menntaður í þeim fræðum frá skóla í Ísrael.“ Því miður Eiríkur, ég sá í grein þinni aðeins örlítið pár þar sem sögu- legum staðreyndum var misþyrmt í áróðursskyni og varla fyrirfannst sú setning, sem var ekki af öðru tvennu beinlínis röng eða sagði að- eins hluta staðreynda (þá sem henta betur málstað þeirra sem ala á hatri og óvild). En til að hryggja Eirík dálítið, þá er ég hvorki skipaður né sjálf- skipaður erindreki Ísraelsstjórnar á Íslandi, heldur einn fárra Íslend- inga sem hafa lesið sér til um mál- ið út frá sjónarmiðum beggja aðila, og mótað sér skoðun þaraf, en ekki eingöngu af slitróttum frétt- um fjölmiðla, sem aðeins snerta yf- irborð þess vanda, sem vissulega er fyrirliggjandi í Miðausturlönd- um. Ennfremur lærði ekki sér- staklega til hins meinta starfs, heldur stundaði ég nám í Miðaust- urlandafræðum við Hebreska há- skólann í Jerúsalem, en hann er talinn með þeirra virtari í heim- inum. Síðan tefli ég stundum við Ísraela á internetinu og þigg þá væntanlega fyrirmæli þaðan, eins og góðum erindreka sæmir! Og samsærið vex. Enda er það svo, að Eiríkur svarar ekki efnislega neinu sem ég segi, heldur segir: „Þegar að upp- hrópunum sleppir er fátt í athuga- semdum Snorra sem vert er að staldra við enda beitir hann ódýr- um útúrsnúningum, almennum yf- irhylmingum og gömlum áróðurs- tuggum að hætti þeirra sem hafa veikan málstað að verja.“ Hvað kallast þá, að skrifa grein sem á að níða niður Ísraelsríki og fer með staðlausa stafi, tómt fleipur og varla fyrirfinnast sannleikskorn í þeirri grein, sem hann stærir sig af og vill að menn lesi til að kom- ast að kjarna málsins? Ég lagðist þó svo lágt, að notast við heimildir og sögulegar staðreyndir í svar- grein minni, en það ku vera illa liðið á kreml.is. Það hlýtur að vera veikur mál- staður að verja, þegar grein Eiríks gleymir því fornkveðna: Hafa skal það sem sannara reynist. Maður hefði haldið, ef Ísraelsmenn eru svona vondir, að Eiríkur hefði get- að töfrað fram eitthvað haldbært, en ekki farið óblíðum höndum um staðreyndir og falið sig undir fíkjuviðarblöðum þess, sem veit hann hefur verið afhjúpaður. Svar hans á miklu frekar við hann sjálf- an, því „margur hyggur mig sig“. Enda spyr ég, hvað koma Miðaust- urlönd við sjálfskipuðum erindreka Evrópusambandsins? Varðandi drenginn Muhammed og skrif mín í frelsi.is í fyrra er það ljóst, að drengurinn féll fyrir byssukúlum eigin manna. Það ligg- ur á ljósu og er ekki deilt um, nema af mönnum sem vita lítið um málið, þekkja enn minna af sögulegum staðreynd- um en blása sig út af áróðursritum og fela sig í pólítískum blekk- ingarleik. Einnig liggja fyrir heimildir um viðbrögð föður hans, sem fyrst sagði skotin hafa komið frá þeirri átt sem byssu- menn eigin fólks höfðu aðsetur, en breytti síð- an um skoðun, enda teljast $ 50.000 ágæt- is uppbót fyrir líf, sem því miður var liðið undir lok og var síðan fórnað á áróðursaltari Palestínumanna og taglhnýtinga þeirra á Vesturlöndum. Ég hef ekkert á móti Palestínumönn- um, en ég þoli ekki þegar sögulegum stað- reyndum er misþyrmt með hrottafengnum hætti og í sama dúr og andsemítískir hug- myndaspekingar fyrri tíma. Mér líkar illa við þann áróðursmálflutning sem Eiríkur ber á borð, og margir félagar hans einnig, þar sem mál- staður annars aðilans er fyrir borð borinn án athugunar og heldur sá málstaður tekinn, sem þessa stund- ina er vinsælli. Þannig skrifa að- eins lélegir pólítískusar sem vita, að ef sama vitleysan er endurtekin nógu oft byrja menn að trúa henni. Sökum þess að svar Eiríks á kreml.is er innihaldslaust tek ég mér orð hans í munn og segi: „Auðvitað á maður ekki standa í ritdeilum við menn sem eru þetta blindir á eigin málstað, en hér verður ekki hjá því vikist, þótt ég hafi tæpast geð í mér til að halda því áfram.“ Munurinn er sá, að ég hef rannsakað málið og þekki sögu- legar staðreyndir þess, en blindur leiðir blindan á kreml.is, rétt eins og í kreml.stalin í gamla daga. Báðir falla síðan í sömu gryfju. Þegar fáfræðinni er hampað Höfundur er sagnfræðingur.Snorri G. Bergsson Sagnfræði Munurinn er sá, segir Snorri G. Bergsson, að ég hef rannsakað málið og þekki sögulegar stað- reyndir þess. Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.